SÍBS blaðið - okt 2017, Qupperneq 12
12
SÍBS-blaðiðGrein
Gunnar Svanbergsson,
MT-sjúkraþjálfari og sérfræðingur
í greiningu og meðferð stoðkerfis
Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir,
MT-sjúkraþjálfari og sérfræðingur
í greiningu og meðferð stoðkerfis
Þegar talað er um að fólk sé með vöðvabólgu er almennt
verið að tala um það sem nefnist á ensku „myalgia“, eða
„myo fascial pain syndrome (MPS). Þetta leiðindaástand er
afar algengt og rannsóknarniðurstöður telja algengi kringum
21-30% í Bandaríkjunum, sem þýðir um 44 miljónir manna og
kostnaður heilbrigðiskerfisins er árlega um 47 billjón dollarar.1
Ekki bólga
Íslenska orðið „vöðvabólga“er því miður misvísandi því að
ekki er um hefðbundna bólgu og/eða bólguviðbrögð að ræða.
Heldur má segja að vöðvinn þrútni um leið og hann stífnar,
missir oft teygjanleika, styrk og úthald og stundum mynd-
ast svokallaðir „trigger punktar“ í honum.2-5 Þannig verður
vöðvinn oft fyrirferðarmeiri og stífari en áður var, en þessi
stífni er oft tilkomin vegna of mikillar spennu, sem hins vegar
er talin vera tilkomin af mismunandi orsökum. Þessi bólgu-
umræða hefur meðal annars komið þeirri umræðu af stað að
gott sé að taka inn bólgueyðandi lyf þegar fólk fær vöðva-
bólgu, en svo er oftast ekki, nema í mesta lagi af óbeinum
ástæðum eins og til dæmis þeim að bólginn liður sé að valda
stífni í vöðvanum (varnarspenna út af liðbólgunni). Þá getur
spennan í vöðvanum minnkað um leið og liðbólgan minnkar.
Spenna
Það sem talið er að gerist í vöðvanum við þessar aðstæður
sem kallast vöðvabólga, er að vöðvinn er spenntari en góðu
hófi gegnir og því verður blóðflæðið minna um hann. Spennti
vöðvinn þrengir þannig að æðum vöðvans. Við þær aðstæður
kemst ekki nægjanleg næring og súrefni til hans, sem þarf í
raun enn meiri næringu í þessari sífellu spennu, og úrgangs-
efnin sem koma frá vöðvanum komast ekki öll í burtu sem
skyldi og safnast því upp í honum. Þessi efni gera vöðva-
vefinn enn stífari og þar með hefur vítahringur myndast.4
Til að rjúfa þennan vítahring þarf að auka blóðflæðið um
vöðvann með öllum tiltækum ráðum. Ef vöðvinn er orðinn
mjög stífur viðkomu, sem gerist með tímanum, þarf einnig
að leggja mikla áherslu á að mýkja vöðvavefinn. Æfingar
eru í aðalhlutverki við að rjúfa þennan vítahring, æfingar
sem stuðla að auknum styrk, úthaldi og teygjanleika við-
komandi vöðva, en einnig getur fleira hjálpað eins og t.d.
mjúkvefjameðferð og nálastungur.4,5 Stundum eru vöðvarnir
búnir að valda fleiri vandamálum í stoðkerfinu með tímanum.
Til dæmis geta þeir þrengt að taugum og valdið ertingum eða
hamlað liðhreyfingum. Taka þarf á þeim vandamálum sam-
hliða því að mýkja vöðvana, þegar það á við.
Orsakir
En af hverju skyldi fólk fá vöðvabólgu? Eins og fyrr segir
eru ástæðurnar margar og mismunandi en tengjast oftast
ofnotkun vöðvans á einn eða annan hátt. Nefnd hefur verið
varnarspenna vöðva vegna bólginna liða, en varnarspenna
getur einnig komið vegna annarra þátta sem tengjast verkjum
Vöðvabólga
er ekki bólga
Sjaldnast er gagn í að
taka bólgueyðandi lyf við
vöðvabólgu, nema í mesta
lagi af óbeinum ástæðum eins
og þegar bólginn liður veldur
stífni í vöðvanum.