Fréttablaðið - 24.01.2019, Side 2
Veður
Austan 10-15, snjókoma með
köflum og slydda eða rigning síð-
degis við suðurströndina. Hægari
vindur og úrkomulítið norðan heiða,
en dálítil snjókoma síðdegis.
SJÁ SÍÐU 26
Á bretti í Bláfjöllum
Þetta unga fólk virtist hamingjusamt og var rjótt í kinnum á skíðasvæðinu í Blá-
fjöllum, sem var opnað í gær í fyrsta sinn í vetur. Nóg var af skíða- og brettafólki í
brekkunum, enda margir sem hafa beðið þess spenntir að skíðasvæðin opni.KÍNA Veraldarvefsstofnun Kína
(CAC) tilkynnti í gær að fyrirtækið
hefði að undanförnu eytt sjö millj-
ónum innleggja á veraldarvefnum
og nærri 10.000 öppum. Þetta var
gert í átaki gegn „óásættanlegum
og skaðlegum“ upplýsingum sem
hófst í mánuðinum. Aukinheldur
hefur verið lokað fyrir 733 vefsíður.
Ritskoðun á kínverska veraldar-
vefnum er ekki nýtt fyrirbæri. Lokað
er fyrir fjölda þeirra vefsíðna sem
Vesturlandabúar venja komur sínar
á. Talað er um „Vefkínamúrinn“ (e.
Great Firewall of China) í þessu
samhengi. Athugaverðasta dæmi
undanfarinna missera var ef til vill
þegar efni tengt hinum geðþekka
Bangsímon var bannað þar sem
Kínverjar höfðu dregið dár að for-
setanum Xi Jinping með því að líkja
honum við teiknimyndabjörninn
vinsæla.
Tæknirisinn Tencent, þekkt fyrri
tölvuleiki á borð við League of Leg-
ends og á að auki hluta í Fortnite,
fékk slæma útreið í yfirlýsingu CAC
í gær. Kínverska stofnunin sagðist
hafa lokað fyrir fréttaappið Tiantian
Kuiabao vegna þess að þar hefði
„groddalegum og lágkúrulegum
upplýsingum sem skaða vistkerfi
veraldarvefsins“ verið dreift. – þea
Kína lokaði
fyrir þúsundir
smáforrita
Trúlega lítur lyklaborð kínverskra
ritskoðenda þó ekki út eins og á
myndinni. NORDICPHOTOS/GETTY
SKIPULAGSMÁL Húseigendur í
þremur hverfum Reykjavíkur til
að byrja með eiga að fá stóraukið
frelsi til að nýta eignir sínar til þétt-
ingar byggðar samkvæmt tillögu að
hverfaskipulagi fyrir Árbæ, Selás og
Ártúnsholt sem tekin verður fyrir í
í borgarráði í dag.
„ Hve r f i s s k i p u l a g e r ný t t
skipulags tæki sem einfaldar íbúum
að gera breytingar á fasteignum
sínum í eldri hverfum borgarinnar
og opnar möguleika á verulegri
fjölgun lítilla íbúða í grónum hverf-
um,“ segir um málið á heimasíðu
Reykjavíkurborgar.
„Í nýju hverfisskipulagi munu
íbúar að uppfylltum skilyrðum til
dæmis geta fengið heimild til að
stækka húsnæðið sitt með viðbygg-
ingum. Einnig geta margir fengið
heimildir til að innrétta aukaíbúðir í
húsum sínum með því að byggja við,
skipta upp eldra rými eða breyta
lítið notuðum bílskúr í litla íbúð,“
segir á reykjavik.is.
Hið nýja fyrirkomulag er enn
fremur sagt geta stuðlað að verulegri
fjölgun íbúða í borginni. Samkvæmt
áætlunum gæti íbúðum í fyrr-
nefndum þremur Árbæjarhverfum
fjölgað um allt að 1.989 eftir þessa
breytingu.
Málið var áður samþykkt í skipu-
lags- og samgönguráði 19. desember
síðastliðinn. Fram kemur í auglýs-
ingu á vef borgarinnar að það hafi
verið gert samhljóma.
„Allt miðast að því að hverfin
verði sjálfbærari og grænni og að
íbúar geti þekkt hverfin sín vel og
þær heimildir sem þar er að finna
hvort heldur sem það er í verslunar-
kjörnum eða á einkalóðum. Aldrei
hefur verið farið í eins viðamikið
samráð við íbúa eins og við gerð
hverfisskipulags,“ sagði meðal ann-
ars í bókun skipulagsráðs.
Skipta má auknum heimildum í
þrennt. Í fyrsta lagi er um að ræða
viðbætur á lóð sem geta verið við-
byggingar, ofanábyggingar eða
aukabyggingar. Síðan verður leyft
að skipta stórum eignum upp í
smærri einingar og búa til fleiri
íbúðir þar sem aðstæður leyfa. Þá
verður hægt að breyta atvinnuhús-
næði, bílskúrum eða geymslum í
íbúðir.
„Með nýju hverfisskipulagi munu
margir íbúar fá heimildir til að reisa
viðbyggingar, kvisti, svalir og garð-
skúra sem og leyfi til að fjölga íbúð-
um,“ segir í kynningarmyndbandi
á vef borgarinnar. Þegar skipulagið
hafi verið samþykkt megi sjá allt
um það í nýrri hverfasjá. Þar verði
hægt að sækja um leyfi til breytinga.
gar@frettabladid.is
Auka frelsi húseigenda í
þremur borgarhverfum
Eigendur húsnæðis í Árbæ, Selási og Ártúnsholti geta með nýju hverfisskipulagi
fengið heimild til að byggja við og skipta upp húsnæðinu til að bæta við íbúð-
um. Málið er tekið fyrir í borgarráði í dag. Ætlunin er að þétta byggð í hverfinu.
Með nýju hverfis-
skipulagi munu
margir íbúar fá heimildir til
að reisa viðbyggingar, kvisti,
svalir og garðskúra sem og
leyfi til að fjölga íbúðum.
Úr kynningarmyndbandi
Reykjavíkurborgar
Leyft verður að fjölga íbúðum með ýmsu móti, m.a. í Árbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fleiri myndir úr fjallinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-
appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í innherja-
svikamáli tengdu Icelandair lýkur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í dag með
munnlegum málflutningi. Átta vitni
gáfu skýrslu fyrir dómi í gær, þar á
meðal þeir þrír sem ákærðir eru í
málinu. Dómari ákvað að ákærðu
fengju ekki að hlýða á vitnisburð
hver annars sem mun vera afar fátítt
við meðferð sakamála og bókuðu
verjendur athugasemdir við þessa
málsmeðferð.
Fyrrverandi forstöðumaður
leiðakerfisstjórnunar Icelandair er
ákærður í málinu fyrir að hafa veitt
upplýsingar um stöðu félagsins sem
hann fékk í krafti innherjastöðu
sinnar. Stærsta brotið sem ákært er
fyrir mun hafa átt sér stað í tengslum
við afkomuvið-
vörun sem
Icelandair
sendi frá
sér í febrúar
2017. – aá
Fátítt að vísa
ákærðum út
2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
F
-2
1
C
0
2
2
1
F
-2
0
8
4
2
2
1
F
-1
F
4
8
2
2
1
F
-1
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K