Fréttablaðið - 05.12.2018, Síða 39

Fréttablaðið - 05.12.2018, Síða 39
Planeta Singli 2 (polish w/eng sub) 17:30 Svona fólk (icelandic - no sub) ....... 18:00 Erfingjarnir//The Heiresses (ice sub) ..18:00 Serce nie sluga (polish w/eng sub) 20:00 Litla Moskva (icelandic - no sub) .. 20:00 Anna and the Apocalypse (ice sub) 22:00 Mæri // Border (eng sub) .................. 22:00 Hinn seki // The Guilty (ice sub)......22:10 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn ára s. 511 1100 | www.rymi.is Brettatjakkar Kynningarverð: 43.179 kr. m/vsk Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 5. desember 2018 Tónlist Hvað? Jólatónleikar Kammerkórs Sel- tjarnarneskirkju Hvenær? 20.00 Hvar? Seltjarnarneskirkja Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur sína árlegu jólatónleika í kvöld, miðvikudaginn 5. des., kl. 20.00 í Seltjarnarneskirkju. Á efnisskránni er bæði kórsöngur og ýmsir kórfélagar munu einnig syngja einsöng. Flutt verða jóla- lög og önnur tónlist frá ýmsum tímum. Að venju er frítt inn á tónleikana og allir eru innilega vel- komnir. Hvað? Rósa & Nonni the 80s version vol. 2 Hvenær? 21.00 Hvar? Miami, Hverfisgötu Rósa og Nonni vefja saman djassi og 80s lögum af sinni einstöku snilld. Lagavalið er sérstaklega hressandi og undirleikur Nonna við seiðandi djassrödd Rósu er heillandi. Hvað? Come Closer – Borgar Magna- son Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu Í apríl 2019 kemur út fyrsta breið- skífa af þremur með tónlist Borg- ars á vegum plötufyrirtækisins Pussyfoot Records. Hann leggur þessa dagana lokahönd á plötuna í samvinnu við tónlistarmennina Albert Finnbogason og Howie B og er efni kvöldsins tekið af henni. Hvað? Dúkkulísur – Enn og aftur jól Hvenær? 21.00 Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði Hinar einu sönnu Dúkkulísur ætla að endurtaka leikinn og halda jóla- tónleika í ár! Dúkkulísurnar láta sér það ekki nægja heldur kynna þær einnig glænýja jólaplötu – Jól sko! – til sögunnar. Og eins og allir vita er ekki hægt að halda jól án Pálma Gunnarssonar sem verður heiðursgestur tónleikanna. Gömlu góðu jólalögin verða líka rifjuð upp og að sjálfsögðu nóg af rokki – Pamela í Dallas rokk og ról! Hvað? Jólin okkar Hvenær? 20.00 Hvar? Gamla bíó, Ingólfsstræti Jólatónleikar Hinsegin kórsins verða í Gamla bíói þetta árið. Við ætlum að fara aðeins aðrar leiðir en við erum vön og verðum órafmögn- uð í þetta skiptið. Efnisskráin er að venju fjölbreytt og skemmtileg. Við munum meðal annars frumflytja lag eftir kórstjórann okkar, syngja lag sem var sungið í konunglegu brúðkaupi, rifja upp lög sem við höfum flutt áður, syngja lög sem við höfum ekki flutt áður og krydda þetta allt með dassi af jólalögum. Kórstjóri er Helga Margrét Mar- zellíusardóttir og píanóleikari er Vignir Þór Stefánsson. Viðburðir Hvað? Menning á miðvikudögum með Terry Gunnell Hvenær? 12.15 Hvar? Bókasafn Kópavogs Uppruni og þróun íslenskra jóla allt frá heiðni til Coca Cola er umfjöllunarefni Terry Gunnell, prófessors í þjóðfræði við Háskóla Íslands, í Menningu á miðvikudög- um sem verður á aðalsafni Bóka- safns Kópavogs í dag, 5. desember, kl. 12.15. Hann fjallar um bak- grunn og þróun jólasiða á Íslandi frá upphafi og segir frá Grýlu, jóla- sveinunum, jólakettinum og jóla- mat í alþjóðlegu samhengi. Hvað? Jólaföndur og Jólasögustund fyrir yngstu börnin Hvenær? 16.30 Hvar? Bókasafn Seltjarnarness Ásdís Kalman stýrir jólaföndri og Gerður Kristný kemur og les upp úr bók sinni Jóladýrin. Hvað? Óhóf 2018 Hvenær? 17.00 Hvar? Loft, Bankastræti Hugvekjandi upp-spretta í nafni matarsóunar. Drykkir og veitingar unnin úr lítið nýttum matvælum. Forljótir drykkir, vodka úr göml- um ávöxtum, bjór úr gömlu brauði og fleira spennandi. Amabadama tekur lagið og Sigga Dögg kyn- fræðingur verður með matar- sóunarhugvekju. Hvað? Borðtennismót Húrra Hvenær? 20.00 Hvar? Húrra, Tryggvagötu Húrra blæs til borðtennismóts! Keppt verður í einliðaleikjum, með útsláttarkeppni. Skráning þátttakenda á staðnum kl. 20.00. Dómari og hýsill verður Beglí, eða Begga Teds eins og hún hefur verið kölluð í borðtennisbransanum. Hvað? Fjármál við starfslok – Jólakaffi Hvenær? 17.00 Hvar? Íslandsbanki, Hagasmára Íslandsbanki býður á sérstakan jólafund um fjármál við starfslok. Björn Berg Gunnarsson, fræðslu- stjóri Íslandsbanka, ræðir málin við gesti og fer yfir það helsta sem hafa ber í huga við undirbúning starfsloka. Hvað? Uppistand og spádómskvöld með Siggu Kling Hvenær? 20.45 Hvar? Krydd veitingahús, Hafnarfirði Súperstjarnan og sjarmatröllið Sigga Kling verður aftur með uppi- stand og spádómskvöld hjá okkur á Kryddi veitingahúsi í kvöld, 05.12. Hvað? Þrísætur upplestur; Bergrún, Lilja & Sigga Hvenær? 20.00 Hvar? Gunnarshús, Dyngjuvegi Þrír höfundar leiða saman bækur sínar. Bergrún Íris Sævarsdóttir mun kynna Langelstur í bekknum, Leynifélagið og Næturdýrin. Lilja Katrín Gunnarsdóttir mun kynna Minn sykursæti lífsstíll. Sigga Dögg kynfræðingur kynnir sína fyrstu skáldsögu, kynVeru. Hvað? Innsetningarathöfn – Egill Skúlason Hvenær? 16.00 Hvar? Askja, Háskóla Íslands Egill Skúlason hefur hlotið fram- gang í stöðu prófessors í efna- verkfræði við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræði- deild Háskóla Íslands. Í tilefni þess verður haldin hátíðleg athöfn þar sem hann heldur tölu og fer yfir farinn veg. Amabadama tekur nokkur lög á Lofti hosteli í kvöld. FréttAbLAðið/Ernir Gerður Kristný les fyrir börnin í bókasafni Seltjarnarness. FréttAbLAðið/Eyþór m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15m i ð V i K U D A g U R 5 . D e s e m B e R 2 0 1 8 0 5 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A 2 -D 2 5 4 2 1 A 2 -D 1 1 8 2 1 A 2 -C F D C 2 1 A 2 -C E A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.