Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2018, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 05.12.2018, Qupperneq 14
í Fríkirkjunni í Reykjavík Helg eru jól Jólatónleikar til styrktar Kvenlækningadeild 21A, fimmtudaginn 6. desember kl. 12 Flytjendur: Valgerður Guðnadóttir, sópran Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzosópran Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi Kvennakórinn Concordia ásamt hljómsveit Miðasala á tix.is og við innganginn | Miðaverð 2500.- markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5000 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Eyrir keypti níu prósent í sjálfu sér Festi hefur sagt upp 36 starfsmönn- um í 30 stöðugildum í tengslum við samruna N1 og Krónunnar og fleiri félaga. Flestir þeirra störfuðu í höfuðstöðvum félagsins í stoð- deildum. Um er að ræða hluta af hagræðingaraðgerðum sem fylgja samrunanum. Þetta segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri fyrir- tækisins, í samtali við Markaðinn. Í október tók Festi upp nýtt skipulag í kjölfar samruna fyrr- nefndra félaga. Á meðal starfa sem var ofaukið við samrunann var eitt stöðugildi forstjóra og annað stöðugildi fjármálastjóra. Auk þess var fækkað um tíu stöðugildi á fjár- málasviði. Enn fremur var hagrætt í mannauðsdeild og tölvurekstri. „Við höfum ekki fækkað fólki í versl- unum eða á bensínstöðvum heldur í stoðeiningum,“ segir Eggert Þór. Hann segir að uppsagnirnar teng- ist ekki aðstæðum í efnahagslífinu. Staða efnahagsmála sé nokkuð góð ef kjarasamningar sem nást verði skynsamlegir. Þó að hagvöxtur síðustu ára muni ekki halda áfram geri hann ekki ráð fyrir samdrætti. Eggert vekur hins vegar athygli á að laun hafi hækkað hratt á undan- gengnum árum, við þær aðstæður þurfi að grípa til hagræðingarað- gerða eins og uppsagna sem séu sársaukafullar fyrir alla sem komi að málum. Festi hafi til að mynda tekið róbóta í sína þjónustu á fjár- málasviðinu sem sinni ýmsum afstemmingum og lesi reikninga. Hann vekur athygli á að Weber- grill kosti það sama í Elko, sem er í eigu Festar, og á Weber.com um þessar mundir. En erlendi keppi- nauturinn glími ekki við jafn miklar launahækkanir og íslenska versl- unin. Það sé erfitt að hækka verðlag í takt við launahækkanir enda hafi matarkarfan, kaup á raftækjum og eldsneyti farið minnkandi sem hlut- fall af launum. N1 keypti hlutafé Festar á ríf- lega 23,7 milljarðar króna en nettó vaxtaberandi skuldir Festar voru um 14,3 milljarðar við lok síðasta rekstrarárs. Í tilkynningu til Kaup- hallarinnar hefur verið upplýst að gert ráð sé fyrir að samlegðaráhrif af kaupum, sem Samkeppniseftirlitið samþykkti gegn skilyrðum, verði á bilinu 500 til 600 milljónir og muni koma fram á næstu tólf til 18 mán- uðum. Á meðal einkafjárfesta í Festi er Helgafell, sem stýrt er af Jóni Sig- urðssyni, með tvö prósent hlut og Brekka Retail, sem leitt er af Þórði Má Jóhannssyni, með 1,6 pró- senta hlut. Fyrir sameiningu átti Helgafell í olíufélaginu en Brekka Retail í mat- vörukeðjunni. Síðast- liðinn mánuð hefur gengi félagsins lækkað um sjö prósent en litið aftur um tvö ár hefur ávöxt- unin verið 20 prósent með arðgreiðslu í mars 2017.Úrvalsvísitalan hefur á sama tíma lækkað um tíu prósent. – hvj Festi segir upp 36 manns í tengslum við samruna  Bláa lónið verðlagt á 50 milljarða króna  Samkomulag um kaup á 20 prósenta óbeinum hlut sjóðs í meirihlutaeigu lífeyr- issjóða í Bláa lóninu verðmetur fyrirtækið á um 50 milljarða. Meirihluti hluthafa sagður ætla að nýta sér kauprétt og vera áfram óbeinir eigendur að Bláa lóninu.  Tekjur Bláa lónsins námu 102 milljónum evra í fyrra og jukust um 25 milljónir evra frá fyrra ári. Fjárfestingafélagið Eyrir Invest, stærsti einstaki hluthafi Mar-els, keypti í síðustu viku tæp- lega níu prósenta hlut af Lands- bankanum í sjálfu sér. Kaupverðið nam um 3,8 milljörðum króna. Bankinn bauð sem kunnugt er 12,1 prósents hlut sinn í Eyri Invest til sölu í byrjun síðasta mánaðar. Frestur til að skila inn tilboðum rann út fyrir viku og tók Lands- bankinn fjórum tilboðum af fimm sem bárust í 9,2 prósenta hlut. Þar af samþykkti bankinn tilboð fjár- festingafélagsins í tæpan 9,0 pró- senta hlut í sjálfu sér. Söluandvirði allra hlutabréf- anna sem Landsbankinn seldi nam um 3,9 milljörðum króna en eftir söluna fer bankinn með um 12,8 prósenta hlut í Eyri Invest. Eins og Markaðurinn hefur greint frá hóf Fjármálaeftirlitið að leggja dagsektir á Landsbankann um miðjan septembermánuð til þess að knýja á um að bankinn seldi hlut sinn í fjárfestingafélag- inu. Eftirlitið hefur á undanförn- um árum veitt bankanum fresti til þess að minnka hlut sinn. Eyrir Invest fer með 27,9 pró- senta hlut í Marel, langsamlega stærsta félaginu í Kauphöllinni. Til viðbótar á fjárfestingafélagið 43,4 prósenta hlut í Eyri Sprotum, sem fjárfestir í nýsköpunarfyrir- tækjum, og þriðjungshlut í Efni Media, sem selur vörur og þjón- ustu í gegnum netið og samfélags- miðla. – kij 3,8 milljarðar var kaupverð Eyris invest á 9,0 prósenta hlut í sjálfu sér. Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest. Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, er verðmetið á um það bil 50 milljarða króna í því samkomu-lagi sem eignarhalds- félagið Kólfur, sem er í meirihluta- eigu Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins, gerði nýlega við fram- takssjóðinn Horn II um kaup á 49,45 prósenta hlut sjóðsins í Hvatningu, samkvæmt heimildum Markaðarins. Hvatning heldur á 39,1 prósents hlut í Bláa lóninu og er því óbeinn eignar- hlutur sjóðsins rúmlega 19,3 prósent. Hermann Þórisson, framkvæmda- stjóri Horns II, sem er í rekstri Lands- bréfa, sagðist í samtali við Markaðinn ekkert geta tjáð sig um kaupverðið og vísaði til trúnaðar. Með kauptilboðinu í hlut Horns II í Bláa lóninu verðmetur Kólfur ferða- þjónustufyrirtækið talsvert hærra en þegar sjóður í stýringu bandaríska fjárfestingafélagsins Blackstone hugðist kaupa 30 prósenta hlut í Bláa lóninu af HS Orku sumarið 2017. Til- boð Blackstone hljóðaði þá upp á 95 milljónir evra, jafnvirði 13,3 milljarða króna á núverandi gengi, sem jafn- gildir því að markaðsvirði Bláa lóns- ins sé rúmlega 44 milljarðar króna. Ekkert varð hins vegar af sölunni eftir að stjórn Jarðvarma, samlagshluta- félags í eigu íslenskra lífeyrissjóða sem fer með þriðjungshlut í HS Orku, ákvað að beita neitunarvaldi sínu, á grundvelli hluthafasamkomulags um minnihlutavernd, og hafna tilboði Blackstone. Tilkynnt var um samkomu- lagið milli Kólfs og Horns II þann 20. 19,3% er óbeinn eignarhlutur fram- takssjóðsins Horns ii í Bláa lóninu. Grímur Sæmund- sen, forstjóri Bláa lónsins. nóvem ber síðastliðinn en samkvæmt því er hluthöfum framtakssjóðsins veittur kaupréttur á sama viðskipta- gengi til loka janúar næstkomandi á þeim hlutum sem undir voru í við- skiptunum. Tilurð viðskiptanna má rekja til þess að líftími Horns II, sem var komið á fót vorið 2013, mun renna sitt skeið á næsta ári. Samkvæmt heimildum Markaðar- ins mun Grímur á næstunni halda fjárfestakynningar á Bláa lóninu fyrir hluthafa Horns II. Stærstu hluthafar sjóðsins eru Lífeyrissjóður versl- unarmanna og Gildi lífeyrissjóður, hvor um sig með 18,17 prósenta eignarhlut. Aðrir stórir hluthafar eru meðal annars Landsbankinn með 7,66 prósenta hlut, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda með 5,85 prósent og þá nemur eignarhlutur trygginga- félagsins VÍS 5,38 prósentum. Líklegt er talið, að sögn þeirra sem þekkja vel til stöðu mála, að mikill meirihluti hluthafa Horns II hafi í hyggju að nýta sér kaupréttinn og vera þannig áfram óbeinir hluthafar í Bláa lóninu. Það eigi hins vegar ekki við um Landsbankann sem er þriðji stærsti hluthafi Horns II. Í ársreikningi sjóðsins fyrir 2017 var hlutur Horns II í Hvatningu metinn á ríflega 8 milljarða króna en miðað við núverandi kauptilboð Kólfs þá er virði hlutarins í kringum 9,5 milljarða króna. Vöxtur Bláa lónsins á undanförn- um árum hefur verið ævintýralegur. Tekjur fyrirtækisins námu þannig rúmlega 102 milljónum evra, jafn- virði 14 milljarða króna, á síðasta ári og jukust um 25 milljónir evra á milli ára. Þá var hagnaður Bláa lónsins um 31 milljón evra á árinu 2017 og hækk- aði um þriðjung frá fyrra ári. EBITDA fyrirtækisins jókst um liðlega 39 pró- sent í fyrra og nam rúmlega 39 millj- ónum evra. Fyrir utan Hvatningu og HS Orku eru helstu hluthafar Bláa lónsins eignarhaldsfélagið Keila með 9,2 pró- senta hlut en það er í meirihlutaeigu Hvatningar. Aðrir hluthafar í Keilu eru meðal annars Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og varamað- ur í stjórn Bláa lónsins. Þá eiga Helgi Magnússon, stjórnarformaður Bláa lónsins, og Sigurður Arngrímsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Morgan Stanley í London, einnig hvor um sig um 6,2 prósenta hlut í fyrirtækinu. hordur@frettabladid.is 500 til 600 milljónir króna munu sparast að mati stjórnenda Festar vegna samlegðaráhrifa af samrunanum Við höfum ekki fækkað fólki í verslunum eða á bensín- stöðvum heldur í stoðeiningum. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar 5 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K u d a g u r2 markaðurinn 0 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A 2 -C D 6 4 2 1 A 2 -C C 2 8 2 1 A 2 -C A E C 2 1 A 2 -C 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.