SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 4

SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 4
4 SÍBS-blaðiðGrein Axel F. Sigurðsson læknir Mikill árangur hefur náðst í baráttunni við kransæðasjúkóma hér á landi eins og víðast hvar á Vesturlöndum. Þetta ber að miklu leyti að þakka lækkandi tíðni reykinga, lægra kólesteróli í blóði og betri blóðþrýstingsstjórnun. Margir sérfræðingar telja að útrýma megi ótímabærum veikindum og dauða vegna hjarta- og æðasjúkdóma með því að ná betri tökum á ofangreindum áhættuþáttum Enn eru þó blikur á lofti. Þrátt fyrir að dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma hafi lækkað umtalsvert taka þessir sjúkdómar enn háan toll og eru tíð orsök dauðsfalla og örorku. Þá er líklegt að vaxandi tíðni offitu og sykursýki af tegund 2 muni snúa við þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur. Þótt árangur hafi náðst er rétt að velta fyrir sér hvers vegna hann er ekki meiri en raun ber vitni. Sumir telja það vera vegna þess að við höfum ekki gengið nógu langt í barátt- unni við hina hefðbundnu áhættuþætti. Þannig mætti hugsa sér að frekari lækkun kólesteróls í blóði og aukin notkun blóðfitulækkandi lyfja myndi fækka kransæðatilvikum enn frekar. Önnur möguleg skýring er að enn vanti hlekki í keðjuna. Hugsanlega þarf að huga að fleiri þáttum en reykingum, kólesteróli og blóðþrýstingi. Nýlegar rannsóknir hafa t.d. sýnt að svefn, hreyfing, streita og félagsleg einangrun geta skipt mikli máli varðandi tilurð hjarta- og æðasjúkdóma. Þá bendir margt til þess að bólga hafi mikla þýðingu fyrir langvinna sjúkdóma eins og kransæðasjúkdóm, sykursýki, krabbamein og hrörnunarsjúkdóma í taugakerfi. Kransæðasjúkdómur Frumorsök hjarta-og æðasjúkdóma má rekja til fyrirbæris sem kallast „atherosclerosis“ og hefur á íslensku verið kallað æðakölkun. Æðakölkun er reyndar villandi orð því fjölmargir aðrir þættir en kalkanir eiga hér hlut að máli. Með æðakölkun er átt við þrengingar á æðum vegna fitu- söfnunar og bólgu í æðaveggjum. Með tímanum geta myndast kalkaðar skellur í æðaveggnum. Æðakölkun getur herjað á allar slagæðar en er mest áberandi í kransæðum, ósæð og slagæðum til heila og útlima. Fljótlega eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk tók tíðni æðakölkunar að aukast hratt. Á sjötta áratug síðustu aldar var kransæðastífla orðin meðal algengustu dánarorsaka á Vesturlöndum. Einkenni kransæðastíflu voru oft skyndileg og afleiðing- arnar alvarlegar. Hraustir einstaklingar fengu skyndilega sáran brjóstverk og alvarlegar hjartasláttartruflanir sem oft leiddu til dauða. Þá voru meðferðarmöguleikar takmarkaðir á þessum tíma. Fljótlega var því farið að tala um faraldur. Áhrif bólgu á hjarta- og æðasjúkdóma Margt bendir til þess að bólga hafi mikla þýðingu fyrir langvinna sjúkdóma eins og kransæðasjúkdóm, sykursýki, krabbamein og hrörnunarsjúkdóma í taugakerfi. www.linde-healthcare.is

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.