SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 15

SÍBS blaðið - okt. 2017, Side 15
15 3. tbl. 2017 „Við búum við íslenskt tungutak þar sem ýmsir sjúk- dómar eru flokkaðir sem bólgusjúkdómar en þegar grannt er skoðað er ekki um neinar bólgur að ræða,“ segir Ragnar Freyr þegar ég spyr hvar bólgur sé helst að finna. „Hugtakið bólga í læknisfræðinni er alveg ákveðið skilgreint fyrirbæri. Það er að ónæmiskerfi líkamans ræðst á eitthvað sem það túlkar sem óvin sinn, hvort sem það er eigin vefur, framandi vefur, bakteríur, veirur, sveppir eða æxli. Við þá árás myndast ákveðinn þroti, fyrirferð, hiti, verkur og svo gjarnan einhver starfræn truflun. Þetta er það sem kallast bólga í skilningi læknisfræðinnar.“ Bólga og ekki bólga Ragnar Freyr bendir á að enska orðið yfir gigtarlækni sé rheumatologist. „En rheuma er latneska orðið yfir bólgu þannig að rheumatologist er sá sem hefur menntað sig til að fást við bólgur af einhverju tagi. Á íslensku heitir þetta gigtarlæknir og á íslensku er talað um gigt í víðum skilningi. Þannig fæ ég óskir um að sinna ýmsum vandamálum sem fólk skilur sem bólgu en eru það í rauninni ekki. Þannig má segja að þó að einhver bólguferill sé í gangi þegar um slitgigt er að ræða þá er slitgigt ekki bólgusjúkdómur sem svarar hefðbundinni bólgueyðandi meðferð, til dæmis eru sterar hálfgagns lausir, bólgueyðandi lyf létta kannski eitthvað á einkennum, krabba- meinslyf gagnast lítið og líftæknilyf hafa ekki sýnt fram á gagnsemi. Allt eru þetta lyf sem virka mjög vel þegar maður er að fást við hefðbundna bólgusjúkdóma eins og liðagigt, hryggikt, rauða úlfa, æðabólgur eða fjölvöðvabólgur. Þá gagn- ast lyfin enda er í þeim tilfellum verið að ráðast á bólguferla sem við þekkjum vel. Gigtarlæknar eru oft spurðir álits á sjúkdómi sem kallaður er vefjagigt og þar hefur ennþá ekki tekist að sýna fram á mælanlega bólgu af neinu tagi. Þar er í raun um verkjasjúk- dóm að ræða sem upplifist í stoðkerfinu. Vefjagigt og slitgigt eru miklu algengari en eiginlegir bólgusjúkdómar. Af þeim sem ná 100 ára aldri eru allir með einhverja slitgigt, allir glíma sem sé við eitthvað slit. Og hvað varðar vefjagigt þá myndi ég halda að um 4% kvenna og 0,4% karla ættu við það vandamál að stríða á Íslandi í dag. Til samanburðar þá eru um 0,7-1% íslendinga með hryggikt og liðagigt. Það sem ég er að segja er að samkvæmt íslenskum mál- venjum þá virðist margt vera bólga sem er það ekki. Vöðva- bólga er til dæmis ekki bólga, manni er bara illt og hefur kannski meitt sig, tognað, beitt sér eitthvað vitlaust eða sofið illa og vaknað með hálsríg eða eitthvað slíkt. Það má því kannski segja að okkur læknum hafi gengið illa að koma til skila til almennings hvað sé bólga og hvað sé eitthvað annað.“ Rétt eða röng meðferð Ertu þá að segja að fólk hafi almennt rangan skilning á því hvað sé bólga? „Ég vil frekar segja að okkur læknum hafi gengið illa að útskýra hvað þessir hlutir séu og hvað gagnast til að bjarga því. Ef fólk er með svokallaða vöðvabólgu þá eru lyf nán- ast gagnslaus. En ef fólk er með liðagigt þá kemst það ekki langt án lyfja. Mér hefur lengi vel fundist að læknavísindin hafi reynt að leysa mörg vandamál með lyfjum þar sem lyfja er ekki þörf. Ef fólk er með slitgigt, vefjagigt eða langvinna stoðkerfisverki, vöðvabólgu eða slíkt, finnst mér ekki eiga að beita kröftugum lyfjum, sem alls kyns aukaverkanir geta fylgt, þegar ósannað er að þau geri eitthvert gagn. Í slíkum tilfellum finnst mér miklu frekar eiga að beina fólki inn á brautir heilbrigðrar hreyfingar, sjúkraþjálfun, útiveru, göngu- ferða, sundferða, jóga – við ættum að ræða við það um svefn og svefnráðgjöf, andlega líðan, streitu og fleira sem tengist lífsstíl fólks. Þegar fólk kemur á stofuna til mín spyr ég það gjarn- an hversu oft það hreyfi sig í hverri viku. Með því gef ég til kynna að það að hreyfa sig ekki sé ekki valmöguleiki. Maður á að hreyfa sig að minnsta kosti í tvo og hálfan klukkutíma á viku þannig að maður svitni og púlsinn fari úr hvíldarpúlsi í æfingapúls. Kostirnir við það eru afar vel sannaðir, bæði hvað varðar betri svefn, vöðvastarfsemina, hjartað og æðarnar, minnkandi líkum á heilabilun, parkinsonsjúkdómi og svo framvegis. Hreyfing er það sem við ættum að vera að predika lon og don fyrir fólki og þá er líka mikilvægt að fólk finni sér hreyfingu sem því þykir skemmtilegt að stunda. Það skiptir engu máli hvort einstaklingur komi til mín með hryggikt, þvagsýrugigt, slitgigt, vefjagigt eða vöðvabólgu. Lyfja meðferð getur verið mjög mismunandi, allt frá engum lyfj um upp í að beita þungum krabbameinslyfjum til líftækni- lyfja en í öllum tilfellum á fólk að hreyfa sig, já líka þótt fólk sé með alla liði bólgna. Það skiptir alveg ótrúlega miklu máli.“ Alvöru matur Sumir segja að mataræðið skipti meira máli en hreyfingin – hvert er þitt álit? „Það fer eftir því hvað maður er að meðhöndla. Ef maður glímir við offitu má segja að sá sem þarf að hreyfa sig til að passa upp á þyngd sína verði að skoða mataræði sitt nánar. Ef maður er of þungur, með efnaskiptavillu, þvagsýrugigt eða sykursýki þá er ljóst að fókusinn þarf að vera á mataræðið. Það er vitað mál að ruslfæði, transfitusýrur, kolvetnaþungur matur með skjótunnum kolvetnum og auðbrenndum, myndar bólgu í líkamanum sé þessa neytt í miklum mæli. Margar áhugaverðar rannsóknir hafa sýnt fram á þetta. Þetta veldur insúlínviðnámi sem keyrir áfram hjarta- og æða- sjúkdóma, sykursýki og þvagsýrugigt, en hið síðastnefnda er reyndar mín sérgrein. Ég geng eins og margir vita oft undir heitinu Læknirinn í eldhúsinu og er því oft spurður um tengsl mataræðis og sjúkdóma. Í eldhúsinu er ég fyrst og fremst lífsnautnaseggur, hedónisti – en segi alltaf að fólk eigi að borða alvöru mat. Það sem maður leggur sér til munns á að líta út fyrir að vera eitt- hvað sem maður skilur að sé matur. Fiskur á að koma upp úr hafinu og fiskborði í verslun en ekki einhverjum pappakassa umlukinn einhverju gumsi í plastpoka, þá er hann orðinn Það sem maður leggur sér til munns á að líta út fyrir að vera eitthvað sem maður skilur að sé matur. Fiskur á að koma upp úr hafinu og fiskborði í verslun en ekki pappakassa umlukinn einhverju gumsi í plastpoka, þá er hann orðinn fullunnin fæða.

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.