Fréttablaðið - 05.12.2018, Blaðsíða 24
Guðný Hafsteinsdóttir, keramiker og hönnuður, hlaut Skúlaverðlaunin 2018
sem afhent voru á sýningunni
Handverk og hönnun sem haldin
var í Ráðhúsi Reykjavíkur um
síðustu helgi. Verðlaunin fékk hún
fyrir tappa fyrir flöskur sem kallast
Beware en þeir eru ísbjarnarhöfuð
úr steyptu postulíni. Tapparnir
eru kónískir og ganga því í alls
konar gerðir af flöskum að hennar
sögn. „Hvítabjörninn vakti auð
vitað mikla athygli á Handverki
og hönnun og það var ekki slæmt
að fá Skúlaverðlaunin því þau er
í senn mjög mikil hvatning og
viðurkenning. Hugmyndin með
tappana er að gera dýr sem stafar
ógn af en kveikir um leið jákvæðar
tilfinningar. Fyrsta dýrið sem ég
notaði var köttur, nánar tiltekið
jólakötturinn, en hann kveikir
ákveðin hughrif hjá t.d. katta
vinum og jólabörnum. Í ár er það
hvítabjörninn en mér fannst vel
við hæfi að velja hann á aldar
afmæli fullveldisins, því frostavet
urinn mikla 1918 komu 27 hvíta
birnir að landi. Á næsta ári mun
ég síðan kynna fugl til sögunnar.
Flöskurnar endurvinn ég með því
að sandblása en þær eru frá Eim
verki.“ Verðlaunin, sem eru styrkt
af Samtökum iðnaðarins, eru
kennd við Skúla Magnússon fógeta
sem var frumkvöðull smáiðnaðar
í Reykjavík.
Nostalgía í verkunum
Guðný segist vinna á mörkum
myndlistar og hönnunar þar sem
handverkið gegni mikilvægu hlut
verki en hún vinnur alla sína hluti
sjálf. „Ég held að segja megi að það
sé oft einhvers konar nostalgía
í verkum mínum og á stundum
tilvísun í söguna og menningar
arfinn. Annars sæki ég innblástur í
umhverfið, t.d. arkitektúr og nátt
úruform hvers konar. Vélarhlutir
og ýmiss konar manngerð form
geta líka verið áhrifavaldar og
auðvitað hafa litir náttúrunnar og
samspil áhrif á mig þegar kemur
að glerjun.“
Hvetjandi félagsskapur
Guðný er fædd í Vestmannaeyjum
en flutti í Kópavoginn sjö ára
gömul þar sem hún ólst upp og
hefur starfað alla tíð. „Þar hef ég
rekið vinnustofuna Skruggustein í
Auðbrekku 4 ásamt fleirum síðan
Mikil hvatning
og viðurkenning
Guðný Hafsteinsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2018 sem
afhent voru á sýningunni Handverk og hönnun um síð-
ustu helgi. Verðlaunin fékk hún fyrir tappa sem kallast
Beware og eru ísbjarnarhöfuð úr steyptu postulíni.
„Ég held að segja megi að það sé oft einhvers konar nostalgía í verkum mín-
um,“ segir Guðný Hafsteinsdóttir, keramiker og hönnuður. MYND/ANTON BRINK
Meðal verka Guðnýjar eru bollar, skálar, vasar, kertastjakar og snagar. Hún fékk Skúlaverðlaunin 2018 fyrir ísbjarnartappana sem sjást hér til hægri og kallast Beware.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Hér nostrar Guðný við hvítabjarnarhöfuð áður en það fer í hrábrennslu.
Hvítabjarnarhöfuðin notar hún við gerð Beware tappanna. MYND/ANTON BRINK
ég lauk námi. Að reka vinnustofu
í samvinnu við aðra gerir það að
verkum að auðveldara og hag
kvæmara er að búa vinnustofuna
vel úr garði með tækjum og nýting
á rými verður betri. Þar fyrir utan
er félagsskapurinn mjög hvetjandi
og við lærum hvert af öðru.“
Góður vettvangur
Hún segist alla tíð hafa verið virk
í sýningarhaldi, bæði heima og
erlendis. „Undanfarin ár hef ég
tekið þátt í HönnunarMars og
Handverki og hönnun í Ráðhús
inu en hvort tveggja finnst mér
vera góður vettvangur til kynn
ingar og til að vekja athygli á því
sem ég stend fyrir. Á sýningunni í
Ráðhúsinu síðustu helgi sýndi ég
t.d. baugana mína sem eru í senn
kertastjakar og veggverk. Einnig
sýndi ég þar bolla, skálar, vasa og
snaga. Þar vakti líka mikla athygli
hönnun sem ég kalla Sporin og
sýndi fyrst á HönnunarMars á
síðasta ári, en þau eru í senn kerta
stjakar og vasar og gefa möguleika
á ýmiss konar uppröðun og leik.“
Hönnun Guðnýjar má skoða
á gudnyhaf.is og á Instagram
(gudnyhaf).
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D e S e M B e R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
5
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
2
-C
8
7
4
2
1
A
2
-C
7
3
8
2
1
A
2
-C
5
F
C
2
1
A
2
-C
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K