Fréttablaðið - 05.12.2018, Qupperneq 2
Veður
Heldur vaxandi austanátt, 5-13 síð-
degis og 13-18 syðst. Él á SA-landi og
snjókoma á Austfjörðum síðdegis,
annars þurrt að kalla. Talsvert frost
norðan heiða, en dregur úr frosti
S-lands. sjá síðu 14
Matreitt gegn matarsóun
Matreiðslumeistarinn Gísli Matt Auðunsson með þorskvöðva sem hann ætlar að matreiða í dag. Þá mun Gísli ásamt Umhverfisstofnun, Lofti hosteli
og Vakandi efna til matarveislu sem ætlað er að vekja athygli á matarsóun. Drykkir og veitingar úr lítt nýttum matvælum verða í boði. „Sá póll sem við
ætlum að taka í hæðina er að búa til dýrindis mat úr vannýttu hráefni sem er lítið eða jafnvel ekkert notað,“ segir Gísli Matt. Fréttablaðið/anton brink
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Yljaðu ástvinum með Heliosa
hitara í vetur
30% afláttur
í desember
Flísabúðin
30
ÁRA
2018
Margar gerðir til
á lager 1300 til 3000 w.
Hvítir og svartir.
Allir hitararnir
eru farstýrðir.
Koma með 5m
langri snúru og kló.
Framkvæmdir Minning hafnar
garðanna, sem grafnir voru upp og
fjarlægðir stein fyrir stein við Hafnar
torg fyrir nokkrum árum, verður
heiðruð í byggingunum sem þar hafa
nú risið. Samkomulag náðist milli
framkvæmdaaðila og Minjastofn
unar um að gera minjunum þar hátt
undir höfði.
Í því felst meðal annars að grjóti
úr eldri garðinum hefur verið breytt
í veggflísar sem nú er verið að klæða
anddyri einnar byggingarinnar við
Hafnartorg með. Yngri garðurinn,
sem friðlýstur var að undirlagi Sig
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
þáverandi forsætisráðherra, verður
sýnilegur í bílakjallara hússins.
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG
verks sem reisir húsin við Hafnartorg,
segir þetta nokkuð snjalla lausn.
„Þetta er hluti af hönnun hússins
og lausninni varðandi garðinn sem
unnin var í samvinnu við Minja
stofnun,“ segir Þorvaldur.
Mikið fár varð í kringum upp
gröftinn í gömlu höfninni. Tafir urðu
á framkvæmdum, Sigmundur Davíð
þurfti að segja sig frá ákvörðun um
friðlýsingu og svo fór að Sigrún
Magnúsdóttir tók ákvörðunina um
friðlýsingu. Grjótið úr hafnargarð
inum var svo fjarlægt stein fyrir stein,
merkt og mælt í bak og fyrir en kostn
aður við það nam hálfum milljarði.
Agnes Stefánsdóttir, sviðsstjóri
hjá Minjastofnun, bendir á að um
tvo hafnargarða hafi verið að ræða.
Annars vegar var það stóri hafnar
garðurinn sem lá þvert yfir lóðina
sem mesta fjargviðrið varð út af og
var friðlýstur sérstaklega. Og síðan
eldri hafnargarður, sem var innar,
einnig kallaður bólverk sem heim
ildir eru til um frá 1881. Sá er aldurs
friðaður. Bólverkið var vel varðveitt
undir landfyllingu, grjóthleðslan er
öll úr tilhöggnu grjóti, ólíkt yngri
hafnargarðinum.
Grjót úr eldri hafnargarðinum
hefur nú verið sagað í flísar og
notað sem veggklæðning í anddyri
Kalkofnsvegar 2 á Hafnartorgi, þar
sem skrifstofur Fréttablaðsins eru
til húsa og glöggur blaðamaður bar
kennsl á grjótið.
„Samkomulagið var að sá garður
yrði ekki settur aftur upp á sinn stað
heldur nýttur í svona vegg. Þannig
að minningin um hann yrði varð
veitt í húsinu,“ segir Agnes.
Samþykkt var að hinn garðurinn
sem friðlýstur var yrði tekinn niður,
í stað þess að byggja hann upp og
gera bílakjallarann ónothæfan.
„Það verða steinar úr honum sett
ir í gólfið og einhver hluti af honum
hlaðinn upp þar sem því verður
komið við.“ mikael@frettabladid.is
Gamli hafnargarðurinn
orðinn veggklæðning
Grjóti sem fjarlægt var með ærnum tilkostnaði úr gömlu höfninni í Reykjavík
verður gert hátt undir höfði í nýbyggingu við Hafnartorg. Eldri hafnargarðurinn
skorinn í veggflísar. Friðlýsti hafnargarðurinn verður til sýnis í bílakjallaranum.
Friðlýsti hafnargarðurinn mun njóta
sín í bílakjallara. Fréttablaðið/GVa
Grjót úr eldri hafnargarðinum öðlast nýtt líf sem veggklæðning í anddyri kalk-
ofnsvegar 2, einnar nýbyggingarinnar við Hafnartorg. Fréttablaðið/Ernir
Tækni Viðbrögð Marriotthótel
samsteypunnar við stuldi á upp
lýsingum um 500 milljón hótel
gesti eru ekki bara ófullnægjandi
heldur hættuleg. Þetta kom fram
í frétt Techcrunch í gær. Hundruð
milljóna eru talin kunna hafa lent í
því að bankaupplýsingum, jafnvel
kortanúmerum, hafi verið stolið.
Marriott sendi gestum, sem urðu
fyrir stuldinum tölvupóst. Hann
kom hins vegar frá einkennilegu
léni, emailmarriott.com, sem er í
vörslu samsteypunnar en skilar ekki
niðurstöðu sé það slegið inn í vafra.
Aðstandendur netöryggisfyrir
tækisins Rendition Infosec keyptu
lénið emailmarriot.com til þess að
benda á að óprúttnir aðilar gætu
nýtt sér mistök hótelsamsteyp
unnar. Sé þetta lén slegið inn í vafra
stendur : „Þetta gæti verið netveiða
síða (e. phishing site).“ – þea
Röng viðbrögð
við gagnastuldi
Marriott í kína. nordicpHotos/aFp
dómsmál Nýr dómari hefur verið
skipaður yfir höfundarréttarmál
Jóhanns Helgasonar í Los Angeles í
stað Dolly M. Gee sem sagði sig frá
málinu í fyrrakvöld.
Nýi dómarinn er André Birotte
Jr. Áður var Birotte saksóknari í Los
Angeles og rannsakaði meðal ann
ars mál hjólreiðamannsins Lance
Armstrong en lét málið niður falla.
Armstrong játaði síðar að hafa neytt
ólöglegra lyfja í keppni. – gar
Nýr dómari í
máli Jóhanns
sTjórnmál Ísland hefur verið kosið
til þess að gegna varaformennsku
í mannréttindaráði Sameinuðu
þjóðanna. Fastafulltrúi Íslands, Har
ald Aspelund, mun því stýra starfi
ráðsins á næsta ári með forseta þess.
Þetta kom fram í tilkynningu sem
birt var á vef stjórnarráðsins í gær.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan
ríkisráðherra sagði í viðtali við
Fréttablaðið í júlí, þegar ljóst var að
Ísland fengi sæti í ráðinu, að Íslend
ingar myndu tala fyrir umbótum á
starfsemi ráðsins og leggja áherslu
á jafnréttismál og málefni hinsegin
fólks.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðs
ins nú segir Guðlaugur: „Ísland og
fjölmörg önnur ríki hafa kallað eftir
endurbótum á mannréttindaráðinu.
Með aukinni ábyrgð gefst okkur enn
frekara tækifæri til að hafa áhrif á
framgang mála og leggja okkar af
mörkum til að auka skilvirkni ráðs
ins.“ – þea
Tækifæri í
aukinni ábyrgð
5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m i ð v i k u d a G u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-C
3
8
4
2
1
A
2
-C
2
4
8
2
1
A
2
-C
1
0
C
2
1
A
2
-B
F
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K