Víkurfréttir - 22.11.2018, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. nóvember 2018 // 45. tbl. // 39. árg.
Tilbúinn í stærra hlutverk
- Maciej er hinn svissneski vasahnífur Njarðvíkinga
- Fjölhæfnin hans helsti kostur segir þjálfarinn
Maciej Baginski er að eiga sitt besta tímabil á ferlinum. Þrátt fyrir mikla
dýpt í Njarðvíkurliði sem trónir á toppi Domino’s-deildar karla í körfubolta,
þá hefur þessi 23 ára pólski strákur tekið að sér leiðtogahlutverk í liðinu
og er að blómstra. „Ég er að byrja ágætlega en á mikið inni ennþá. Það er
bara nóvember og við erum allir að læra inn á hvern annan,“ segir þessi
hógværi leikmaður sem er þekktur fyrir mikið jafnaðargeð. Nú er að hefj-
ast áttunda tímabil Maciej í efstu deild, sem er ótrúlegt miðað við að hann
hefur verið að æfa körfubolta í þrettán ár, en hann byrjaði tíu ára gamall.
Á dögunum hélt Maciej tölu og miðl-
aði af sinni reynslu á viðburði UMFÍ
þar sem fjallað var um börn af er-
lendum uppruna í íþróttum. Foreldar
hans fluttu til Íslands þegar hann var
fimm ára, en í gegnum hans íþrótta-
iðkun náðu þau betur að tengjast
samfélaginu á Íslandi.
„Það voru kannski smá fordómar
þarna þegar ég var að byrja fyrst
en maður eignaðist fljótt vini. Það
skipti engu máli, þannig séð, að ég
væri pólskur. Það var auðveldara að
passa inn í þar sem ég kunni tungu-
málið,“ segir Maciej en foreldrar hans
voru duglegir að mæta á alla leiki.
Honum vegnaði vel og fékk fjölda
tækifæra vegna körfuboltans. „Þetta
gerði bara svo mikið fyrir mig. Allar
þessar landsliðsferðir og allt fólkið
sem maður kynnist. Svo fyrir for-
eldrana, þetta getur hjálpað þeim að
komast inn í samfélagið.“
Á dögunum var 100 ára sjálfstæðis-
dagur Póllands haldinn hátíðlegur í
Reykjanesbæ þar sem stórt samfélag
Pólverja hefur hreiðrað um sig. Ma-
ciej segir að hann hafi nú ekki haldið
sérstaklega upp á daginn en foreldar
hans fóru til Póllands í tilefni hans.
„Ég er dálítið þarna inn á milli. Ég
held alveg í pólsku ræturnar og tala
tungumálið en er uppalinn sem Ís-
lendingur, þannig séð.“
ÞROSKAÐIST Í ÞORLÁKSHÖFN
Eftir að hafa beðið eftir stærra hlut-
verki í Njarðvík ákvað Maciej að reyna
fyrir sér á öðrum vígstöðum. Hann fór
á Njarðvíkurnýlendur í Þorlákshöfn
árið 2017 og spilaði undir handleiðslu
Einars Árna Jóhannssonar, Njarð-
víkings, sem nú er einmitt kominn
aftur í Ljónagryfjuna.
„Það var minni pressa í Þorlákshöfn
og maður gat leyft sér að gera fleiri
mistök, þrátt fyrir að þar hafi verið
mjög gott lið. Það sem maður heyrir
úr stúkunni í Njarðvík hins vegar er
titill eða ekkert. Við höfum reyndar
ekkert verið nálægt því undanfarin ár.
Mér fannst ákveðinn léttir að prófa
nýtt umhverfi.“
Maciej segist hafa þroskast við dvölina
á Suðurströndinni og horfir öðrum
augum á körfuboltann og deildina
sjálfa. Einar þjálfari tekur undir það:
„Ég held að hann hafi sannað ýmis-
legt fyrir mörgum. Hann var bráð-
þroska og stór miðað við aldur. Þegar
aðrir náðu honum í stærð hafði hann
bætt sinn leik,“ en Maciej lék í öllum
stöðum í æsku þrátt fyrir að vera
jafnan stærstur og sterkastur. „Hans
helsti styrkleiki er fjölhæfnin. Hann
getur dekkað stöður eitt til fjögur á
vellinum og er hörkuvarnarmaður.
Hugsunin var fyrir tímabil að hans
hlutverk myndi stækka og hann hefur
axlað þá ábyrgð,“ segir þjálfarinn.
Tók nánast tvö ár að jafna sig á veik-
indum
Þegar Maciej var rétt búinn að stimpla
sig inn í meistaraflokk kom mikið
bakslag sem fór ekki hátt á sínum
tíma. Hann veiktist af einkirningasótt,
var frá í um fjóra mánuði og missti
mikinn vöðvamassa og þrótt. „Það var
stærsta bakslagið á ferlinum og það
tók alveg næstum tvö ár að jafna mig
á því.“ Þá sagðist Maciej ætla að koma
öflugri tilbaka og hann hefur sannar-
lega staðið við þau orð. „Maður verður
vonandi bara betri með árunum,“
segir Maciej sem hefur unnið talsvert
í því að létta sig undanfarin misseri.
Hann segist kvikari fyrir vikið en hafi
þó ekki misst fyrri styrk. „Mér fannst
ég vera aðeins of þungur síðustu tvö
tímabil en líður mun betur núna.“
Þó vissulega sé ekki langt liðið af
tímabili þá tala tölurnar sínu máli.
Af öllum Njarðvíkingum er Maciej
að sækja flestar villur á andstæðinga,
en það eru aðeins fimm leikmenn í
deildinni sem fiska fleiri villur en
hann. Hann leiðir einnig liðið í þriggja
stiga nýtingu. Hann er að skora tæp
sextán stig í leik, en aðeins fjórir ís-
lenskir leikmenn eru ofar þar á blaði
í deildinni. Hann er með 38% þriggja
stiga nýtingu, 44% í teignum og 82%
af vítalínunni.
ELLEFU AF FJÓRTÁN Í ÆFINGHÓP ERU
HEIMAMENN
Það er mikill heimabragur á Njarð-
víkingum. Allir leikmenn liðsins
utan þeirra erlendu eru uppaldir
og grænir í gegn. Heimamenn tala
meira að segja um að Jeb Ivey sé
Njarðvíkingur í húð og hár. Ma-
ciej telur að það vinni með þeim
að mikið sé um heimamenn í
liðinu, fólki mæti betur í stúkuna
og ákveðin stemmning myndast.
Njarðvíkingar eru á toppnum ásamt
Keflvíkingum og Tindstólsmönnum.
Liðið virðist þó eiga smá inni en oft
eru þeir lengi í gang.
„Fyrsti góði fyrri hálfleikur okkar kom
á móti KR, annars höfum við verið
slappir í fyrri hálfleik. Þetta snýst
allt um vörnina okkar. Þar höfum
við verið seinir í gang og verðum
fyrir vikið pirraðir í sókninni. Þegar
við lögum það þá smellur þetta hjá
okkur og við spilum góða, heila leiki.“
Einn slíkur leikur kom einmitt gegn
Grindavík í Röstinni í síðustu viku
þar sem Njarðvíkingar unnu frekar
þægilegan sigur. Sterkir Stjörnumenn
koma í heimsókn á föstudag. Kannski
má búast við því að rulla Maciej
minnki við komu Elvars Más Frið-
rikssonar en hann mun koma til með
að styrkja liðið mikið. „Þegar svona
stórt púsl kemur inn í myndina þá veit
maður að einhverjar breytingar verða,
en ég held að Einar Árni sé fullfær um
að finna út úr því,“ segir Maciej sem
hefur verið tilbúinn í stærra hlutverk
síðustu tvö árin að eigin sögn.
„Ég hef alltaf verið að öskra menn
áfram og leitt þannig en nú er ég
kannski einn af aðalskorurum liðsins.
Það er nýrra hlutverk fyrir mér. Þetta
er það sem mig hefur langað að gera
og ég þarf að halda áfram að sýna að
ég geti þetta, þá er ég sáttur.“
Jólafagnaður
Félags eldri borgara í Grindavík
verður í Salthúsinu föstudaginn 7. desember 2018
Húsið opnar kl. 18:30
Jólahlaðborð, hugvekja, jólasaga og söngur
Verð á mann kr. 5000,- ATH! enginn posi!
Tilkynnið þátttöku fyrir 2. desember til eftirtalinna:
Maddý: 896-3173, Sibba: 693-1616, Geiri: 868-4763
Fundurinn verður haldinn í Bíósal Duus Safnahúsa
þriðjudaginn 27. nóvember kl. 18:00.
Á fundinum verður farið yfir breytt deiliskipulag á reitnum
sem má kynna sér á heimasíðu Reykjanesbæjar.
Frummælandi er Jón Stefán Einarsson arkitekt JeES
arkitektum og fundastjóri Gunnar Kr Ottósson arkitekt,
skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar.
Íbúafundur um deiliskipulag
Hafnargötu 12
Ég held alveg í pólsku
ræturnar og tala tungu-
málið en er uppalinn
sem Íslendingur ...
NÝTT EINKAÞJÁLFARANÁM KEILIS Í FJARNÁMI HLÝTUR EVRÓPSKA GÆÐAVOTTUN
Europe Active stofnunin, sem hefur umsjón með gæða- og vottunarmálum
einkaþjálfara og líkamsræktarstöðva í Evrópu, hefur gæðavottað nýtt
einkaþjálfaranám Keilis NPTC - Nordic Personal Trainer Certificate. Í
tilkynningu stofnunarinnar kemur fram að um sé að ræða fyrsta einka-
þjálfaranámið á alþjóðavísu sem þeir viðurkenna sem er í 100% fjarnámi.
Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður
Íþróttaakademíu Keilis, segir sam-
tökin hafi vottað námið þar sem
skólinn hafi góða reynslu af fjar-
námsframboði, auk þess sem náms-
efnið og fyrirkomulag þess uppfyllir
stranga gæðastaðla þeirra. „Um er
að ræða tilraunaverkefni, enda sé
þetta í fyrsta skipti sem stofnunin
vottar nám sem er eingöngu boðið
upp á í fjarnámi. Þetta er því mikil
viðurkenning fyrir Keili og NPTC
námið,“ segir Arnar. Á síðasta ári
hlaut ÍAK einkaþjálfaranámið sem
Keilir hefur boðið upp á hérlendis
undanfarinn áratug sömu viður-
kenningu Europe Active. Stofnunin
hefur þar með veitt gæðastimpil á
öllu einkaþjálfaranámi Keilis.
Með gæðavottuninni verða útskrif-
aðir einkaþjálfarar úr bæði ÍAK
einkaþjálfaranámi Keilis og NPTC
náminu framvegis skráðir í EREPS
(European Register of Exercise
Professionals) gagnagrunn Europe
Active og öðlast þar með evrópska
vottun á færni sinni.
Landsliðskona í knattspyrnu
fyrst til að útskrifast
NPTC námið fer fram á ensku og er
í 100% fjarnámi. Hægt er að byrja
í náminu sex sinnum á ári og tekur
það sex til átta mánuði, allt eftir
hraða nemandans. Hver áfangi tekur
sjö vikur og hefur nemandinn að-
gang að öllum kennslumyndböndum
á meðan áfanginn er opinn. Það
hentar vel í verklegri kennslu þar
sem nemandinn hefur tækifæri til
að fara mun dýpra í námsefni áfang-
anna í samanburði við staðnám, þar
sem tíminn takmarkast við staðlotur.
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona
í knattspyrnu, var fyrsti nemandinn
til að útskrifast úr NPTC náminu
fyrr á þessu ári. „Ég var að leita að
einkaþjálfaranámi sem ég gat tekið
í fjarnámi á meðan ég var í atvinnu-
mennsku erlendis,“ segir Dagný, en
hún hafði áður lokið háskólanámi
í Bandaríkjunum. Hún stefnir á að
nýta reynsluna og námið til að geta
boðið upp á fjarþjálfun samhliða
atvinnumennsku í fótbolta. „Eftir
að ég lauk NPTC náminu fór ég í
áframhaldandi nám hjá Keili í ÍAK
styrktarþjálfun sem ég lýk núna í vor.
Ég mun nýta reynsluna af báðum
þessum námsleiðum þegar ferlinum
lýkur. NPTC námið hentar vel þeim
sem hafa áhuga og þekkingu á lík-
amsrækt og þjálfun, sérstaklega þar
sem um er að ræða fjarnám.“
NPTC námið hentar þannig bæði á
erlendum markaði sem og þeim sem
vilja stunda einkaþjálfaranám sam-
hliða vinnu. Nánari upplýsingar um
námið má finna á heimasíðu Keilis:
www.iak.is
Pete Davies og Julian Berriman frá Europe
Active ásamt Arnari Hafsteinssyni og Ben
Pratt frá Íþróttaakademíu Keilis.
Dagný Brynjarsdóttir.