SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 12

SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 12
12 SÍBS-blaðiðGrein Gunnar Svanbergsson, MT-sjúkraþjálfari og sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir, MT-sjúkraþjálfari og sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis Þegar talað er um að fólk sé með vöðvabólgu er almennt verið að tala um það sem nefnist á ensku „myalgia“, eða „myo fascial pain syndrome (MPS). Þetta leiðindaástand er afar algengt og rannsóknarniðurstöður telja algengi kringum 21-30% í Bandaríkjunum, sem þýðir um 44 miljónir manna og kostnaður heilbrigðiskerfisins er árlega um 47 billjón dollarar.1 Ekki bólga Íslenska orðið „vöðvabólga“er því miður misvísandi því að ekki er um hefðbundna bólgu og/eða bólguviðbrögð að ræða. Heldur má segja að vöðvinn þrútni um leið og hann stífnar, missir oft teygjanleika, styrk og úthald og stundum mynd- ast svokallaðir „trigger punktar“ í honum.2-5 Þannig verður vöðvinn oft fyrirferðarmeiri og stífari en áður var, en þessi stífni er oft tilkomin vegna of mikillar spennu, sem hins vegar er talin vera tilkomin af mismunandi orsökum. Þessi bólgu- umræða hefur meðal annars komið þeirri umræðu af stað að gott sé að taka inn bólgueyðandi lyf þegar fólk fær vöðva- bólgu, en svo er oftast ekki, nema í mesta lagi af óbeinum ástæðum eins og til dæmis þeim að bólginn liður sé að valda stífni í vöðvanum (varnarspenna út af liðbólgunni). Þá getur spennan í vöðvanum minnkað um leið og liðbólgan minnkar. Spenna Það sem talið er að gerist í vöðvanum við þessar aðstæður sem kallast vöðvabólga, er að vöðvinn er spenntari en góðu hófi gegnir og því verður blóðflæðið minna um hann. Spennti vöðvinn þrengir þannig að æðum vöðvans. Við þær aðstæður kemst ekki nægjanleg næring og súrefni til hans, sem þarf í raun enn meiri næringu í þessari sífellu spennu, og úrgangs- efnin sem koma frá vöðvanum komast ekki öll í burtu sem skyldi og safnast því upp í honum. Þessi efni gera vöðva- vefinn enn stífari og þar með hefur vítahringur myndast.4 Til að rjúfa þennan vítahring þarf að auka blóðflæðið um vöðvann með öllum tiltækum ráðum. Ef vöðvinn er orðinn mjög stífur viðkomu, sem gerist með tímanum, þarf einnig að leggja mikla áherslu á að mýkja vöðvavefinn. Æfingar eru í aðalhlutverki við að rjúfa þennan vítahring, æfingar sem stuðla að auknum styrk, úthaldi og teygjanleika við- komandi vöðva, en einnig getur fleira hjálpað eins og t.d. mjúkvefjameðferð og nálastungur.4,5 Stundum eru vöðvarnir búnir að valda fleiri vandamálum í stoðkerfinu með tímanum. Til dæmis geta þeir þrengt að taugum og valdið ertingum eða hamlað liðhreyfingum. Taka þarf á þeim vandamálum sam- hliða því að mýkja vöðvana, þegar það á við. Orsakir En af hverju skyldi fólk fá vöðvabólgu? Eins og fyrr segir eru ástæðurnar margar og mismunandi en tengjast oftast ofnotkun vöðvans á einn eða annan hátt. Nefnd hefur verið varnarspenna vöðva vegna bólginna liða, en varnarspenna getur einnig komið vegna annarra þátta sem tengjast verkjum Vöðvabólga er ekki bólga Sjaldnast er gagn í að taka bólgueyðandi lyf við vöðvabólgu, nema í mesta lagi af óbeinum ástæðum eins og þegar bólginn liður veldur stífni í vöðvanum.

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.