SÍBS blaðið - Oct 2017, Page 6

SÍBS blaðið - Oct 2017, Page 6
6 SÍBS-blaðið Athyglisvert er að statinlyf draga einnig úr bólguvirkni. Margir sérfræðingar telja að þessi eiginleiki lyfjanna eigi mikinn þátt í gagnsemi þeirra. Nýlegar niðurstöður lyfjarannsóknar sem ber heitið CANTOS hafa vakið mikla athygli. CANTOS rannsóknin var alþjóðleg rannsókn á sjúklingum sem fengið höfðu kransæðastíflu og mælst með hækkun á hsCRP í blóði. Rannsóknin prófaði áhrif lyfsins canakinumab sem er einstofna mótefni sem gefið er undir húð á þriggja mánaða fresti. Canakinumab er lyf sem dregur úr bólguvirkni í æða- kölkunarskellum. Niðurstöður CANTOS rannsóknarinnar sýna að sjúklingar sem fengu canakinumab fengu ný æðaáföll í minna mæli en sjúklingar sem fengu lyfleysu. CANTOS er tímamótarannsókn því hún sýnir í fyrsta sinn að með því að draga úr bólguvirkni má bæta horfur sjúklinga sem þegar hafa greinst með kransæðasjúkdóm og aukna bóguvirkni. Lífsstíll og langvinnar bólgur Lífsstíll getur haft veruleg áhrif á hversu mikil bólgusvörun verður í slagæðum og öðrum vefjum líkamans. Til dæmis hafa rannsóknir sýnt að tóbaksreykingar ýta undir bólgusvörun á meðan regluleg hreyfing minnnkar bólgusvörun. Mataræði getur haft mikil áhrif á langvinnar bólgur. Rannsóknir hafa sýnt að neysla á viðbættum sykri og einföldum kolvetnum ýtir undir bólgusvörun. Aðrar rannsóknir sýna að neysla á transfitu ýtir undir bólguviðbrögð. Líklegt er að neysla á omega-3 fitusýrum minnki bólgu- svörun. Margar rannsóknir benda til að neysla á grænmeti og ávöxtum minnki bólgusvörun. Dedicated to People Flow Rannsóknir benda til að svokallað Miðjarðarhafsmataræði geti minnkað líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, Parkinson- sjúkdómi, Alzheimersjúkdómi og sumum krabbameinum. Allir þessir sjúkdómar tengjast langvinnri bólgusvörun. Neysla á ólífuolíu, hnetum og fiski virðist einnig draga úr bólgusvörun. Slæmur svefn, kyrrseta og streita ýta undir langvinna bólgusvörun. Þetta kann að vera ein ástæðan fyrir því að þessir þættir auka líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Löngum hefur verið ljóst að lífsstíll okkar tengist hættunni á að fá langvinna sjúkdóma. Langvinn, hægfara bólgusvörun kann að vera einn mikilvægasti þátturinn í tilurð þessarra sjúkdóma. Heilbrigður lífsstíll er áhrifaríkasta leiðin sem við höfum til að draga úr langvinnri, hægfara bólguvirkni. Lykilorðin fjögur eru mataræði, hreyfing, svefn og streita. Slæmur svefn, kyrrseta og streita ýta undir langvinna bólgusvörun. Þetta kann að vera ein ástæðan fyrir því að þessir þættir auka líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Síðumúla 6 | 108 Reykjavík | 560 4802 verslun.sibs.is | Finndu okkur á fb -Hentar fyrir bæði mjúkt og hart undirlag. -Kemur í mörgum litum -Verð 4.990.-

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.