Stjarnan - 01.07.1924, Blaðsíða 16
SPURNINGA-KASSINN,
Kœri Davíð: Lað var mér til mikillar
ánœgju, að þú kornst til okkar í vetur.
Lœrði eg þá margt í ritningunni, en það
er eitt, sem eg gleymdi að spyrja þig um.
Er það kristnum manni samboðið, að
tilheyra veraldlegum félagsskapf
Spurning þín er þýSingarmikil, og
mun eg svara henni samvizkusamlega.
Kristinn maöur er sá, sem öðlast hefir
borgararétt í ríki Krists ('í'ilip. 3: 20).
Hinn kristni er þess vegna útlendingur
og gestkomandi á þessari jörSu (ÍHeb.
11: 9, 13). Hann hefir sagt skilið viö'
alt, sem þessi heimur hefir aö bjóöa, og
sýnir í öllu, aö hann þráir “betri ættjörö,
baö er aö segja himneska. Kyrir því
blygðast Guö sín ekki fyrir þá, aö kall-
ast Guö þeirra; þvi að borg bjó hann
þeim” (Tbeb.il; 16).
iDrottinn hefir þess vegn’a, síöan synd-
in kom inn, 'kallaö menn í burtu frá hé-
gáma heimsins. Hann sendi Nóa með
þess konar boöskap til mannanna, sem
lifðu á undan flóðinu, en enginn gaf
honum gaum. Seinna meir kallaði Guð
fólk sitt út úr Egyptalandi, leysti þaö
frá öllum þrældómi og veraldlegum fé-
lagsskap, til þess aö hann gæti dvalið
meðal þess og veriö þeirra Guð f3. Mós.
26: 12. Fyrst þegar ísraelsmenn höföu
að öllu leyti losað sig við alt veraldlegt
prjál og af öllu hjarta gengið Drotni á
hönd, gat hann leitt þá inn í fyrir-
heitna landið. “En alt þetta kom fyrir
þá sem fyrirboði og er það ritað til við-
vörunar oss, sem endir aldanna er kom-
inn til” (1. Kor. 10: 11).
Vér skiljum þá af þessu, að enginn
kristinn maður'getur staöið öörum fæti
í veraldlegum félagsskap og hinum í ríki
Krists, Það er tvílyndi, hálfvelgja og
hræsni í þess konar hegðun. Kristur
getur ekki kannast við 'aðra, sem fylgj-
endur sína en þá, sem af öllu hjarta,
allri sálu, öllum huga og öllum kröftum
leitast við að gjöra vilja Guðs. Og þeir
sem þaö gjöra, hafa ekki tíma til annars.
'Þ'essu efni viövíkjandi hefir Páll post-
uli gefiö oss svo greinilega upplýsingu,
aö það er engum heilvita manni mögu-
legt, aö misskilja hana.
“Gangið ekki undir ósamkynja ok eða
með vantrúuðum; því að hvað er sam-
eiginlegt með réttlæi og ranglæi? Eða
hvaða samfélag -hefir ljós við myrkur?
Og hver er samhljóðan Krists við Belí-
al? Eða hver hludeild er trúuðum með
vantrúuðum? Og hvað á musteri Guðs
við skurðgoð saman að sælda? Því að
vér erum musteri lifanda Guðs, eins og
Guð hefir sagt: Eg mun búa hjá þeim
og ganga um meðal þeirra og þeir munu
vera lýður minn. bess vegna fariff burt
frá þeim, og skiljiff yffur frá þeim, seg-
ir Drottinn, og snertið ekki -neitt ó-
hreint, og eg mun taka yður að mér, og
eg mun vera yðar faðir, og þér munuð
vera mér synir og dætur, segir Drottinn
alvaldur” (2. Kor. 6: 14-18).
PTest allur veraldlegur félgasskapur á
þessum tíma er antikristilegur. Verka-
mannafélögin í öllum löndum heimsins
hafa það á stefnuskrá sinni, að útrýma
kristindóminum, svo enginn, sem tilheyr-
ir Kristi, getur tilheyrt þeim. Enginn,
sem segist feta í fótspor Krists, getur
tilheyrt leynifélögum, hverju nafni sem
þau nefnast; því Kristur sagði; “Eg
hefi talað opinberlega fyrir heiminum..
og ekkert hefi eg talað í leyni.” ('Jóh.
18; 20). Svo að þar sem þekkiorð er
notað, getur hinn kristni ekki farið inn,
því Kristur fylgir íhonum ekki inn á
þess konar staði. Heldur þú, kæri vin-
ur, að einhver spámaður eða postuli
Drottins, sem sótt hefði eftir efsta sæti
í veizlu með svöllurum, svikurum, hór-
dómsmönnum og hlustað á alt það smjað-
ur, sem viðhaft er í þess konar óhófs-
veizlum, myndi geta vænst þess að hafa
fyllingu andans til að snúa syndurum
frá villu síns vegar? Nei, alls ekki.
Andi Guðs og englar koma þar ekki
nærri. Sjáðu endalok þeirra, sem þann-
ig breyta. ('Matt. 24; 48-51).
“Farið burt, farið .burt, gangið út
þaðan, snertið ekkert óhreint; gangið
■burt þaðan, hreinsið yður, þér skjald-
sveinar Drottins.” fEs. 52: 11.)