Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 8

Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 8
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. Jólaljósin verða tendruð í Kirkjugörðum Keflavíkur fyrsta sunnudag í aðventu, þann 2. desember. Ljós verða tendruð í Hólmbergsgarði kl. 16:00 og í kirkjugarðinum við Aðalgötu kl. 17:00. Verð fyrir uppsetningu og lýsingu á aðventu og fram á þrettánda er kr. 4.500.- fyrir einn kross en 3.500.- fyrir hvern kross umfram það. Opnunartímar Kirkjugarða Keflavíkur vegna móttöku lýsingargjalda og til að aðstoða þá sem á aðstoð þurfa að halda við uppsetningu krossa verður: Miðvikudagur 28. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Fimmtudagur 29. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Föstudagur 30. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Laugardagur 1. desember kl. 10:00 – 15:00 Sunnudagur 2. desember kl. 13:00 – 15:00 Opið verður frá 4. desember – 20. desember. Þriðjudaga kl. 15:00 – 17:00 Fimmtudaga kl. 15:00 – 17:00. Ath. ekki verða sendar valkröfur í heimabanka þetta árið. Leigu- og sölukrossar verða á staðnum. Nánari upplýsingar veitir kirkjugarðsvörður Friðbjörn Björnsson í síma 824 6191 milli kl. 10:00 og 16:00 alla virka daga. Jólalýsing í Kirkjugörðum Keflavíkur Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Miklar breytingar í útgerð á 20 árum Það er búið að vera mikið líf í Sandgerði núna þegar liðið hefur á nóvem- bermánuð. Mikil fjölgun á bátum sem gera þaðan út, því að nokkrir hafa bæst í hópinn þar sem gera út á línuveiðar. Má þar nefna bæði Daðey GK og Katrínu GK. Þegar þetta er skrifað hefur verið haugabræla síðan fyrir helgi og bátar ekkert komist á sjóinn. Netabáturinn Erling KE er farinn á flakk því hann fór á Vestfirðina og lagði netin sín út frá Önundarfirði og landaði á Flateyri 33 tonnum í einni löndun, fór síðan annan túr og landaði í Bolungarvík. Fyrst ég byrjaði á að tala um hversu mikið hefði verið um að vera í Sand- gerði núna í nóvember þá er kannski rétt að fara í smá ferðalag aftur í tímann og sjá breytingarnar sem hafa orðið. Förum aftur til ársins 1998 eða tuttugu ár aftur í tímann og í nóvember. Maður rekur strax augun í miklar breytingar. Byrjum í Grindavík. Núna árið 2018 hefur verið landað í Grindavík 275 tonnum. Árið 1998 var landað í sama mánuði 5038 tonnum. Þar af var loðna 3777 tonn. Þetta er allrosalegur munur, uppá 1650%. Fjöldi landana er líka mun meiri. Landanir árið 2018 eru ekki nema um tuttugu en árið 1998 voru 182 landanir. Ef við skoðum nokkra báta árið 1998 þá má nefna t.d. Þorstein Gíslason GK sem var með 40 tonn í sjö róðrum á línu. Reynir GK 39 tn í æatta róðrum á línu. Háberg GK, sem var á loðnu, var með 1878 tonn í þremur veiði- ferðum. Skarfur GK á línu 188 tonn í þremur. Kjói GK, sem var smábátur í eigu Stakkavíkur, var með 11,3 tonn í átta á línu. Þessi bátur heitir í dag Stakasteinn GK og er gerður út af Hirti Jóhannessyni, sem var áður skipstjóri á Njál RE. Alli Vill GK var með 11,2 tonn í fimm á línu. Í Keflavík núna árið 2018 þá hefur verið landað þar um 962 tonnum og af því þá er síld 900 tonn þannig að eftir standa 62 tonn af bolfiski. Fyrir tuttugu árum síðan þá var landað í Keflavík og Njarðvík 1368 tonnum í 258 löndunum. Sem fyrr voru margir netabátar að landa árið 1998 og t.d. var Styrmir KE með 51 tn í tíu. Happasæll KE, sem í dag er Grímsnes GK, var með 86,5 tn í 21 róðri. Ágúst Guðmundsson GK með 56 tn í sextán róðrum. Gunnar Hámundarsson GK 31,5 tonn í átján. Þorsteinn GK sextán var með 46 tn í tólf og Skúmur GK 111 var með 47 tn í fimmtán. Þuríður Halldórsdóttir GK á trolli var með 221 tonn í fjórum. Eyvindur KE á dragnót með 29 tonn í tólf. Sandgerði hefur um árabil verið stærsta löndunarhöfn landsins og það sést vel í nóvember 1998, því þá voru landanir 674 talsins og aflinn alls 3311 tonn og af því var loðnan 908 tonn svo að bolfiskur var því 2403 tonn. Þetta voru alls 83 bátar sem lönduðu afla í Sandgerði árið 1998 í nóvember og er það ansi mikill fjöldi. Skoðum nokkra báta. Línuveiði bátanna var mjög góð og sérstaklega hjá smábátunum. Eins og t.d. Funi GK sem var með 27 tonn í fimmtán róðrum. Baddý GK 31 tn í fjórtán. Dí- mon KE 20 tn í níu róðrum. Staðarvík GK 20 tn í níu og heitir þessi bátur í dag Guðrún Petrína GK. Mummi GK 20 tn í tíu og voru Mummi GK og Staðarvík í eigu Stakkavíkur. Siggi Bjarna GK 42 tn í tólf. Þessi bátur er í dag Addi Afi GK frá Sandgerði. Skarfaklettur GK 38 tn í fimmtán. Togarinn Berglín GK var með 292 tn í fjórum. Ársæll Sigurðsson HF 34 tn í 22 á netum. Guðfinnur KE 50 tn í fimmtán á net. Jón Gunnlaugs GK 29 tn í fjórum á trolli. Stafnes KE 107 tn í tólf á net og Svanur KE 30 tn í sextán á net. Freyja GK 40 tn í níu á línu. Ósk KE 67 tn í átján á netum og heitir þessi bátur í dag Maron GK. Baldur KE 22 tonn í tólf róðrum á dragnót. Sigþór ÞH 116 tn í fjórtán á línu, og Siggi Bjarna GK 71 tonn í sextán á dragnót. Eins og sést á þessu stutta yfirliti þá hefur mikið breyst í útgerð á Suðurnesjunum á aðeins tuttugu árum. Breyting sem því miður er ekki jákvæð. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is AFLA FRÉTTIR Gunnar Hámundarson GK með fullfermi af fiski til hafnar í Keflavík. Myndin er tekin 2007. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF (LÓLÓ) MAGNÚSDÓTTIR Fagragarði 12, Keflavík lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn 31. október síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Reynir Guðmannsson Guðrún Reynisdóttir Thelma Rún Birgisdóttir Aron Ingi Guðmundsson Íris Reynisdóttir Benóný Benónýsson Viktoría Benónýsdóttir Ísabella Benónýsdóttir Skór á alla fjölskylduna Skóbúðin leggur áherslu á að þjóna heimafólki vel Íbúar á svæðinu hafa alltaf getað keypt sér góða skó í gegnum árin. Þannig sérverslun hefur aldrei vantað. Fyrir margt löngu var það Erla skó sem rak einu skóverslunina í Keflavík en faðir hennar var Sigurbergur skóari. Síðar tóku Stella Baldvins og Magnúsína Guðmundsdóttir við þeirri skóverslun á Hafnargötu og ráku í mörg ár. Árið 2002 stofnuðu Hermann Helgason og Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir, eiginkona hans, HH skó eða Skóbúðina. Dalrós Jóhannsdóttir kom svo inn í reksturinn árið 2012. Nú hafa þær stöllur Dalrós og Steinunn tekið við keflinu saman og bjóða upp á skó fyrir alla fjölskylduna en þær eru einmitt staðsettar við Hafnargötuna í Keflavík og hafa gert undanfarin sextán ár. Verslunin heitir einfaldlega Skóbúðin. Gott að geta verslað heima „Já, það er fínt að gera hjá okkur enda erum við með rosalega gott úrval fyrir alla fjölskylduna. Við leggjum mikla áherslu á að þjóna fólkinu vel hérna suðurfrá, svo að fólk þurfi ekki að fara til Reykjavíkur til að kaupa sér skó. Við erum einnig samkeppnishæfar við verðið innfrá sem skiptir alla miklu máli,“ segir Dalrós. Þær Dalrós og Steinunn ákváðu að fara út í reksturinn saman til að auð- velda báðum reksturinn en þá geta þær skipt á milli sín dögum og átt stundum frí. Það hentar þeim vel. „Við verslum bara við íslenska heild- sala og fáum gott verð hjá þeim, það skiptir miklu máli. Úrvalið hjá okkur er mikið. Við höfum einnig getað út- vegað skóstærð 49 ef fólk þarf. Það er bara að koma við hjá okkur og biðja um svoleiðis sérpöntun. Við viljum þjónusta fólk eftir bestu getu, það er alltaf markmið okkar og að vera samkeppnishæfar við skóverslun í borginni. Nú er vinsælast að kaupa kuldaskó á krakkana og kuldaskó með mannbroddum fyrir fullorðna. Spariskór, mokkasíur og háir hælar fyrir konur á árshátíðina. Sætir inni- skór hafa alltaf verið vinsælir. Svo vorum við að fá inn leðurhanska fyrir konur og karla,“ segir Dalrós en hún stóð vaktina daginn sem blaðamaður rak inn nefið. Komdu niður í bæ Skóbúðin er í samtökunum Betri bær en þar eru verslanir Reykjanesbæjar að vinna saman að því að hvetja íbúa til að versla í heimabyggð. „Við erum í samtökunum Betri bær sem vilja auka verslun heimafólks. Ef þú getur keypt vöruna hér heima, þá ertu líka að spara þér tíma, eldsneytis- kostnað og í leiðinni ertu umhverfis- vænni. Ef fólk hugsar málið þá vilja allir hafa þessa þjónustu hér heima og ekki missa hana. Við getum skapað miklu meiri verslun með öllum þeim fjölda sem býr hérna núna og bærinn verður einnig meira lifandi. Fólk þarf að gera sér grein fyrir þessu og koma niður í bæ, labba inn í búðir og sjá allt úrvalið. Það er svo margt sem fæst hér suður með sjó. Fullt af flottri gjafa- vöru, blóm, húsgögn, skartgripir, skór og fatnaður fyrir alla fjölskylduna, rafmagnstæki og fleira og fleira. Ég nefni bara brot af því,“ segir Dalrós og hvetur einnig bæjaryfirvöld til að efla lifandi bæ með verðugu átaki. VERSLUN&VIÐSKIPTI Steinunn Ýr og Dalrós eigendur Skóbúðarinnar. VF-mynd: Marta

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.