Fréttablaðið - 05.12.2018, Page 12
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sigríður Oddný Jansen
Sandavaði 9, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 19. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jan Jansen
Kristín Ólöf Jansen Kristján Jónsson
Aksel Jansen Sandra Margrét Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
Brynju Tryggvadóttur
píanókennara, Teigagerði 9.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sunnuhlíðar í Kópavogi fyrir hlýja og góða umönnun.
Egill Sveinsson
Sveinn Yngvi Egilsson Ragnheiður I. Bjarnadóttir
Tryggvi Þórir Egilsson Ásta S. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Haukur Björn Björnsson
áður Safamýri 75, Reykjavík,
andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi,
sunnudaginn 2. desember.
Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju,
föstudaginn 7. desember kl. 13.
Edda Björk Hauksdóttir
Ómar Bjarki Hauksson Erla Jóna Guðjónsdóttir
afa- og langafabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir afi og langafi,
Grétar Ingvarsson
Lönguhlíð 1f, Akureyri,
lést 30. nóvember. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn
7. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Súlur, björgunarsveitina á Akureyri, eða
Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit.
Freyja Jóhannesdóttir
Hildur Arna Grétarsdóttir
Guðbjörg Huld Grétarsdóttir Vésteinn Finnsson
Ingvar Birnir Grétarsson Þórunn Þórðardóttir
afa- og langafabörn.
Auður Ottesen er á yfirreið um höfuðstaðinn með nýjasta tölublað af tímaritinu Sumarhúsið og garðurinn í farteskinu. Það er aðventublað, fullt
af flottu efni, enda er það við hæfi í lok
stórafmælisárs.
Auður býr á Selfossi, ásamt manni
sínum, Páli Jökli Péturssyni, og kveðst
hlakka til að dreifa blaðinu í búðir í upp
sveitum Árnessýslu. „Það er svo notalegt,
alger lúxus,“ segir hún en stillir sig alveg
um að segja nokkuð neikvætt um bíla
kraðakið í borginni.
Þótt blaðið hennar Auðar heiti Sumar
húsið og garðurinn þá kemur það sem
sagt út á öllum árstímum, fjórum
sinnum á ári. „Efnið er ekki bara um
sumarhús og garða, það höfðar líka til
almennra húsbyggjenda, umhverfis
sinna, þeirra sem elska að fara úr þétt
býlinu út á land og bara njóta náttúr
unnar hvar sem er í heiminum. Auk þess
er handavinna og föndur. Þetta er lífs
stílsblað,“ útskýrir Auður og getur þess
einnig að þrettán bækur hafi komið út á
vegum blaðsins.
Sumarhúsið og garðurinn er bæði selt
í lausasölu og áskrift. „Ég er með á þriðja
þúsund áskrifendur núna, það varð smá
kreppudans eftir hrunið, en tryggðin er
til staðar hjá fólki og því þykir vænt um
blaðið. Ef okkur verður á, sem er orðið
sjaldgæfara en áður því ég er með svo
góðan prófarkalesara, þá er bara hringt
í mig og ég beðin að fara rétt með máls
hættina okkar og íslenskuna yfirleitt.
Pólitísk mál hafa líka farið fyrir brjóstið
á fólki, til dæmis þegar skrifað var vina
lega um refi og um hvali sem sýningar
dýr. Þá fengum við uppsagnir frá fólki
sem vildi ekki sjá svona í blaðinu sínu.
Við eigum þetta blað sko ekki ein.“
Auður rekur upphaf útgáfunnar til
Þórarins Leifssonar rithöfundar sem
byrjaði 1993 að gefa út dreifiblað í dag
blaðsformi undir þessu heiti. Það kom
út í tvö sumur með greinum og aug
lýsingum. Þá keypti Páll blaðið og fékk
annan mann til liðs við sig. „Svo kynntist
Palli þessari garðyrkjustelpu úr Hvera
gerði og ég kom inn í útgáfuna með
honum 1997, þá breyttum við forminu
og skelltum því svo í áskrift árið 2000,“
lýsir hún og heldur áfram. „En nú er Palli
dálítið hlaupinn frá verkinu, var svo
útsjónarsamur að koma blaðinu yfir á
mig og stofna sjálfur ferðaþjónustufyrir
tæki. Umbrotið er farið annað en ég píni
hann aðeins í að taka myndir.“
Á Selfossi keyptu Auður og Páll stórt
hús með stórum garði fyrir sjö árum.
Auður rifjar upp að þótt húsið þyrfti
mikilla lagfæringa við, enda búið að
glíma við jarðskjálfta, þá hafi áherslan
strax verið á garðinn. „Það fyrsta sem fór
niður var kirsuberjatré. Garðurinn var
standsettur á undan baðherberginu.“
Fóruð þið bara bak við tréð og gerðuð
þarfir ykkar, spyr ég og úr verður mikill
hlátur. „Já, svona erum við vistvæn,“
svarar Auður. Húsið var svolítið opið
sár til að byrja með en við byrjuðum
strax að halda sumarhátíðir þar og í
garðinum fyrir áskrifendur og aðra vini
okkar og þar hafa verið að mæta 500 til
1.000 manns. Svo er ég með opið hús
einu sinni á vorin og nota garðinn fyrir
sýningar og námskeið á ýmsum árs
tímum.“
Auður er iðandi af áhuga og upp
full af hugmyndum fyrir blaðið. Nú er
hún nýkomin frá Kína með þúsundir
mynda. „Það er mikilvægt að vera alltaf
með eitthvað sem fólk hefur ekki kynnst
áður og reyna sífellt að toppa sig.“ Hún
kveðst aldeilis ekki vera ein með blað
ið. „Við höfum alltaf haft penna nema
aðeins kringum kreppuna, þá rifuðum
við seglin. Snæfríður Ingadóttur hefur
skrifað heilmikið. Mér finnst ég vera
með landsliðið í kringum mig, til dæmis
í umbroti. Ég er með þjóðfræðing, sér
fræðing í ylrækt, landslagsarkitekt, flott
fagfólk og góða penna úr ýmsum áttum.
Efnið er svo víðfeðmt. Ef ég er með of
mikið um sumarhús, fæ ég að heyra það
– og öfugt. Ég má ekkert hvað sem er!“
gun@frettabladid.is
Garðurinn standsettur á
undan baðherberginu
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn hefur glatt þjóðina í 25 ár. Hjónin Auður Ottesen
garðyrkjufræðingur og Páll Jökull Pétursson ljósmyndari hafa lengst af helgað því
krafta sína. Nú sér Auður að mestu um útgáfuna en hún þvælir Páli þó í myndatökur.
Ef okkur verður á, sem
er orðið sjaldgæfara en
áður því ég er með svo góðan
prófarkalesara, þá er bara hringt
í mig og ég beðin að fara rétt
með málshættina okkar og
íslenskuna yfirleitt.
1929 Mjólkurbú Flóamanna stofnað.
1932 Lyfjafræðingafélag Íslands stofnað.
1932 Þýskættaði eðlisfræðingurinn Albert Einstein fær bandaríska
vegabréfsáritun.
1945 Sveit fimm sprengjuflugvéla á vegum bandaríska flotans
týnist í Bermúda-þríhyrningnum.
1957 Sukarno Indónesíuforseti vísar öllum hollenskum ríkisborg-
urum, 326.000 að tölu, úr landi.
1968 Jarðskjálfti af stærðinni 6 stig finnst í Reykjavík og var hann
sá snarpasti frá 1929.
1973 Vegna olíukreppunnar ákveður stjórnin í Noregi að banna
alla bílaumferð um helgar.
1978 Aðildarlönd Evrópubandalagsins, nema Bretland, samþykkja
evrópska myntkerfið.
Merkisatburðir
Auður Ottesen hefur, ásamt Páli Jökli Péturssyni, séð um tímaritið Sumarhúsið og garðinn í aldarfjórðung. FréttAblAðið/Ernir
5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r12 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-B
E
9
4
2
1
A
2
-B
D
5
8
2
1
A
2
-B
C
1
C
2
1
A
2
-B
A
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K