Fréttablaðið - 05.12.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Ísak Harðarson
hefur gefið út sína
elleftu ljóðabók eftir
langt hlé – hún er
persónuleg og full
af tæru myndmáli
„... hið smáa speglar
hið stóra og guðdóminn
er víða að finna.“
E I N A R F A L U R I N G Ó L F S S O N
M O R G U N B L A Ð I Ð
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–17 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
ALÞINGI Klaustursupptökurnar setja
svip á störf Alþingis. Þingmenn sem
Fréttablaðið ræddi við segja stemn-
inguna jafnvel þrúgandi.
„Þau vantreysta okkur alveg jafn
mikið og þau skynja það að við van-
treystum þeim. Þannig að þetta er
alveg tvöfalt vandræðalegt,“ segir
einn þingmaður
„Við erum að reyna vinna úr þessu
og það er ekkert skrýtið að það muni
taka einhverja daga,“ segir annar
þingmaður. Enn sé mjög þungt í
fólki.
Í umræðum á þingi í gær sagði
Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki
fólksins, að þetta segði allt um þá
sem voru á Klaustri en ekkert um þá
sem fjallað var um þar.
Helga Vala Helgadóttir úr Sam-
fylkingu spurði hvort umræddir
þingmenn gætu sinnt starfi sínu.
Ekkert þeirra sem tóku þátt í að sví-
virða Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, gæti til að
mynda beint fyrirspurn til hennar.
– sar
Þungt á Alþingi
FANGeLsIsmáL „Mér finnst alvar-
legt að það taki mörg ár að bregð-
ast við svona alvarlegum vanda
og mun inna heilbrigðisráðherra
eftir því hverju þetta sæti,“ segir
Halldóra Mogensen, formaður vel-
ferðarnefndar Alþingis, um sam-
skipti heilbrigðisráðuneytisins og
Umboðsmanns Alþingis um aðgerð-
ir vegna stöðu geðheilbrigðismála í
fangelsum landsins.
Umboðsmaður hefur beðið við-
bragða stjórnvalda við alvarlegri
stöðu þeirra mála í tæp sex ár og átt
í ítrekuðum bréfaskiptum við ráðu-
neyti bæði dóms- og heilbrigðis-
mála vegna þess. Af samskiptunum
má sjá að umboðsmaður er búinn
að fá nóg af skipunum í nefndir og
starfshópa sem litlu sem engu hafa
skilað.
Í erindi dómsmálaráðuneytisins
til umboðsmanns í október síðast-
liðnum er þeirri afstöðu lýst að
mannréttindi geðsjúkra fanga séu
ekki fyllilega tryggð og ráðuneytið
telji brýnt tilefni til að endurskoða
fyrirkomulag geðheilbrigðisþjón-
ustu á Litla-Hrauni sem og í fang-
elsum landsins almennt. Víðtækt
samráð þurfi að hafa í þeim efnum
við velferðarráðuneytið og fang-
elsismálayfirvöld.
Í erindi til heilbrigðisráðherra frá
11. október óskaði umboðsmaður
eftir viðbrögðum við afstöðu dóms-
málaráðuneytisins. Í erindinu kvað
umboðsmaður nokkuð fast að orði
um aðgerðaleysi ráðuneytanna
þrátt fyrir alvarlega stöðu sem
varðað geti ákvæði stjórnarskrár um
bann við pyndingum og ómannúð-
legri meðferð. Forsætisráðherra
fékk afrit af bréfinu.
Í svari heilbrigðisráðuneytis sem
barst í síðustu viku er vikið að samn-
ingagerð vegna heilbrigðisþjónustu
á Hólmsheiði sem gera eigi ráð fyrir
auknu og öruggu aðgengi að geð-
heilbrigðisþjónustu. Sameiginlegt
mat heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins og geðsviðs Landspítala sé að
geðdeildin veiti þjónustu á Hólms-
heiði sem samsvari 10 prósent stöðu
geðlæknis og 10 prósent stöðu geð-
hjúkrunarfræðings. Í svarinu segir
að gert sé ráð fyrir að samningur
vegna Hólmsheiðar verði í fram-
haldinu notaður sem fyrirmynd að
heilbrigðisþjónustu í öðrum fang-
elsum landsins.
Þá er í svari ráðuneytisins, vísað
til starfshóps sem skipaður verði
um endurskoðun samnings frá
1997 milli ráðuneytisins og Fang-
elsismálastofnunar um heilbrigðis-
þjónustu við fanga í fangelsum.
Umboðsmaður bíður nú við-
bragða Fangelsismálastofnunar og
dómsmálaráðuneytis við útspili
heilbrigðisráðuneytisins. – aá
Umboðsmaður kominn með nóg af starfshópum og nefndum
Mér finnst alvarlegt
að það taki mörg ár
að bregðast við svona
alvarlegum vanda.
Halldóra Mogensen, formaður
velferðarnefndar Alþingis
21,4%
20,8%
14,4%
12,7%
9,1%
8,5%
5,7%
4,3%
3,1%
Fylgi flokka nú
stjórNmáL Samfylking og Sjálf-
stæðisflokkur mælast með um
21 prósents fylgi í nýrri könnun
Zenter rannsókna fyrir Fréttablaðið
og frettabladid.is. Miðflokkurinn
mælist með 4,3 prósent og næði sam-
kvæmt því ekki manni á þing.
Könnunin var framkvæmd
3.-4. desember, það er eftir að upp
komst um fyllirísraus fjögurra þing-
manna Miðflokks og tveggja úr
Flokki fólksins. Þá er hún sömu-
leiðis gerð eftir að Flokkur fólksins
rak þingmennina tvo úr flokknum
og tveir þingmanna Miðflokksins
fóru í ótímabundið leyfi frá störfum.
Samkvæmt könnuninni mælist
fylgi Miðflokksins 4,3 prósent eða
rúmlega þriðjungur kjörfylgis hans.
Fylgi við flokkinn mælist 1,5 pró-
sentustigum hærra á landsbyggðinni.
Sé miðað við efri vikmörk mælingar-
innar myndi flokkurinn fá jöfnunar-
þingmenn en nær hvergi kjördæma-
kjörnum þingmanni.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með
21,4 prósent og kemur Samfylkingin
næst með 20,8 prósent. Sá fyrrnefndi
tapar um fjórum prósentustigum frá
kosningum en sá síðarnefndi bætir
við sig tæpum níu. Píratar mælast
þriðji stærsti flokkur landsins með
Tveir flokkar tróna á toppnum
Aðferðafræði
Könnunin var send á 2.300
einstaklinga úr könnunarhópi
Zenter. Spurt var annars vegar
„hvaða flokk myndir þú kjósa ef
gengið yrði til kosninga í dag?“
og hins vegar „hvaða flokk væri
líklegast að þú myndir kjósa?“
Svarhlutfall var 55 prósent en
um þriðjungur tók ekki afstöðu
til spurningarinnar. Gögnin voru
vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.
Frá þingi eftir að fjallað var um upptökur af Klaustri. Fréttablaðið/anton brinK
14,4 prósent og bæta við sig fimm
prósentustigum.
Stutt er í Vinstri græn með 12,7
prósent en flokkurinn fékk tæp
sautján í kosningunum. Viðreisn
mælist með 9,1 prósent en fékk 6,7
í kosningum og Framsóknarflokkur
mælist með 8,5 prósent, fékk 10,7
prósent í kosningunum. Flokkur
fólksins mælist svo með 5,7 prósent,
fékk 6,9 í kosningunum 2017. Þrjú
prósent segja að þau myndu kjósa
aðra flokka en þá sem eiga sæti á
þingi.
Séu niðurstöður könnunarinnar
nýttar til að útdeila þingsætum
fengju Sjálfstæðisflokkur og Sam-
fylking fimmtán menn hvor flokkur.
Úrslit kosninga 2017
12,1%
25,2%
16,9%
10,9%
10,7%
6,9%
6,7%
1,4%
Ný könnun Zenter fyrir
Fréttablaðið og frettabla-
did.is sýnir Miðflokkinn
með 4,3 prósenta fylgi og
er gerð eftir að Klausturs-
málið komst í hámæli.
Einnig gerð eftir að tveir
þingmanna Miðflokks-
ins fóru í leyfi og tveir
voru reknir úr Flokki
fólksins, sem stendur svo
gott sem í stað í fylgi.
9,2%
Píratar fengju tíu, Vinstri græn átta
og Viðreisn og Framsókn sex menn
hvor flokkur. Flokkur fólksins væri
síðastur inn með þrjá.
Einnig var spurt um hvort sex-
menningarnir af Klaustri ættu að
segja af sér þingmennsku. Alls svör-
uðu játandi 90,9 prósent þeirra sem
afstöðu tóku. 9,1 prósent sagði nei.
Sé horft til afstöðu svarenda eftir
því hvaða flokk þeir sögðust ætla
að kjósa má sjá að heilt yfir svaraði
mikill meirihluti stuðningsmanna
allra flokka utan Miðflokksins
játandi. Einungis þrettán prósent
þeirra sem sögðust styðja Miðflokk-
inn vilja að sexmenningarnir segi
af sér. Stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins komust næst því að vera á
sama máli en þeirra á meðal voru þó
ekki nema 23,7 prósent sem svöruðu
neitandi. johannoli@frettabladid.is,
thorgnyr@frettabladid.is
af þingi í gær. Fréttablaðið/Ernir
90,9
prósent þeirra sem tóku
afstöðu sögðu að sexmenn-
ingarnir á Klaustri ættu að
segja af sér.
5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r4 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A Ð I Ð
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-D
7
4
4
2
1
A
2
-D
6
0
8
2
1
A
2
-D
4
C
C
2
1
A
2
-D
3
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K