SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 3
3
3. tbl. 2017Leiðari
Munu börnin okkar
lifa skemur en við?
Guðmundur Löve
framkvæmdastjóri SÍBS
SÍBS-blaðið
33. árgangur | 3. tölublað | okt. 2017
ISSN 1670-0031 (prentuð útgáfa)
ISSN 2547-7188 (rafræn útgáfa)
Útgefandi: SÍBS
Síðumúla 6
108 Reykjavík
sibs@sibs.is, www.sibs.is
Ábyrgðarmaður: Guðmundur Löve
gudmundur@sibs.is
Ritstjóri: Páll Kristinn Pálsson
pallkristinnpalsson@gmail.com
Auglýsingar: Öflun ehf.
Umbrot og prentun: Prentmet ehf.
Upplag: 9.000 eintök
Hlutverk SÍBS er að stuðla að
heilbrigði þjóðarinnar.
SÍBS á og rekur endurhæfingar-
miðstöðina Reykjalund,
öryrkjavinnustaðinn Múlalund,
Heilsumiðstöð SÍBS og Verslun SÍBS,
auk Happdrættis SÍBS.
Efnisyfirlit
4
Áhrif bólgu á hjarta-
og æðasjúkdóma
8
Bólga, líkamsfita og
langvinnir sjúkdómar
12
Vöðvabólga
er ekki bólga
14
Raunverulegir bólgusjúkdómar
oftast langvinnir
18
Svefn og bólgur
20
Bólgur vegna meiðsla
og álags í íþróttum
Blikur eru á lofti varðandi framþróun undanfarinna áratuga þar sem meðalævin
hefur lengst og sjúkdómsbyrðin hefur minnkað. Ef ekkert er að gert stefnir í að
kynslóð barnanna okkar lifi skemur en við sjálf og við verri heilsu.
Sextíu og fimm ára gamall Íslendingur gat vænst þess að lifa fjórum mánuðum
skemur árið 2016 en árið þar á undan, og þarf að leita aftur til 2013–14 til að sjá
þessa tölu aftur: 19 ár ólifuð fyrir karla og 21 ár fyrir konur. Ævilíkur við fæðingu
breytast minna. Konur hafa getað vænst þess að lifa fram á 84. æviár síðan árið
2009 og karlar fram á það 81. síðan 2011. Þetta má lesa út úr upplýsingum Hag-
stofunnar um meðalævilengd og eftirlifendatölu.1
Árið 2015 styttist meðalævi Bandaríkjamanna í fyrsta sinn í áratugi, síðan HIV-
faraldurinn hjó skörð í raðir yngra fólks á tíunda áratugnum. Um leið fór dánartíðni
af völdum krabbameina minnkandi meðan dánartíðni af völdum hjarta- og æða-
sjúkdóma, langvinnra lungnasjúkdóma, Alzheimer og sykursýki fór vaxandi. Þetta
má lesa út úr gögnum frá bandarísku Smitsjúkdóma- og forvarnastofnuninni.2
Hér á Íslandi hafa hefðbundnir áhættuþættir kransæðasjúkdóma eins og reyk-
ingar, hátt kólesteról í blóði og háþrýstingur verið á undanhaldi síðan 1980. Vax-
andi offita og sykursýki gæti snúið þeirri þróun við á næstu áratugum verði ekkert
að gert, en rannsóknir Hjartaverndar benda til þess að breytingar á lífsstíl þjóðar-
innar muni leiða af sér vaxandi dánartíðni vegna sjúkdómsins á komandi áratugum.
Ísland er það eina af Norðurlöndunum þar sem algengara er að vera í ofþyngd eða
offitu heldur en í kjörþyngd og Íslendingar borða langmest af sætmeti. Þetta og
fleira má lesa í grein Karls Andersen og fleiri í Læknablaðinu í október 2017.3
Það eru ekki einungis aukin dánartíðni og lækkandi meðalaldur sem við þurf-
um að hafa áhyggjur af, heldur fer sjúkdómsbyrðin vaxandi með auknu algengi
langvinnra, lífsstílstengdra sjúkdóma á borð við sykursýki 2 og aukinnar tíðni offitu
og tengdra kvilla. Allt bendir til þess að áframhaldandi aukning í offitu og sykursýki
muni leiða til aukningar á dauðsföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma á komandi
áratugum.
Að óbreyttu stefnir í að við verðum veikari lengur og deyjum fyrr. Aðeins lýð-
grundaðar forvarnir geta á raunhæfan hátt stöðvað þessa óheillaþróun.
Heimildir:
1. Hagstofa Íslands. Meðalævilengd og eftirlifendatala 1971–2016, http://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/
Ibuar/Ibuar__Faeddirdanir__danir__danir/MAN05401.px/ (sótt 10. okt. 2017). Hagstofa Íslands. 2017.
2. Xu JQ, Murphy SL, Kochanek KD, Arias E. Mortality in the United States, 2015. NCHS data brief, no
267. Hyattsville, MD: National Center for Health Statistics. 2016.
3. Karl Andersen og fleiri. Úr gögnum Hjartaverndar: Faraldsfræði kransæðasjúkdóma á Íslandi í hálfa
öld. Læknablaðið 10. tbl. 2017.