Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 10

Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 10
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. Eyjólfur Helgi Þórarinsson – aldarminning Þegar lífshlaup Eyjólfs Helga Þórarinssonar, afa Eyja, er skoðað í tilefni þess að heil öld er liðin frá fæðingu hans, áttar maður sig betur á hversu mikill uppfinninga- maður hann var. Hann var stór- huga og framsýnn, hafði sterkan persónuleika og var á mörgum sviðum langt á undan sinni samtíð. Afi Eyji var fæddur 26. nóvember 1918 í Keflavík. Foreldrar hans voru Þórarinn Eyjólfsson, vélstjóri og síðar trésmiður, og Elínrós Bene- diktsdóttir, ljósmóðir. Hann fékk barnaskólamenntun í Keflavík, nam rafvirkjun á Akureyri og rafvélavirkjun eftir að hann flutt- ist aftur suður og tók sveinspróf í þeirri grein árið 1963. Hann var sjálfmenntaður tungumálamaður og las þau erlendu tæknirit sem hann komst yfir. Hann teiknaði og byggði mörg íbúðarhús á Suður- nesjum og var frumkvöðull í því að setja geislahitun í íbúðarhús. Eyjólfur var einn af stofnendum Keflavíkurverktaka, stjórnarfor- maður rafmagnsdeildarinnar um níu ára skeið, stjórnarformaður Ramma hf. og formaður Rafverk- takafélags Suðurnesja. Þá var hann virkur félagi í Frímúrarareglunni og hvatamaður að stofnun Sindra, stúku innan hreyfingarinnar, með aðsetur í Keflavík. Fyrirtæki hans Alternator hf. fram- leiddi alla tíð rafala (alternatora) og aðrar rafvélar auk almenns við- halds rafvéla. Við framleiðsluna var beitt nýjum hugmyndum og aðferðum sem Eyjólfur og starfs- menn hans útfærðu og þróuðu í samvinnu við erlenda aðila sem luku miklu lofsorði á tæknihug- myndir hins íslenska hugvitsmanns og samstarfsmanna hans. Lokaverkefni Eyjólfs, sem honum entist ekki ævin til að klára, var þróunarverkefni, rafeindastýrður riðstraumsrafall óháður snúnings- hraða aflvélar. Þennan rafal hafði Eyjólfur hugsað sér sem fram- tíðarlausn fyrir fiskiskipaflotann. Á þessum tíma skiptist hann á hugmyndum og búnaði við erlend fyrirtæki og enn í dag eru tækni- hugmyndir hans notaðar í hrað- astýringu á rafmótorum. Eiginkona Eyjólfs var María Her- mannsdóttir og eignuðust þau fimm börn; Eydísi, Elínrósu, Guðrúnu, Þórarinn og Önnu Maríu. Fyrir átti Eyjólfur dótturina Elsu Lilju. Við horfum til baka og minnumst afa Eyja með hlýju á 100 ára afmæl- isdegi hans. Hann var tíður gestur á heimili okkar, þáði oftar en ekki kaffitár með molasykri og miðlaði af visku sinni til okkar. Það var ómetanlegt á heimili, þar sem börnin voru fjögur, pabbinn á sjó og móðirin sá um heimilið, að eiga góðan afa. Afa sem ávallt var til staðar. Þetta var á þeim árum þegar allt var að gerast í Keflavík. Keflvískar hljómsveitir voru vin- sælar, fótboltaliðið sigursælt, útgerð í blóma auk mikilla áhrifa frá veru hersins á vellinum. Í minningunni var stutt í húmor- inn og gamansemi þó svo traust og þolinmæði væru einkennandi í fari hans. Hann var kletturinn hennar ömmu sem saknaði hans fram á sinn síðasta dag. Eyjólfur lést 30. maí 1987. Í þakkarkveðju frá aðstandendum til þeirra sem fylgdu afa Eyja var notast við ljóðlínur Gunnars Dal. Það skilur enginn augnablikið, fyrr en það er farið. Það skilur enginn nýja sköpun, fyrr en henni er lokið. Og enginn þekkir stund ham- ingjunnar, fyrr en hún er liðin. Minningin um einstakan uppfinn- ingamann og góðan afa lifir með okkur um aldur og ævi. María, Hafdís, Björg, Guðni BESTI SJÓNVARPSÞÁTTUR VÍKURFRÉTTA ER Suðurnesjamagasín Hreysti og heilsa eldri borgara í Sandgerði Öryggi og flugvernd á Keflavíkurflugvelli Magnús Orri fer á Special Olympics öll fimmtudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is Meðal efnis í þe ari viku Þú getur ei ig horft á Suðurnesjamagasín á vf.is Jólasælkeramarkaður á Park Inn Systur úr Oddfellow-stúkunni Eldey ætla að standa fyrir jólasælkeramarkaði á Park Inn hóteli í Reykjanesbæ fimmtudaginn 6. desember. Á boðstólum verður ýmislegt tengt jólum, allt heimalagað, s.s. sörur, marengsbotnar, rauðkál, paté, brauð, leiðisgreinar, jólasápur og margt fleira. Allur ágóði rennur til líknarmála. Bergrisinn hylltur á Garðskaga 1. desember Sá siður hefur myndast að á Fullveldisdaginn 1. desember hefur hópur fólks komið saman og haldið Landvættablót við Garðskagavita til að hylla bergrisann sem er landvættur Suðurlands. Safnast verður saman við Garð- skagavita. Athöfnin hefst klukkan 18:00 og mun Jóhanna Harðardóttir, Kjalnesingagoði, stýra henni. Landvættir hafa samkvæmt fornum sögum gætt landsins síðan í árdaga og í Landnámu segir frá því þegar Haraldur konungur Gormsson sem af illa þokkaður af Íslendingum sendi njósnara sinn í hvalslíki til landsins og landvættirnir tóku á móti honum og flæmdu burt frá landinu. Þegar hann kom vestur um land segir svo: „Brott fór hann þaðan og suður um Reykjanes og vildi ganga upp á Vikars- heiði. Þar kom á móti honum berg- risi og hafði járnstaf í hendi, og bar höfuðið hærra en fjöllin, og margir aðrir jötnar með honum.“ Þegar athöfninni sjálfri er lokið, hafa blótsgestir rifjað upp samning sinn um vernd landsins og bergrisinn hvattur til dáða. Þá safnast blótgestir saman í kaffi á Röstinni, veitinga- staðnum á Garðskaga. FJÖLBREYTT JÓLADAGSKRÁ Á VEGUM REYKJANESBÆJAR Jóladagskrá Reykjanesbæjar hefur verið birt í viðburðadagatali á vef bæjarins. Til hægðarauka má hér sjá helstu viðburði desembermánaðar og nokkuð ljóst að engum ætti að þurfa að leiðast á aðventunni. Jóladagskrá í Reykjanesbæ 2018 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER KL. 16.30: BÓKASAFN Bókakonfekt barnanna – upplestur fyrir börn. Arndís Þórarinsdóttir les upp úr Nærbuxnaverksmiðjunni og Katrín Ósk Jóhannsdóttir upp úr Mömmugull. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ráð- húskaffi býður upp á heitt súkkulaði og piparkökur. FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER KL. 20.00: BÓKASAFN Bókakonfekt – upplestrarkvöld fyrir fullorðna. Dagný Gísladóttir, Sig- ríður Hagalín Björnsdóttir og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER KL. 16.30: BÓKASAFN Bókabíó. Jólamyndin The Polar Ex- press sýnd í miðju Bókasafnsins. Myndin hentar fyrir börn frá sex ára aldri. LAUGARDAGAR 1. DESEMBER – 6. JANÚAR KL. 12.00–17.00: DUUS SAFNAHÚS Jólasveinaratleikur og óskalistar til jólasveinanna. Á aðventunni, frá 1. desember, stendur fjölskyldum til boða að fara í ratleik í Bryggjuhús- inu og leita að gömlu jólasveinunum sem hafa falið sig hér og þar um húsið. Þá er hægt og biðja Skessuna í hellinum um að koma óskalista til jólasveinanna. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER KL. 16.00: DUUS SAFNAHÚS Sveitarfélögin á Suðurnesjum bjóða til fagnaðar í Bíósal Duus Safnahúsa í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands. Frásagnir, tónlist og gaman- mál (Ari Eldjárn). SUNNUDAGUR 2. DESEMBER KL. 14.00–16.00: DUUS SAFNHÚS Skreytum saman í Bryggjuhúsi. Fjöl- skyldur búa til kramarhús, músa- stiga og jólahjörtu til að skreyta Stofuna í Duus fyrir gamaldags jóla- ball í anda Duusverslunarinnar sem haldið verður 9. desember. SUNNUDAGUR 2. DESEMBER KL. 17.00: TJARNARGÖTUTORG Tökum fagnandi á móti aðventunni með tendrun ljósanna á vinabæjar- jólatrénu frá Kristiansand á Tjarnar- götutorgi. Jólatónlist, skemmtiatriði fyrir börnin, jólasveinar, heitt kakó og piparkökur. SUNNUDAGUR 9. DESEMBER KL. 14.00–15.00: DUUS SAFNAHÚS Jólatrésskemmtun í stíl við þær sem voru haldnar í Bryggjuhúsi Duus fyrir 100 árum. Sungið og dansað í kringum jólatré, íslenskur jóla- sveinn og eitthvað gott í kramarhúsi. FIMMTUDAGURINN 13. DESEMBER KL. 16.30: BÓKASAFN Gítartónleikar á vegum Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. VIKAN 17.–22. DESEMBER: BÓKASAFN Fjölbreytt jólaföndur á hverjum degi fyrir alla fjölskylduna. SUNNUDAGUR 6. JANÚAR KL. 17.00: HÁTÍÐARSVÆÐI VIÐ HAFNARGÖTU 12 Þrumandi þrettándagleði. Blys- för frá Myllubakkaskóla, gengið að hátíðarsvæði við Hafnargötu í fylgd álfa og púka þar sem Grýla gamla tekur á móti gestum. Brenna og flugeldasýning, heitt kakó og piparkökur til að halda hita á mann- skapnum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.