Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 2

Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR 4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg SPÁÐ ER SENDINGUM UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS SANDGERÐI -20° 150kg Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir, sími 421 0002, marta@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@ vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur­ frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM MANNLÍF Á SUÐURNESJUM VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM Samkaup hafa keypt tólf verslanir Baskó á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal verslanir undir merkjum Iceland og valdar verslanir þar sem nú eru reknar 10–11 verslanir. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaupin. „Við hjá Samkaupum erum gríðar­ lega ánægð með niðurstöðuna enda eru þau heillaskref fyrir neytendur en kaupin munu auka á samkeppni á dagvörumarkaði á höfuðborgar­ svæðinu,“ segir Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa. Staðsetningarnar sem um ræðir eru: 10–11 verslanir í Lágmúla, Grímsbæ, Hjarðarhaga, Laugalæk, Borgartúni og Hafnarfirði. Verslanir Iceland í Glæsibæ, Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka og háskólaverslanirnar í Háskóla Íslands og Háskóla í Reykja­ vík. „Það má búast við töluverðum breytingum á verslununum sem við munum skýra frá síðar. Fyrst af öllu ætlum við að fara yfir kaupin með því góða fólki sem mun starfar hjá okkur og kynna fyrir þeim hvaða breytingar koma til með að eiga sér stað. Það er samt ljóst að öllu starfsfólki verður boðin áfram vinna hjá Samkaupum,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, fram­ kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam­ kaupa. Samkaup starfa á íslenskum dag­ vörumarkaði og byggir rekstur sinn á gæðum, góðri þjónustu og fjölbreyttu vöruvali á eins hagstæðu verði og völ er á. Félagið rekur fyrir kaupin um 50 verslanir á 33 þremur stöðum víðsvegar um land og eru helstu vöru­ merki Samkaupa Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin. Þar starfa yfir 1.000 manns. „Samkaup er leiðandi fyrirtæki í viðskiptaháttum, vörugæðum og þjónustu sem og virkur þátttakandi í nærsamfélaginu. Kaupin á versl­ unum Baskó styrkja stöðu Samkaupa á höfuðborgarsvæðinu og færa okkur enn nær íbúum þar,“ segir Ómar. Jafnframt er búið að undirrita samn­ ing þess eðlis að Samkaup festi kaup á verslunum Iceland á Akureyri og í Reykjanesbæ. Málið er á borði Sam­ keppniseftirlitsins og vænta má úr­ skurðar á næsta ári. Grunnurinn í þjónustu Samkaupa er fjölbreytni og sveigjanleiki til þess að uppfylla hinar ýmsu þarfir viðskipta­ vina sem og tengsl við viðskiptavini í öllum byggðum landsins. Samkaup kaupa tólf verslanir á höfuðborgarsvæðinu Útlendingastofnun flytur í stærra húsnæði á Ásbrú – Aukið rými og möguleiki á að þjónusta mismunandi hópa umsækjenda – Útlendingastofnun tekur á næstu vikum í notkun húsnæði við Lindarbraut á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þá mun Útlendingastofnun hætta leigu núverandi húsnæðis, Airport Inn, við Klettatröð um áramótin. Fram að áramótum verða því bæði húsnæðin í notkun. Nýja húsnæði Útlendingastofnunar á Ásbrú er skammt frá grunnskólanum Háaleitisskóla. Núverandi húsnæði á Airport Inn rúmar allt að 90 einstaklinga en nýja húsnæðið að Lindarbraut getur tekið við rúmlega 100 einstaklingum í nú­ verandi útfærslu. „Nýja húsnæðið gefur stofnuninni aukið rými en einnig möguleika á að þjónusta mismunandi hópa um­ sækjenda,“ segir Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofn­ unar, í skriflegu svari til Víkurfrétta. Útlendingastofnun er með samning við Reykjanesbæ um þjónustu við umsækj­ endur um alþjóðlega vernd en þar er fyrst og fremst um að ræða fjölskyldur sem þiggja þjónustu af sveitarfélaginu. „Stofnunin leitaði eftir því hvort vilji væri fyrir því hjá sveitarfélaginu að koma að þjónustu við umsækj­ endur í húsnæðinu að Lindarbraut en sveitarfélagið hafnaði því. Eftir sem áður þjónustar Reykjanesbær þá sem falla undir samninginn við Útlendingastofnun en stofnunin sjálf mun sjá um þjónustu við þá sem koma til með að búa að Lindarbraut með sama hætti og í öðrum úrræðum á vegum stofnunarinnar, bæði á Ásbrú og höfuðborgarsvæðinu,“ segir Þór­ hildur í svari til Víkurfrétta. Lögreglan á reglulega erindi í úrræði á vegum Útlendingastofnunar þar sem hún er einn af þeim aðilum sem kemur að málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Í fyrirspurn Víkur­ frétta til Útlendingastofnunar var spurt hvort stofnunin hafi áhyggjur af því að hafa starfsemi sem þarf tíð afskipti lögreglu við hlið grunnskóla. „Stofnunin vill minna á að umsækj­ endur um alþjóðlega vernd eru ekki öðruvísi en annað fólk þrátt fyrir að staða þeirra og aðstæður séu aðrar en vanalega gerist,“ segir í svari Út­ lendingastofnunar. SKIPA VINNUHÓP VEGNA HÚSNÆÐIS- STUÐNINGS SVEITARFÉLAGSINS Velferðarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt skipun starfshóps til að fara yfir húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Er það gert með hliðsjón af þeim breytingum sem hafa orðið m.a. á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem og ábendingum í ályktun umboðsmanns Alþingis í áliti hans vegna húsnæðisvanda utangarðsfólks í Reykjavík og stöðu og þróun húsnæðismála eins og hún kemur fram í skýrslu Íbúðalánasjóðs og Velferðarráðuneytisins sem kynnt var á nýliðnu Húsnæðisþingi 2018. Starfshópurinn verður samsettur af þremur fulltrúum úr velferðarráði, tveimur starfsmönnum úr úthlutunarhópi velferðarráðs í húsnæðis­ málum, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og framkvæmdastjóra Fasteigna Reykjanesbæjar. Þrjátíu og þrjú fyrirtæki á Suðurnesjum „FRAMÚRSKARANDI“ Þrjátíu og þrjú fyrirtæki á Suðurnesjum eru meðal „Framúrskarandi fyrirtækja árið 2018“. Creditinfo tilkynnti í sl. viku hvaða fyrirtæki á landinu væru í þessum hópi. Alls fengu á áttundahundrað fyrirtæki á landinu þessa viðurkenningu eða um 2% af öllum skráðum fyrir- tækjum á landinu. Fyrirtæki sem fá viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi þurfa að uppfylla viss skilyrði er varða rekstur og stöðu þeirra. Þau þurfa m.a. að hafa sýnt rekstrarhagnað síðustu þrjú árin, vera með 20% eiginfjárhlutfall á sama tíma og eignir séu 80 milljónir eða meira þrjú ár í röð. Fyrirtæki á Suðurnesjum sem komast á listann 2018: • Bláa lónið hf. • HS Veitur hf. • Samkaup hf. • Fríhöfnin ehf. • Lagnir og þjónusta ehf. • Nesbúegg ehf. • Blue Car Rental ehf. • Einhamar Seafood • Icemar ehf. • TSA ehf. • Melás ehf. • Happy Campers • K&G ehf. • Verkfræðistofa Suðurnesja • Bragi Guðmundsson ehf. • Eldsneytisafgreiðslan á Kefla­ víkurflugveli EAK ehf. • H.H. Smíði ehf. • OMR verkfræðistofa ehf. • Ice Fish ehf. • A. Óskarsson verktaki ehf. • Lagnaþjónusta Suðurnesja ehf. • SI Raflagnir ehf. • Bústoð ehf. • Útgerðarfélag Sandgerðis ehf. • Veiðafæraþjónustan ehf. • Bílrúðuþjónustan ehf. • Eignarhaldsfélagið Áfangar ehf. • Víkurás ehf. • Fitjar vörumiðlun ehf. • Bergraf ehf. • Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. • Skólamatur ehf. • Rekan ehf. Töluvert tjón varð þegar þak fauk af húsi sem unnið er að endurbótum á við Sjávargötu í Njarðvík í óveðri um síðustu helgi. Stór hluti fauk af þakinu og olli tjóni. Ekki varð slys á fólki. Á myndinni má sjá gröfu og sendibíl halda niðri brakinu af þakinu í veðrinu.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.