Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 13
13MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fékk sannarlega góða heimsókn í síðustu
viku þegar bandarísku mæðgurnar Anne Hemmingway og Ellen Beam litu
stuttlega við. Svo skemmtilega vill til að fyrir réttum 60 árum, hinn 15.
nóvember árið 1958, lenti flugvél TWA með Ellen og Gordon, eiginmann
hennar, innanborðs þar eð Ellen, sem var gengin átta mánuði með
sitt fyrsta barn, hafði misst vatnið. Þau voru flutt í hendingskasti
niður á Sjúkrahús Keflavíkur, eins og það hét þá, þar sem Anne kom
í heiminn. Sagt er frá þessu á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Eftir vikulanga sængurlegu hélt fjöl-
skyldan aftur heim á leið vestur um
haf, en nú eru þær komnar aftur á
fornar slóðir, á sextugsafmæli Anne.
Ellen, sem er nú 89 ára, mundi að
sjálfsögðu vel eftir atburðum og þrátt
fyrir að húsnæðið í gömlu byggingu
HSS hafi breyst mikið í gegnum tíðina
rann hún á það herbergi þar sem hún
lá á þessum tíma. Þar er nú röntgen-
deild HSS staðsett.
„Ég var á jarðhæð og horfði út um
gluggann á börn að leik,“ sagði Ellen
og hefur eflaust horft út að Barna-
skólanum í Keflavík sem nú er Myllu-
bakkaskóli.
Saga hennar þennan dag var næstum
reyfarakennd. Þau hjónin höfðu verið
á ferðalagi um Evrópu og hún átti
ekki von á sér fyrr en mánuði síðar.
Skömmu eftir að vélin fór í loftið frá
París fór hins vegar allt að gerast, hún
tók sóttina en sökum slæms skyggnis
gat vélin hvorki snúið við né lent á
Bretlandseyjum.
„Svo var eins og opnaðist niður í
gegnum skýin fyrir ofan Keflavík,“
rifjaði Ellen upp, flugvélinni var
lent þar og stefnan tekin á sjúkra-
húsið sem hafði verið stofnað
einungis fjórum árum áður.
Á leiðinni niður eftir varð svo
bíllinn sem þau voru í bensínlaus,
en sem betur fer gerðist það nálægt
bensínstöð þannig að þau voru fljót
að dæla á og koma sér á spítalann.
„Það var eins og Guð hafi bara ætlað
okkur að komast hingað og eignast
barnið,“ sagði Ellen.
Þegar þangað var komið tóku tvær
konur á móti Ellen, önnur þeirra var
ljósmóðirin Ásta Hermannsdóttir.
„Mér leist nú ekki á að það væri
enginn læknir þarna inni hjá okkur,
en Gordon, maðurinn minn, samdi
við lækninn um að þeir væru í dyra-
gættinni þar sem ég sæi til þeirra.
Svo voru þær alveg yndislegar og
allt gekk svo vel,“ sagði Ellen sem
eignaðist þarna hana Anne sína, sem
var spræk og hraust þrátt fyrir að vera
smávaxin, enda fæddist hún mánuði
fyrir tímann eins og fyrr segir.
Ellen og Anne lágu inni í eina viku
eftir fæðinguna, en eftir það hélt litla
fjölskyldan heim. Ævintýrið þeirra
hafði þó komist í fréttirnar, bæði hér
heima og vestanhafs.
Á meðan heimsókninni stóð hittu þær
mæðgur Halldór Jónsson, forstjóra
HSS, og Jónína Birgisdóttir, deildar-
stjóri ljósmæðravaktar, fylgdi þeim
um salarkynnin.
Sérstaklega þótti þeim þó ánægjulegt
að hitta Sólveigu Þórðardóttur, sem
starfaði hjá HSS um áratugaskeið, frá
árinu 1956 allt fram til ársloka 2010.
Sólveig, sem var lengst af deildarstjóri
fæðingadeildarinnar, var sjálf ekki
viðstödd fæðingu Anne en gat meðal
annars borið kennsl á starfsfólk sem
var á ljósmyndum sem mæðgurnar
höfðu með sér og sagt frá starfsem-
inni þessi fyrstu ár Sjúkrahússins.
Þegar Sólveig spurði Ellen hvort
henni hafi liðið illa eftir fæðinguna,
verandi svo langt að heiman þar sem
þau þekktu engan, þvertók Ellen fyrir
það. Dvölin hafi verið yndisleg.
Hún hafi kynnst íslenskri konu sem
átti barn sjúkrahúsinu á sama tíma.
Sú átti amerískan mann, ofan af her-
stöð, sem útvegaði Gordon svefnstað
og Ellen fékk hjá þeim útvarp til að
hlusta á tónlist og þess háttar.
Ellen og Anne voru sammála um að
heimsóknin hafi haft mikil áhrif á
þær og voru afar þakklátar fyrir mót-
tökurnar sem þær fengu.
„Okkur fannst eins og við þyrftum að
koma hingað,“ sagði Ellen. „Við eigum
merkilega sögu sem okkur fannst við
þurfa að segja.“
Starfsfólk HSS þakkaði þeim einnig
fyrir yndislega heimsókn og bauð
þær velkomnar aftur hvenær sem er.
Heimsótti fæðingarstað sinn á HSS
60 árum síðar
Ellen og Anne hittu meðal
annarra Jónínu Birgisdóttur,
deildarstjóra Ljósmæðravaktar
HSS. Hér eru þær saman í
herberginu þar sem Anne
fæddist, 60 árum áður.
Mæðgurnar höfðu sérstaka ánægju af því að hitta Sólveigu
Þórðardóttur sem vann á Sjúkrahúsinu í Keflavík og HSS
um áratugaskeið. Hún sagði mæðgunum frá starfseminni
á sjúkrahúsinu um það leyti sem Anne fæddist þar.
Mæðgurnar Anne Hemingway og
Ellen Beam heimsóttu HSS 60
árum eftir að Anne fæddist þar.
Það var eins og Guð
hafi bara ætlað okkur
að komast hingað og
eignast barnið ...
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Lausar kennarastöður vegna forfalla
Staða umsjónarkennara í 1. bekk og umsjónarkennara í
9. bekk þar sem aðalkennslugreinar eru íslenska og danska.
Umsóknarfrestur er til 1. desember
en ráðið er í stöðurnar frá 1. janúar 2019 og út skólaárið.
Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 510
nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grinda-
víkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð
áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra
þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera
virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá
nánar á heimasíðu skólans www.grindavik.is/grunnskolinn.
Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í
grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mann-
legum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru
sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2,
240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir
skólastjóri í síma 420-1200.