Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 22.11.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. K-sport í 25 ár við Hafnargötuna – Siggi Björgvins hætti við að hætta. Býður upp á mikið úrval af sportvöru Siggi Björgvins, fyrrum meistara- flokksmaður hjá Keflavík í fótbolta, hefur staðið sportvöru vaktina fyrir fólkið í bænum undanfarin 25 ár. Hann selur þar íþrótta- og útivistar- fatnað á alla fjölskylduna. Það er gaman að segja frá því að Sigurður Björgvinsson lék fyrst með meistara- flokki Keflavíkur árið 1975 þá aðeins sextán ára gamall. Hann var sæmdur silfurmerki knattspyrnudeildar Keflavíkur árið 2011 og var þá næst leikjahæsti leikmaður Keflavíkur frá upphafi. Siggi er kraftmikill Kefl- víkingur sem komið hefur þessari flottu sportvöruverslun á kortið hjá mörgum bæjarbúum. Sjálfur fær hann útrás daglega með því að hlaupa sex til sjö kílómetra ásamt því að spila með félögum sínum fót- bolta í Old Boys í hverri viku. Líklega vilja langflestir sjá sportbúðina hans Sigga lifa áfram og geta ekki hugsað sér bæinn án K-sport. Vörn í sókn Það er alltaf stutt í hlátur- inn hjá Sigga en í þessari heimsókn var oft hlegið inn á milli þess sem alvaran var einnig rædd en K-sport var næstum búið að loka í haust þegar eigandinn missti eld- móðinn og fannst bæjarbúar ekki kunna að meta lengur að versla í heimabyggð. „Ég var á leiðinni að hætta og ætlaði að selja frá mér K-sport en svo fékk ég svo mikla hvatn- ingu frá fólki um að halda áfram að ég er hættur við að hætta. Núna er ég aftur fullur af bjart- sýni og ætla að halda áfram að létta fólki lífið með því að bjóða því upp á góða sportvöruverslun hér heima. Þú átt ekki að þurfa að fara til Reykjavíkur til að kaupa eitthvað í sportið. Hér er fullt af vörum og á sambærilegu verði og innfrá. Ég er með alls konar merkja- vöru eins og Nike, Under Armour, Speedo, Zo-On svo eitthvað sé nefnt. Alls staðar á landinu er merkjavaran á sama verði. Svo er ég kominn í sam- starf við ótrúlega flotta danska keðju sem býður gæði sem slá algjörlega í gegn. Norðmenn sem eru mjög kröfu- harðir á útivistarfatnað eru mjög hrifnir af þessari dönsku merkja- vöru sem nefnist Zig-Zag fyrir börn, Whistler og Endurance fyrir full- orðna. Norsarar eru tortryggnir á allt annað en norskt þegar kemur að útivistarfatnaði sem er sérgrein þeirra en þeir eru mjög hrifnir af þessari sportvörulínu. Þessar vörur frá Danmörku eru á gríðarlega góðu verði hjá okkur. Við erum einnig með mjög góðan sundfatnað frá Speedo og smart jógafatnað og fylgihluti eins og flottar jógadýnur og fleira. Strigaskór eru í miklu úrvali hjá okkur, glæsilegar kuldaúlpur á börn og fullorðna, regngalla, vindgalla á allan aldur, húfur, vettlingar, góðir sportsokkar svo eitthvað sé nefnt. Svo er ég með ódýrustu skólatösk- urnar í bænum en það eru stórar íþróttatöskur sem fólk hefur keypt í skólann handa krökkunum. Alls konar bakpokar eru einnig hérna í útivistina. Búðin er klár fyrir jólin, heilu veggirnir fullir af fallegri vöru. Því meira sem fólk verslar hér heima því meira úrval getum við boðið upp á. Það hangir saman. Ég vil að fólk geti verslað hér heima og þess vegna er ég að þessu. Það vilja örugglega allir halda í búðirnar sem eru hérna því það skapar einnig lifandi bæjar- félag og góða stemmningu bæjarbúa. Við erum bærinn og við getum látið alla verslun lifa ef við hugsum okkur aðeins um og verslum heima frekar en að kaupa sömu vöru í bænum eða á netinu sem jafnvel passar svo ekki,“ segir Siggi í einlægni. VERSLUN&VIÐSKIPTI Guðrún Eir Jónsdóttir, afgreiðslustúlka, ásamt Sigurði Björgvinssyni, verslunareiganda. Íris Harðardóttir rekur ásamt syni sínum, Erlingi Birni Helgasyni, tísku- vöruverslunina VIBES á Hafnargötu og hefur gert undanfarin tvö ár. „Mig langaði að vera með eigin rekstur en ég hef unnið hjá öðrum í mörg ár og verið verslunarstjóri hér og þar en nú langaði mig að prófa að reka tískuverslun sjálf. Þetta er búið að vera gaman en ég hef alltaf verið mikið fyrir tískuföt og man eftir mér þriggja ára með mömmu minni að benda á tísku- fatnað í gluggum. Þetta er svo stór partur af mér,“ segir Íris sem stóð vaktina ein þennan daginn í búð- inni og var að aðstoða viðskiptavini þegar blaðamaður rak inn nefið til að forvitnast. Sýningargluggi VIBES hefur oft vakið athygli vegfarenda fyrir frumlega útstillingu og nú er þar gamalt lögreglumótorhjól sem prýðir gluggann. Jólin koma fyrst í sýningargluggann Stíllinn í versluninni er retro-stíll en Íris segist leggja mikið upp úr því að fólki líði vel á meðan það er að versla. „Já, ég vil að fólki finn- ist gott að koma hingað inn, þess vegna er ég með allskonar skraut hér inni svo að búðin minni einnig á heimili. Mér finnst líka mjög gaman að stilla út í gluggann og bráðum fer ég í jólagluggann. Það er alltaf ákveðin stemning að fá jólin í glugg- ana. Einu sinni veitti Reykjanesbær viðurkenningu fyrir skemmtilegasta jólagluggann í miðbænum okkar. Því miður eru þeir hættir því en það skapaði mjög skemmtilega stemningu hjá okkur sem rekum verslanir hér í bæ og hvatti okkur til að leggja meira í sýningargluggana okkar,“ segir Íris og vonast til að bæjaryfirvöld taki þann skemmti- lega sið upp aftur. Upphaflega átti VIBES eingöngu að bjóða upp á tískuföt fyrir stráka en það breyttist fljótlega þegar Íris fór að fara til útlanda að kaupa inn fatnað fyrir búðina. „Ég á þrjá stráka og mér fannst vanta föt á stráka, svona kúl street- föt, töff föt. Mig langaði að skapa sjálfri mér atvinnutækifæri. Ég fer öðru hvoru til útlanda að kaupa inn fatnað fyrir búðina til að bjóða upp á annað úrval og betra verð, en það gerist þegar ég kaupi beint af heild- sala úti en ekki í gegnum milliliði hér heima. Ég komst ekki hjá því að sjá kvenfatnað í leiðinni og hann var svo flottur að ég fór að kaupa inn einnig handa konum. Það var svo erfitt að horfa á þessi flottu föt og taka þau ekki með heim. Í dag er ég með fyrir alla aldurshópa og á bæði kynin,“ segir Íris. Vil veita persónulega þjónustu Íris hefur sem sagt alltaf unnið í tískuverslun og segist ekki vilja vinna við neitt annað, það sé svo gaman. „Ég hef mikla þjónustu- lund og vil selja kúnnanum það sem klæðir hann ef ég er spurð ráða, sem er yfirleitt. Þegar fólk kemur hingað inn þá er þjónustustigið hátt því ég vil gera vel við alla. Það er prinsipp-mál hjá mér að hjálpa fólki að finna föt sem passa best,“ segir Íris og viðurkennir að dagarnir verði stundum langir þegar maður vinnur hjá sjálfum sér. „Ég er fjölskyldumanneskja og vildi einnig að yngsta barnið mitt, dóttir mín, gæti komið hingað eftir skóla og lært hérna inni hjá mér. Þannig hefur hún alltaf aðgang að mér og ég get í leiðinni einnig sinnt starf- inu mínu vel,“ segir Íris og hlakkar til jólanna og að klæða bæjarbúa í flott jólaföt. marta@vf.is Hefur gaman af tísku- fötum VERSLUN&VIÐSKIPTI AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 Jólaúthlutun Velferðarsjóðs Suðurnesja og Hjálparstarfs kirkjunnar á Reykjanesi Opið verður fyrir umsóknir hjá Velferðarsjóði Suðurnesja og Hjálparstarf kirkjunnar í Keflavíkurkirkju 27. nóv., 29. nóv., 4. des., 6. des. og 11. des. Opnunartími er frá klukkan 9:00 til 11:00. Þeir sem hafa fengið greitt inn á kort (blátt Arionbankakort) frá Hjálparstarfi kirkjunnar geta sótt um jólaaðstoðina rafrænt á www.help.is. Allir þeir sem eru undir viðmiðunarmörkum eiga rétt á jólaaðstoð hjón, einstaklinga og barnafólk. Eftir 11. desember 2018 er lokað fyrir umsóknir í velferðarsjóð og Hjálparstarf Kirkjunnar til 15. janúar 2019. Afgreiðsla korta fer svo fram 13. desember 2018 milli klukkan 09:00 og 12:00 Christmas Allocation of the Welfare Fund of Suðurnes and the Relief Work of the Church in Reykjanes Applications will be made to the welfare fund of Suðurnesja and the Church's Relief Work at Keflavik Church, Nov. 27th, Nov. 29th, Dec. 4th, Dec. 6th and Dec. 11th. Opening hours are from 09:00 to 11:00. Those who have been paid on a card (blue Arion bank card) from the Church Aid can apply for Christmas support online at www.help.is. All those who are below the threshold limit are entitled to Christmas support for couples, individuals and children. After December 11th 2018, applications for Welfare Fund and Church Relief Work are closed until January 15th 2019. Payment of cards will take place on December 13th 2018 between 09:00 and 12:00 Íris Harðardóttir.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.