Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 13

Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 13
13MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fékk sannarlega góða heimsókn í síðustu viku þegar bandarísku mæðgurnar Anne Hemmingway og Ellen Beam litu stuttlega við. Svo skemmtilega vill til að fyrir réttum 60 árum, hinn 15. nóvember árið 1958, lenti flugvél TWA með Ellen og Gordon, eiginmann hennar, innanborðs þar eð Ellen, sem var gengin átta mánuði með sitt fyrsta barn, hafði misst vatnið. Þau voru flutt í hendingskasti niður á Sjúkrahús Keflavíkur, eins og það hét þá, þar sem Anne kom í heiminn. Sagt er frá þessu á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Eftir vikulanga sængurlegu hélt fjöl- skyldan aftur heim á leið vestur um haf, en nú eru þær komnar aftur á fornar slóðir, á sextugsafmæli Anne. Ellen, sem er nú 89 ára, mundi að sjálfsögðu vel eftir atburðum og þrátt fyrir að húsnæðið í gömlu byggingu HSS hafi breyst mikið í gegnum tíðina rann hún á það herbergi þar sem hún lá á þessum tíma. Þar er nú röntgen- deild HSS staðsett. „Ég var á jarðhæð og horfði út um gluggann á börn að leik,“ sagði Ellen og hefur eflaust horft út að Barna- skólanum í Keflavík sem nú er Myllu- bakkaskóli. Saga hennar þennan dag var næstum reyfarakennd. Þau hjónin höfðu verið á ferðalagi um Evrópu og hún átti ekki von á sér fyrr en mánuði síðar. Skömmu eftir að vélin fór í loftið frá París fór hins vegar allt að gerast, hún tók sóttina en sökum slæms skyggnis gat vélin hvorki snúið við né lent á Bretlandseyjum. „Svo var eins og opnaðist niður í gegnum skýin fyrir ofan Keflavík,“ rifjaði Ellen upp, flugvélinni var lent þar og stefnan tekin á sjúkra- húsið sem hafði verið stofnað einungis fjórum árum áður. Á leiðinni niður eftir varð svo bíllinn sem þau voru í bensínlaus, en sem betur fer gerðist það nálægt bensínstöð þannig að þau voru fljót að dæla á og koma sér á spítalann. „Það var eins og Guð hafi bara ætlað okkur að komast hingað og eignast barnið,“ sagði Ellen. Þegar þangað var komið tóku tvær konur á móti Ellen, önnur þeirra var ljósmóðirin Ásta Hermannsdóttir. „Mér leist nú ekki á að það væri enginn læknir þarna inni hjá okkur, en Gordon, maðurinn minn, samdi við lækninn um að þeir væru í dyra- gættinni þar sem ég sæi til þeirra. Svo voru þær alveg yndislegar og allt gekk svo vel,“ sagði Ellen sem eignaðist þarna hana Anne sína, sem var spræk og hraust þrátt fyrir að vera smávaxin, enda fæddist hún mánuði fyrir tímann eins og fyrr segir. Ellen og Anne lágu inni í eina viku eftir fæðinguna, en eftir það hélt litla fjölskyldan heim. Ævintýrið þeirra hafði þó komist í fréttirnar, bæði hér heima og vestanhafs. Á meðan heimsókninni stóð hittu þær mæðgur Halldór Jónsson, forstjóra HSS, og Jónína Birgisdóttir, deildar- stjóri ljósmæðravaktar, fylgdi þeim um salarkynnin. Sérstaklega þótti þeim þó ánægjulegt að hitta Sólveigu Þórðardóttur, sem starfaði hjá HSS um áratugaskeið, frá árinu 1956 allt fram til ársloka 2010. Sólveig, sem var lengst af deildarstjóri fæðingadeildarinnar, var sjálf ekki viðstödd fæðingu Anne en gat meðal annars borið kennsl á starfsfólk sem var á ljósmyndum sem mæðgurnar höfðu með sér og sagt frá starfsem- inni þessi fyrstu ár Sjúkrahússins. Þegar Sólveig spurði Ellen hvort henni hafi liðið illa eftir fæðinguna, verandi svo langt að heiman þar sem þau þekktu engan, þvertók Ellen fyrir það. Dvölin hafi verið yndisleg. Hún hafi kynnst íslenskri konu sem átti barn sjúkrahúsinu á sama tíma. Sú átti amerískan mann, ofan af her- stöð, sem útvegaði Gordon svefnstað og Ellen fékk hjá þeim útvarp til að hlusta á tónlist og þess háttar. Ellen og Anne voru sammála um að heimsóknin hafi haft mikil áhrif á þær og voru afar þakklátar fyrir mót- tökurnar sem þær fengu. „Okkur fannst eins og við þyrftum að koma hingað,“ sagði Ellen. „Við eigum merkilega sögu sem okkur fannst við þurfa að segja.“ Starfsfólk HSS þakkaði þeim einnig fyrir yndislega heimsókn og bauð þær velkomnar aftur hvenær sem er. Heimsótti fæðingarstað sinn á HSS 60 árum síðar Ellen og Anne hittu meðal annarra Jónínu Birgisdóttur, deildarstjóra Ljósmæðravaktar HSS. Hér eru þær saman í herberginu þar sem Anne fæddist, 60 árum áður. Mæðgurnar höfðu sérstaka ánægju af því að hitta Sólveigu Þórðardóttur sem vann á Sjúkrahúsinu í Keflavík og HSS um áratugaskeið. Hún sagði mæðgunum frá starfseminni á sjúkrahúsinu um það leyti sem Anne fæddist þar. Mæðgurnar Anne Hemingway og Ellen Beam heimsóttu HSS 60 árum eftir að Anne fæddist þar. Það var eins og Guð hafi bara ætlað okkur að komast hingað og eignast barnið ... HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Lausar kennarastöður vegna forfalla Staða umsjónarkennara í 1. bekk og umsjónarkennara í 9. bekk þar sem aðalkennslugreinar eru íslenska og danska. Umsóknarfrestur er til 1. desember en ráðið er í stöðurnar frá 1. janúar 2019 og út skólaárið. Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 510 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grinda- víkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans www.grindavik.is/grunnskolinn. Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mann- legum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.