Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 23
Smart Boutique
sérhæfir sig í
leðurhönskum
og skinnvörum
svo sem húfum
og krögum úr
ref, mink og
kanínu en einnig
er boðið upp
á stóra gervi-
feldarlínu sem
inniheldur
meðal annars
húfur, kraga,
töskur og vesti.
„Þegar við duttum niður á þetta frábæra rými hér í Kringlunni þá var það okkur auðvitað hvatning til að gera enn
betur; auka úrval og bæta vöruflokka. Því hér ætlum við að vera til framtíðar,“ segir Katrin. Mynd/Anton BrinK
Kynningarafsáttur er
af ferðatöskum þessa
dagana.
Hjónin Katrin G. Whalley og Tómas Skúlason hafa rekið Smart Boutique í um 14 ár.
Þau sérhæfa sig í leðurvörum og
segjast nú vera komin heim með
glæsilega verslun sína sem þau
hafa verið að byggja upp jafnt og
þétt frá stofnun; þau hafa flutt stór
skemmtilega búð sína í Kringluna.
Saga hennar er athyglisverð og
ef til vill lýsandi fyrir verslunar
rekstur á Íslandi.
„Lengst af vorum við að Lauga
vegi 46 og undum hag okkar vel.
Þar tókst okkur að byggja upp
traustan hóp viðskiptavina. Við
færðum okkur yfir á Laugaveg 55
en misstum húsnæðið sem var
lagt undir hótelrekstur, nokkuð
sem margir kannast við sem hafa
verið með rótgrónar verslanir í
rekstri. Þær hafa mátt víkja vegna
sprengingar í ferðaþjónustu,“ segja
þau Katrin og Tómas sem eru sam
hent um reksturinn.
Við tók millibilsástand. Hjónin
færðu rekstur sinn yfir í hinn
hýra Hafnarfjörð og voru þar með
Smart Boutique í tvö ár. Þar hugs
uðu þau næsta leik og vildu líta til
framtíðarhúsnæðis fyrir búðina
sem þau höfðu lagt svo mikið í.
„Þegar við duttum niður á þetta
frábæra rými hér í Kringlunni þá
var það okkur auðvitað hvatning
til að gera enn betur; auka úrval
og bæta vöruflokka. Því hér ætlum
við að vera til framtíðar,“ segir
Katrin.
Hvergi betra
úrval leðurhanska
Smart Boutique sérhæfir sig í leður
hönskum og skinnvörum svo sem
húfum og krögum úr ref, mink og
kanínu en einnig er boðið upp á
stóra gervifeldarlínu sem inni
heldur meðal annars húfur, kraga,
töskur og vesti.
Smart Boutique er með í boði
leðurhanska sem eru í yfir 120
litum og hátt í 400 tegundir fyrir
dömur og herra og er það líklegast
eitt mesta úrval sem finna má í
einni búð í allri Evrópu og þó víðar
væri leitað.
„Hér má fá vandaða leðurhanska
frá 4.590 krónum,“ segir Tómas,
sem er mikill veiðimaður og veit
um hvað hann talar í þeim efnum:
„Við höfum verið að hanna okkar
eigin hanskalínu og við notum
meðal annars íslenskt fiskroð og
hágæða lambsleður sem hefur
notið mikilla vinsælda enda ein
stakir hanskar – algerlega „unique“
hér í Smart Boutique!“ Verslunar
eigandinn slær á létta strengi og
bendir jafnframt á að þau hafi verið
að bæta úrval leðurbelta og seðla
veskja í búðinni, bæði fyrir dömur
og herra og geti boðið þau á mjög
sanngjörnu verði eða frá 3.500
krónum.
Komin heim í bestu
verslunarmiðstöðina
Ekki fer á milli mála að þau hjón
eru stolt af þeim vörum sem þau
höndla með. Katrin segir það
nýjasta í þeim efnum vera ferða
töskur.
„Mjúkar og harðar töskur og
verðið er ótrúlega hagstætt: Fjórar
töskur misstórar kosta 51.600
krónur. Nú er kynningarafsláttur í
boði sem nemur um 30 prósentum
og kostar þá settið 36.900, það er
ef allar fjórar töskur eru teknar
saman. Þetta er verð sem ekki hefur
sést áður á Íslandi fyrir fjórar vand
aðar ferðatöskur á hjólum.“
Viðskiptavinahópur Smart Bout
ique hefur vaxið hratt og örugglega
allt frá stofnun, viðskiptavinir eru
á öllum aldri og hafa margir haldið
tryggð við búðina. Sumar konur
eiga orðið á annan tug hanska frá
Smart Boutique og koma á hverju
hausti og fá sér nýjan lit.
„Fastir viðskiptavinir fá klippi
kort þar sem veglegur afsláttur er
veittur af 2. og 5. pari,“ segir Katrin.
Þau hjónin sem reka Smart
Boutique eru lífleg, hress og
skemmti leg og velkjast ekki í vafa
um að þau séu nú komin með búð
sína í bestu verslunarmiðstöð á
Íslandi og þó fyrr hefði verið. Rót
gróin verslunin er komin heim og
þau vilja nota tækifærið og bjóða
gamla og trausta viðskiptavini sem
og nýja hjartanlega velkomna í
glæsilega verslun sína sem nú má
finna á 1. hæð í Kringlunni.
Glæsileg leðurverslun
komin heim í Kringluna
Smart Boutique
hefur byggt upp
traustan hóp við-
skiptavina á þeim
14 árum sem
verslunin hefur
verið starfrækt.
FÓLK KynninGArBLAÐ 3 M i ÐV i KU dAG U r 5 . d e S e m B e r 2 0 1 8
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
2
-C
D
6
4
2
1
A
2
-C
C
2
8
2
1
A
2
-C
A
E
C
2
1
A
2
-C
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K