Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 4

Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 4
4 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. Glæsilegur íbúða- kostur í Vogum Skyggnisholt 2-10 Afhending fyrstu íbúða vorið 2019 Fjögur ný hús í byggingu 6 íbúðir í hverju húsi Afhending fyrstu íbúða vorið 2019 Verð 29,5 – 38,5 mkr,- Stærðir 64,4 – 99,9 fm 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Nánari upplýsingar: Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteigna- sali s: 698-2603 Nánari upplýsingar: Aron Freyr Eiríksson, löggiltur fasteigna- sali s: 772-7376 Hönnuðir: Söluaðilar: Byggingaraðili: Stofnuð 1983 35 á r a Útrás Höllu byrjar vel – Ferðamenn ánægðir með matinn frá veitingakonunni í Grindavík „Við sóttum um upp á von og óvon og vorum alveg tilbúin að taka því að vera ekki valin. Við litum á þetta sem prófraun eða æfingu og vildum leggja þá vinnu á okkur að fara í útboð á nýjum veitingastað í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Við höfðum mjög gott af þessu því við þurftum að skoða rekstur fyrirtækisins ofan í kjölinn en þetta gekk vel og ég var í einhvern veginn örugg á því að við myndum vinna útboðið og það varð raunin. Byrjunin á staðnum lofar mjög góðu. Þetta var mikil áskorun fyrir okkur og við erum bjartsýn á framtíðina,“ sagði Halla María Svansdóttir, stofnandi veitinga- staðarins Hjá Höllu í Grindavík, en hún og Sigurpáll Jóhannsson, maður hennar, kynntu rekstur sinn á fundi í Reykjanesbæ nýlega þar sem verið var að kynna Startup Tourims, við- skiptahraðal fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu. Halla og Sigurpáll fóru yfir þróun staðarins Hjá Höllu og sögðu frá hluta af þeirri vinnu sem átti sér stað í undirbúningi staðarins í flugstöð- inni. Þau hafa sannarlega verið með nýsköpun í rekstri veitingastaðarins og nú er Halla orðin vel kynnt í sínum heimabæ Grindavík, á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur farið nýjar leiðir í matargerðinni og lagt upp úr því að gera sína rétti frá grunni og notar eingöngu bestu hrá- efni. Hollusta er ofarlega á listanum hjá henni. Eitt af því sem hún býður upp á er að senda matarpoka til ein- staklinga og fyrirtækja og það hefur verið mjög vinsælt. Halla segir að það sé vissulega öðru- vísi að reka veitingastað í flugstöð en það sé mjög skemmtilegt. Margir ferðamenn hafi verið ánægðir og látið það í ljós. „Þetta var stórt skref en við stefnum að því að vera þarna næstu árin, jafnvel áratug ef vel gengur,“ sagði veitingakonan úr Grindavík. Startup Tourism er frábært tækifæri fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu Startup Tourims viðskiptahraðall var kynntur í Reykjanesbæ nýlega en það er eins og tíu vikna súper- námskeið og sérhannað fyrir ný fyrirtæki í ferðaþjónustu. „Mark- miðið er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, stuðla að verðmætasköpun og fagmennsku og stuðla að dreifingu ferða- manna víðsvegar um landið, allan ársins hring,“ sagði Sunna Halla Einarsdóttir frá Icelandic Startups. Startup Tourism er einkarekið félag stutt af nokkrum stórum fyrirtækjum eins og Bláa lóninu, Vodafone og Íslandsbanka. Á kynningarfundinum kom fram að nærri hundrað fyrirtæki hafi sótt um að komast að í fyrra en á hverju ári eru sérvalin tíu sprota- fyrirtæki sem fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frum- kvöðla, fjárfesta og annarra sér- fræðinga, þeim að kostnaðarlausu. Á kynningarfundinum fór Gunn- ar K. Sigurðsson, markaðsstjóri Isavia, yfir markaðssetningu hjá fyrirtækinu, fjölda ferðamanna og fleira tengt ferðaþjónustunni á Íslandi. Atvinnuþróunarfélagið Heklan stóð fyrir fundinum í samvinnu við Startup Tourism. Nýi veitingastaðurinn Hjá Höllu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. VF-myndir/pket FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN 898 2222

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.