Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Page 16

Víkurfréttir - 22.11.2018, Page 16
16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM Menningarverðlaun Reykjanesbæjar afhent í 22. sinn Sossa fékk Súluna BLACK FRIDAY Afslátturinn gildir ekki af merktri tilboðsvöru. Leiðsögn um sýninguna Líkami, efni og rými – Oft var þörf ... Oft var þörf en nú gæti verið nauðsyn að fá leiðsögn um nýopnaða sýningu Listasafnsins „Líkami, efni og rými.“ Það er nú einu sinni þann- ig að list er misaðgengileg fólki en getur stundum verið spurning um þjálfun. Þetta þekkjum við vel í tengslum við tónlist. Öll hlustum við á tónlist af einhverju tagi en getum eflaust verið sammála um að það þurfi ákveðna þjálfun til að læra að meta klassíska tónlist, djass, blús eða aðrar tónlistarstefnur sem eru okkur ekki eins tamar. Það sama gildir um myndlist og því getur okkur brugðið við þegar við sjáum sýningu sem virðist okkur mjög framandi. Að sama skapi er það líka mjög spennandi og ákveðin áskorun í því falin að reyna að upplifa eða skilja hverju listamaðurinn vill reyna að koma á framfæri með list sinni. Þannig eru allir þeir sem áhuga hafa hvattir til að mæta á leiðsögn lista- konunnar Eyglóar Harðardóttur og sýningarstjórans Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur n.k. sunnudag, 25. nóvember, kl. 15 í sýningarsal Lista- safns Reykjanesbæjar í Duus Safna- húsum. LJÓS OG NÁTTÚRA REYKJANESSKAGA Í BÍÓSAL DUUS Nýjar ljósmyndir eftir Jón Rúnar Hilmarsson eru á sýningu í Bíósal Duus Safnahúsa. Sýningin stendur til 13. janúar 2019. Á sýningunni eru myndir sem sýna landslag og náttúru Reykjanesskagans. Mynd- irnar voru teknar á mismunandi árstíðum og tímum dags á síðustu tveimur árum. Höfundur stefnir að útgáfu ljósmyndabókar næsta vor og verða þessar myndir í þeirri bók sem kemur til með að dekka allt Ísland.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.