Víkurfréttir - 22.11.2018, Blaðsíða 19
19MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
Rokksafni Íslands hefur formlega verið afhent stytta af Barða Jóhannssyni, aðalsprautu hljómsveitarinnar Bang
Gang. Styttan var upprunalega framleidd fyrir og sýnd í Triennale sem er hönnunarsafn í Milano á Ítalíu. Styttan
er nú komin til landsins og kemur til með að standa í Rokksafni Íslands.
Hljómsveitin Bang Gang með tónlistarmanninn Barða
Jóhannssyni fremstan í fararbroddi fagnar um þessar
mundir afmælisári þriggja platna sinna en Ghosts from
the Past er tíu ára, Something Wrong er fimmtán ára og
platan You er tuttugu ára.
Af þessu tilefni var efnt til boðs á Rokksafni Íslands í
Hljómahöll. Á viðburðinum var nýtt myndband Bang
Gang frumsýnt og hljómsveitin flutti jafnframt nokkur
af sínum bestu lögum.
Við þetta tækifæri var Bang Gang skipuð að hluta af
landsliðinu í tónlist. Það eru þau Hrafn Thoroddsen,
Steingrímur Teague, Kristinn Snær Agnarsson, Bjarni
Þór Jensson, Esther Talía Casey og Barði Jóhannsson.
Verndari kvöldsins og kynnir var Óttarr Proppé en þeir
Helgi Sæmundur (Úlfur Úlfur) og Henrik (Singapore
Sling) sáu um hljóðmyndina á meðan á partýinu stóð.
Barði í Bang Gang
orðinn safngripur í Reykjanesbæ Bang Gang kom í fyrsta skipti fram á Íslandi í um tvö ár þegar efnt var til örtónleika í Stapa á föstudagskvöld.Gagnvirk sýning um Barða Jóhannsson er nú aðgengileg á Rokksafni Íslands.
Það kom í hlut Barða Jóhannssonar og Tómasar Young,
framkvæmdastjóra Rokksafns Íslands, að afhjúpa styttuna
af Barða sem nú er á Rokksafninu. VF-myndir: Hilmar Bragi
Starfsmaður í mötuneyti viðhaldsþjónustu
Icelandair í Keflavík
Við leitum að öflugum og jákvæðum starfsmanni í Eldey, nýtt mötuneyti starfsmanna í flugskýli okkar.
Mötuneytið tók til starfa í haust og er öll aðstaða til fyrirmyndar.
STARFSSVIÐ:
| Undirbúningur máltíða og frágangur
| Almenn þrif og frágangur á hráefni
| Matargerð
| Þátttaka í gerð matseðla
HÆFNISKRÖFUR:
| Áhugi á matargerð
| Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur
| Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
| Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
| Góð öryggisvitund
Gott væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 28. nóvember 2018.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnar Marinó Kristjánsson, yfirmaður mötuneytis, ragnarmarino@icelandair.is
Sveina Berglind Jónsdóttir, mannauðsstjóri, sveinaj@icelandair.is