Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 20

Víkurfréttir - 22.11.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Fræðslusvið – sálfræðingur í tímabundið 50% starf Akurskóli – skólaliði Heilsuleikskólinn Garðasel – leikskólakennari Njarðvíkurskóli – kennari í 80% afleysingastöðu Fræðslusvið – talmeinafræðingur í tímabundið hlutastarf Reykjaneshöfn – hafnsögumaður Málefni fatlaðs fólks – gefandi umönnunarstarf á heimili ungs manns Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Viðburðir í Reykjanesbæ Bókasafn Reykjanesbæjar - viðburðir framundan Föstudagurinn 23. nóvember kl. 16.30: Bókakonfekt barnanna – upplestur fyrir börn. Höfundar Mömmugull og Nærbuxnaverksmiðjan lesa upp úr bókum sínum. Fimmtudagurinn 29. nóvember kl. 20: Bókakonfekt 2018. Höfundarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Dagný Maggýjar lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Allir velkomnir. Duus Safnahús - þrjár nýjar sýningar Þrjár nýjar sýningar hafa verið opnaðar í Duus Safnahúsum. Líkami, efni og rými: samsýning í listasafni, Ljós og náttúra: ljósmyndasýning í Bíósal og Við munum tímana tvenna: 40 ára afmælissýning byggðasafnsins í Gryfju. Verið velkomin. G r ó fi n 1 9 | K e fl a v í k | S í m a r 4 5 6 7 6 0 0 | 8 6 1 7 6 0 0 Varahlutir í bílinn Tímareimar og vatnsdælur Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar Rafgeymar Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir Kúplingar Verksmiðjuábyrgð á þínum bí l er tryggð með vottuðum varahlutum frá Sti l l ingu Smursíur Atvinnutekjur eldri borgara skerði ekki lífeyrisgreiðslur Kannanir meðal eldri borgara hafa sýnt að nær öllum, eða 97%, finnst að auðvelda ætti þeim sem komnir eru á lífeyrisaldur að vera virkir á at- vinnumarkaði. Atvinnuþátttaka eldri borgara færir þeim aukna virkni í samfélaginu. Aukin virkni stuðlar að vellíðan og lífsánægju og því virkara sem eldra fólk er því meiri lífsgleði upplifir það. Stjórnvöld verða að vera meðvituð um þetta. Þau verða að vera meðvituð um stöðu, væntingar og viðhorf aldraðra þegar kemur að atvinnuþátttöku og jákvæðum áhrifum hennar á líðan eldri borgara. Eldri borgarar nú á tímum eru betur á sig komnir líkamlega en áður fyrr, fólk getur vænst þess að lifa lengur og þess vegna er þörf á að koma á móts við aldraða til að þeir haldi áfram að vera virkir í samfélag- inu og haldi sjálfræði og sjálfstæði sínu eins lengi og kostur er. Þeir sem hafa áhuga og getu til að vinna lengur ættu að fá frekari tækifæri með meiri sveigjanleika um starfslok og atvinnuþáttöku eftir að taka lífeyris hefst. Eldra starfsfólk hefur oft mikla þekkingu og starfsreynslu sem getur nýst vel á mörgum vinnustöðum og er það bæði hagur fyrir þá sem vilja halda áfram að vera á vinnumarkaðinum sem og fyrir samfélagið í heild sinni. Rannsóknir hafa sýnt að það að vera í félagsskap með öðru fólki getur veitt eldra fólki mikla ánægju. Bætir lífsgæði og er þjóðhagslega hagkvæmt Miðflokkurinn hefur lagt ríka áherslu á það að afnema tekjutengingu bóta vegna launatekna eldri borgara og flytur flokkurinn breytingartillögu við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar, sem nú er til umræðu á Alþingi, þess efnis að atvinnu- tekjur eldri borgara skerði ekki lífeyris- greiðslur. Rannsóknar- setur verslunarinnar gerði rannsókn fyrir nokkrum árum um áhrif þess á ríkissjóð ef atvinnuþáttaka eldri borgara yrði aukin og ef aldurstengdar bætur yrðu ekki skertar þó að viðkomandi hefði launatekjur. Niðurstaðan var sú að rík- issjóður mundi hagnast vegna aukinna skatttekna. Ef tekjutenging á bætur eldri borgara yrði afnumin myndi það hvetja þá til að koma í auknum mæli aftur inn á vinnumarkaðinn. Skortur er á vinnuafli hér á landi eins og í verslun og þjónustu og hefur þurft að flytja inn erlent vinnuafl í stórum stíl. Mörgum þessara starfa gætu eldri borgarar sinnt. Eldri borgarar eiga að geta tekið þátt á vinnumarkaði eins og hverjum og einum hentar án þess að þurfa að taka á sig skerðingu á lífeyri. Það bætir lífsgæði þeirra og er þjóðhagslega hagkvæmt. Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Unuhátíð í Útskálakirkju á sunnudag Unuhátíð verður haldin í Útskála- kirkju í Garði sunnudaginn 25. nóvember kl. 17:00. Hátíðin er til heiðurs Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst. Hörður Gíslason frá Sólbakka minn- ist Unu og samferðafólks hennar í Garðinum. Veitt verða verðlaun fyrir ljóðasamkeppni Dagstjörnunnar. Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópran, syngur. Guðmundur Örn Jóhanns- son, bassi, syngur. Einar Hugi Böðvarsson leikur á orgel og píanó. Ljósmyndabók sem Guð- mundur Magnússon hefur unnið verður til sýnis og sölu Hollvinafélag Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst stendur að viðburðinum. Að- gangseyrir er 2.500 krónur og hægt er að leggja inn á reikning Hollvina Unu: 0142-05-71020, kt. 590712-0190. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? BJARKI SÆÞÓRSSON: „Kertasníkir því hann er svo svakalega gjafmildur.“ BOJANA MEDIC: „Sá sem kemur seinastur, Kertasníkir, en ég er alltaf spenntust fyrir honum því ég veit að hann gefur mér mest í skóinn.“ ERNA KRISTÍN BRYNJARSDÓTTIR: „Hurðaskellir af því að hann er alltaf með svo mikil læti.“ KÁRI GUÐMUNDSSON: „Kertasníkir því hann gefur alltaf mest.“ SPURNING VIKUNNAR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.