Stjarnan - 01.07.1924, Blaðsíða 9
STJARNAN
105
beSinn aÖ fara með honum. í fyrstunni
mælti hann kröftuglega á móti því; því
hann hafSi enga löngun til aS lenda aft-
ur í klóm hinnar undirförulu Birma-
stjórnar, og ekki heldur þráÖi hann aÖ
yfirgefa heimiliS eftir sína löngu og
leiÖinlegu fjarveru. ÞaÖ var ef til vill
eins og nokkurs konar agn, að honum
var boðiö hiö gylta tækifæri, sem hann
■eiginlega aldrei hafði getaö staðið á
móti, nefnilega, ef hann vildi fara með,
mundu þeir bæta grein inn í samning-
ana, sem mundi veita öllum þegnum
Birmaríkisins trúfrelsi. Hugsunin um
aS geta opnaö alt ríkiS fyrir boðun fagn-
aðarerindisins svifti hann öllum viðbár-
um viðvíkjandi ferðinni. Af öllu hjarta
mælti frú Judson með henni, án þess að
taka tillit til einverunnar, sem beiö henn-
ar og Maríu litlu á frumbýlings heimili
þeirra.
Hvað sönn trú megnar.
Trúin gerði Abel rtéttlátan; hún mun
einnig gera oss réttláta. Guði þóknast
trúin; en án hennar er ómögulegt Guði
aS þóknast. jHún/ gerði Abraham
styrkvan til að fórnfæra einkasyni sín-
um, sem hann elskaði mjög svo mikið.
í hugarangri sínu skildi hann hvað það
kostaði hinn himneska föður, að gefa
eingetinn Son sinn til þess að endur-
leysa hið glataða og syndumspilta
mannkyn. Jesús Kristur varð ab
bera hina óhreinu skikkju, sem spott-
ararnir færðu hann i, og ekki vantaði
þyrná og nagla meðal pislartólanna.
En þrát fyrir það að hann dó fyrir
alla, munu aS eins þeir, sem fyrir trúna
eru hreinsaðir í fórnarblóði hans, verða
endurleystir frá þrældómi og afleiS-'
ingum syndarinnar og fyrir kraft Krists
vinna frægan sigur.
Trúin gérði Jakob styrkvan á deyj-
anda degi til að biðjæ Guð og blessa
aðra. Fyrir trúna hafnaði Móses fram-
tíðarvonum sínum um að verða kon-
ungur Egyptalands og kaus heldur að
líða ilt með Guðs fólki og ganga gegn
um allar þær freistingar og reynslur,
sem mættu honum á eyðimörkinni. Á
reynslustundum sínum talaði hann aug-
liti til auglitis við skapara sinn og end-
• rlausnara. Ef vér Jstöndum tstöðugir
al til enda, munum vér líka fá að horfa
upp á hina óumræðilegu dýrð hans, sem
talaði við Móses, og sitja með honum
á hásæti alheimsins fOp. 3, 21).
Trúin styrkti Daníel, meðan hann var
í herleiðingunni, til að ganga óttalaus
ofan í gryfjuna til hinna hungruðu
ljóna. Trúin mun einnig styrkja söfn-
uð Guðs til án hræðslu að standa á
grundvelli sannleikans, þegar ofsókjn-
arvöld þessa heims setja gild lög, sem
hóta að svifta Guðs börn lífinu fyrir
að sýna hlýðni við öll boðorðin. (Op.
13, 15J. Trúin gaf Stefáni píslarvotti
styrk á dauðastundu hans til að biðja
fyrir hinum syndumspiltu ofsóknar-
mönnum, sem grýttu hann. Og trúin
veitti öllum sönnum ' píslarvottum á
hinu dimma tímabili miðaldanna kraft
til að gera hið sama.
Trúin hjálpaði sumum til að geta