Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2018, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 05.12.2018, Qupperneq 36
Markaðurinn instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 5. desember 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Stjórnar- maðurinn 03.12.2018 Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, það er mikill misskilningur. Fiskurinn á sig sjálfur í sjónum. Af því þegar hann syndir yfir aðrar lög- sögur þá á hann sig sjálfur. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda   Rekstrarfélag fataverslana Húrra Reykjavík  hagnaðist um liðlega 20 milljónir króna í fyrra borið saman við 37 milljóna króna hagnað árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins, JS Reykjavík, fyrir síðasta ár. Verslanirnar seldu vörur fyrir samanlagt tæpar 375 milljónir króna á síðasta ári og jókst salan um 58 prósent frá fyrra ári þegar hún nam um 238 milljónum króna. Rekstrarfélagið átti eignir upp á 135 milljónir króna í lok síðasta árs en á sama tíma var eigið fé þess 26 millj- ónir króna og eiginfjárhlutfallið því um 19 prósent. Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson opnuðu fyrstu verslun Húrra Reykjavík, herra- fataverslun, á Hverfisgötu haustið 2014 en verslun með kvenfatnað var opnuð í sömu götu tveimur árum síðar. – kij  Húrra reykjavík hagnast um 20 milljónir Sindri Snær Jensson. PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur Bókhald Jafnlaunavottun Áhættustýring Endurskoðun Verðmæti Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Ráðgjöf Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar Skattamál niðurgreiddur alibaba  Alþingi afgreiddi í vikunni neyðarlán til Íslandspósts upp á 1,5 milljarða króna. Ástæða fyrir rekstrarvandræðum póstsins er einföld, en samkvæmt alþjóða­ samningi ber félaginu að niður­ greiða póstsendingar frá þróunar­ löndum um 70 til 80 prósent. Því miður fyrir forsvarsmenn póstsins, þá telst Kína meðal þróunar­ landa samkvæmt samningnum og uppgangur þarlendra netverslana hefur því leitt til stórkostlegrar útgjaldaaukningar. Alibaba er með öðrum orðum að sliga Íslandspóst. Þetta er þó ekki eina ástæða rekstrarvanda Íslandspósts. Fjár­ festingar félagsins hafa einnig vakið athygli en meðalfjárfesting á ári undanfarin tíu ár nemur um 700 milljónum. Frá 2006 hefur Íslandspóstur varið um 5,8 millj­ örðum í fjárfestingar í fasteignum, lóðum, áhöldum, tækjum og bif­ reiðum. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 milljónir verið seldar. Nettófjárfesting á tímabilinu er því rúmir fimm milljarðar á verðlagi hvers árs fyrir sig. Nú er það ekkert nýtt að rekstur póstþjónustu sé óarðbær á tímum verslunar á netinu. Þannig hefur Trump gagnrýnt Amazon harðlega fyrir að láta þarlenda póstþjónustu niðurgreiða pakkasendingar sínar. Á Íslandi, örríki þar sem verslun og þjónusta á undir högg að sækja, magnast þessi vandi upp enn frekar. Þetta fyrirkomulag veldur því að innlend verslun þarf að keppa við niðurgreidda þjónustu erlendra keppinauta. Sama gildir um einkaaðila sem kynnu að vilja veita Íslandspósti samkeppni um bögglasendingar. Auðvitað keppa þeir ekki við  niðurgreiddar sendingar hjá Íslandspósti. Þetta er ekki eina dæmið um að ríkið sé í óþarfa samkeppnis­ rekstri. Fjölmiðlar þurfa að búa við óbærilega samkeppni frá RÚV, og fjarskiptafyrirtæki við að Gagna­ veitan leggi línur og kapla við hlið innviða einkafyrirtækjanna. Hvað póstþjónustu varðar er gengið skrefinu lengra, og ríkisaðstoðin nær út fyrir landsteinana. Nógu erfið er samkeppnisstaða Íslands þó svo ekki bætist við niður­ greiðsla ríkisins í þágu erlendra keppinauta. Vonandi er þetta eina lánið sem þarf að veita Íslands­ pósti, og í millitíðinni beiti ríkið sér fyrir því að uppræta þetta fáránlega ástand á póstþjónustu­ markaði. 0 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 A 2 -C 8 7 4 2 1 A 2 -C 7 3 8 2 1 A 2 -C 5 F C 2 1 A 2 -C 4 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.