Víkurfréttir - 22.11.2018, Page 12
12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.
„Þessi bók hefur verið lengi í undir-
búningi. Ég byrjaði að taka myndir í
hana fyrir tólf árum. Sumarið 2006
fór ég að fara í gönguferðir hér á
Reykjanesskaganum. Ég þekkti
Reykjanesskagann ekki mikið. Ég
hafði t.a.m. aldrei komið í Eldvörp
eða skoðað svæðið í Krýsuvík. Ég varð
fljótt heillaður af því sem fyrir augu
bar. Þetta var sífellt að koma mér á
óvart og skaginn leynir á sér“.
ALLTAF VERIÐ
NÁTTÚRUUNNANDI
Hvað varð til að kveikja áhuga þinn
á Reykjanesskaganum?
„Ég hef alltaf verið náttúruunnandi en
þarna var ég kannski kominn á þann
stað í lífinu að ég hafði meira svig-
rúm til að stunda útivist. Þá fór þetta
vel saman við ljósmyndaáhugann og
myndavélin er alltaf með í för. Ég fór
því að ljósmynda það sem fyrir augu
bar og reyna að koma því á framfæri
því mér fannst og hefur í raun alltaf
fundist að fleiri þurfi að vita hvað
Reykjanesskaginn hefur að geyma.
Hann er stórlega vanmetinn sem
náttúruparadís.
Árið 2010 fór ég fyrst að hugsa um
það að gefa út svona bók. Ég fór af
stað í verkefnið en svo varð ekkert
úr því. Ég hef síðan af og til verið að
hugsa um þetta. Verkefnið hefur ekki
látið mig í friði en mér fannst alltaf
eitthvað vanta og ég næði ekki nógu
vel utan um það.
Það var síðan þegar ég hafði farið í
alla hraunrásarhellana og myndað
svæðin með dróna að mér fannst ég
vera kominn með nægan efnivið í
bókaútgáfuna. Þá tók reyndar við
togstreita um það hvort ég ætlaði
að gefa bókina út sjálfur með þeirri
fyrirhöfn sem því fylgir eða hvort ég
vildi fara auðveldu leiðina og fá mér
útgefanda.
Fyrir tæpu ári síðan varð ákveðin at-
burðarás í mínu lífi sem gaf mér spark
í afturendann og útgáfa ljósmynda-
bókarinnar varð eitthvað sem ég vildi
ekki eiga eftir þegar minn síðasti
dagur myndi renna upp. Maður veit
svo sem aldrei hvenær hann kemur.
Maður hefur enga tryggingu fyrir
því að maður verði hér á morgun eða
hinn. Ég ákvað því að drífa í þessu og
koma bókinni frá mér.“
Þegar bókinni er flett þá sér maður
að þetta eru ekki hinir hefðbundnu
ferðamannastaðir á Reykjanesi sem
þú hefur verið að mynda.
„Nei, það var alltaf markmiðið að
sýna aðra hlið á Reykjanesskaganum.
Þú sérð ekki norðurljósamyndir eða
álfubrúnna. Sumir staðir eru þarna
eins og Reykjanesið en þá er ég að
sýna önnur sjónarhorn. Ég vil með
bókinni varpa öðru ljósi á Reykja-
nesskagann og sýna staði sem færri
hafa séð og vita minna um“.
Þú hefur verið að berjast fyrir
Reykanesskagann og tilvist hans
sem ósnortinnar náttúru.
„Ég hef bent á það að vestur á Snæ-
fellsnesi er svæði sem þótti það merki-
legt og fallegt að það þótti ástæða
til að stofna þar þjóðgarð. Á Reykja-
nesskaganum finnur þú allt sem
er í þessum þjóðgarði nema jökul-
inn, hann kemur kannski á næsta
kuldaskeiði. Þetta svæði er bara það
merkilegt, sérstaklega jarðfræðilega.
Ég hef verið talsmaður þess að við
gefum svæðinu betur gaum með til-
liti til náttúruverndar og þessi bók
er kannski viðleitni til þess. Hún er
kannski ekki yfirlýsing frá mér í þá
veru en vonandi eru myndirnar það
áhrifamiklar að þær geti vakið ein-
hverja til umhugsunar og þá er ég
ánægður.“
STAÐA REYKJANESSKAGANS
ALVEG AFLEIT
Ég veit að fyrstu skrefin að þessari
bók eru gönguferðir þínar um svæði
sem komið hefur til tals að fórna.
„Já, já. Staðan á Reykjanesskaganum
í Rammaáætlun er náttúrulega alveg
afleit. Að af þeim nítján svæðum
sem þar hafa verið til umfjöllunar
séu einungis þrjú komin í verndar-
flokk. Allt hitt er annað hvort komið
í nýtingu eða á leiðinni þangað. Þetta
er eitthvað sem ég hef viljað að fólk
velti fyrir sér.“
Það er mikil vinna á bakvið þessa
ljósmyndabók. Þú hefur farið í
margar ljósmyndaferðir og oft um
sömu svæðin.
„Já. Eins og ég segi, þá er
þetta tólf ára
vinna. Ég fer
oft á sömu
svæðin því
þetta er aldr-
ei eins. Birtan er mismunandi. Maður
finnur önnur sjónarhorn og stundum
rekst maður á eitthvað sem sást ekki
áður. Svæðið er alltaf að koma manni
á óvart. Eins með hraunrásarhellana.
Það er heimur sem flestum er hulinn
og fáir vita um og fæstir hafa séð.
Hellarnir geyma náttúru sem er svo
stórbrotin og falleg. Með því að sýna
hellana er ég að sýna hversu stór-
brotin náttúra Reykjanesskagans er
í öllu tilliti.“
Þessar ferðir þínar ofan í hellana
hafa skilað mögnuðum myndum.
Ein þeirra varð þó þannig að hún
hefði getað orðið til þess að þessi
bók kæmi ekki út. Þú rataðir ekki
út eins og sjá má í myndskeiði sem
þú settir á Youtube og hefur fengið
mikið áhorf.
„Maður hefur lent í ýmsum hremm-
ingum eins og í þessari frægu hella-
ferð sem er reyndar orðin heimsfræg.
Ég villtist neðanjarðar en þetta er
kannski ekki eins svakalegt og mynd-
skeiðið gefur til kynna. Það var veru-
lega óþægilegt að vera villtur og rata
ekki út. Ég var með félaga mína með
mér uppi á yfirborðinu sem hefðu
þá gert einhverjar ráðstafanir til að
ná í mig.
Við gerum þetta þannig í hellaferðum
að ég fer á undan í könnunarleið-
angur. Það er óþarfi að allir séu að
græja sig niður ef þetta er ekkert.
Þarna var ég kannski of ákafur. Ég
var alltaf að gá hvað væri handan við
næstu beygju. Svo var ég allt í einu
lentur í einhverju völundarhúsi sem
ég rataði ekki útúr. Það er reyndar
sérstakt að íslenskir hellar séu svona
flóknir. Þeir eru ekki eins og erlendu
hellarnir sem eru margra kílómetra
langir. Íslensku hellarnir eru mun
smærri og yfirleitt mun einfaldari.
Svo eru einn og einn sem geta verið
völundarhús. Ég hefði alltaf ratað
út að lokum.“
LITADÝRÐ Í MYRKRINU
Hvað er það við hellana sem fær
menn til að troða sér ofan í þrönga
holu og hvað blasir við þarna niðri?
„Það er kannski það sem felst í myrkr-
inu. Þetta er svo heillandi náttúra
þessar hraunmyndanir sem þú finnur
ekki uppi á yfirborðinu. Hellarnir eru
fjölbreyttir og hver með sín sérkenni
og alltaf að koma manni á óvart.
Þó maður sé að fara aftur í sama
hellinn þá er maður að sjá
eitthvað nýtt, eitthvað sem
maður sá ekki áður“.
Það sést í bókinni að það er mikil
litadýrð þarna niðri.
„Já, hún magnast í ljósunum og það
er það sem gerir það líka skemmtilegt
að mynda myrkrið. Þú ert í raun ekki
að vinna með ljós, heldur myrkur. Öll
lýsing er þannig að þú hefur hana
algjörlega í hendi þér. Hún ræðst
algjörlega af þeim ljósgjafa sem þú
kemur með niður í myrkrið. Það gerir
þetta líka spennandi og skemmtilegt.“
Þessir hellar eru perlur sem þið
látið í raun ekki vita hvar eru.
„Það er ekkert sem bannar þér að
fara og finna þá ef þú hefur áhuga,
en ekki spyrja mig hvar þeir eru,“
segir Ellert og brosir.
Náttúruljósmyndarinn
Ellert Grétarsson er
vel kunnur fyrir glæsi-
legar ljósmyndir sínar
af Reykjanesskaga.
Hann hefur ljósmyndað
náttúru og landslag
Reykjanesskagans sam-
fellt í 12 ár. Afraksturinn
hefur nú komið út í veg-
legri ljósmyndabók sem
bókaútgáfan Nýhöfn
gefur út. Bókin hefur
einnig fengið fljúgandi
start og verið ofarlega á
sölulistum frá því hún
kom út á dögunum.
SÝNIR AÐRA HLIÐ Á REYKJANESSKAGANUM
NÝ LJÓSMYNDABÓK ELLERTS GRÉTARSSONAR
• Ellert Grétarsson vann í tólf ár að nýrri ljósmyndabók um náttúru og undur Reykjanesskagans •
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
VIÐTAL
„Útgáfa ljósmyndabókar-
innar varð eitthvað sem ég
vildi ekki eiga eftir þegar
minn síðasti dagur myndi
renna upp“.
Hagavíkurlaugar á Hengilssvæðinu í nánd við Þingvallavatn.Ívar Gissurarson útgefandi og Ellert Grétarsson ljósmyndari.