Fréttablaðið - 24.01.2019, Síða 10
Egg og sæði hrörna með aldrinum
Konur fæðast með öll eggin sín og þeim byrjar að
fækka strax á fósturskeiði. „Þetta er auðvitað mis-
jafnt eftir konum eins og gengur og gerist en þetta
er ákveðin þumalputtaregla. Þegar við verðum
kynþroska eru um það bil 10% eftir af þeim. Svo
fer brot af eggjunum af stað í hverjum tíðahring
og svo eyðast þau. Meirihlutinn skemmist út af
umhverfisáhrifum eða bara í gegnum tímann og
vegna aldurs,“ segir Signý.
„Það sem virðist samt vera rauði þráðurinn í
þessu er það að eggin eru á sama lífeðlisfræðilega
hraða og fyrir hundrað árum síðan. Þó að konur
lifi lengur í dag og séu ungar lengur ásamt því að
lifa allt öðruvísi lífi, þá haldast eggin ekki í takt
við það. Upp úr 34, 35 ára aldri byrjar frjósemin
að dvína hratt,“ segir Ragnhildur. Ef tölfræði um
frjósemi og fósturlát er skoðuð sést að kúrvur fara
að skerast í kringum 35 ára aldur hjá konum og
hraða á sér. Frjósemin minnkar og fósturlátin fara
að aukast, sem endurspeglar skemmdir í eggjum.
„Það tekur konur lengri og lengri tíma að verða
þungaðar og þær missa frekar fóstur. Flestir þekkja
orðið að Downs-heilkenni verður algengara með
aldrinum og það er bara ein af þeim líffræðilegu
skemmdum sem verða á eggjunum með aldri.“
Svipaða sögu er að segja með sæðisfrumurnar.
Þó að karlar framleiði sæði jafnóðum þá eru þær
framleiddar úr stofnfrumum sem verða einnig til í
móðurkviði. Afraksturinn með árunum verður því
alltaf lélegri og lélegri. „Aldurinn hefur áhrif á karl-
menn líka. Það hefur alltaf verið mýta að aldurinn
hafi ekki áhrif á karla en það er ekki svo. Sæðinu
og frjóseminni fer hrakandi hjá karlmönnum upp
úr 40, 45 ára aldri. Eftir því sem feðurnir verða eldri
þá eru auknar líkur á geðsjúkdómum, einhverfu og
aukinni tíðni fósturláta,“ segir Signý.
V ið fáum til okkar konur komnar um og yfir fertugs-aldurinn sem átta sig ekki á því að það er mun
erfiðara að verða þunguð á
þessum aldri en þegar þær
voru yngri,“ segir Ragnhildur
Magnúsdóttir, fæðingar-
og kvensjúkdómalæknir.
Ragnhildur og Signý
Hersisdóttir fósturfræð-
ingur starfa hjá Livio
Reykjavík sem er fyrir-
tæki sem sérhæfir sig
í tæknifrjóvgunum.
Þ æ r s e g j a þ a ð
alvarlegt ef konur
þekkja ekki eigin
lífsklukku þegar
kemur að barn-
eignum. Það er
líka meiri áhætta
fyrir móður og
barn að ganga
með og eiga eftir
fertugt. Konur
og pör sem vilja
verða þunguð
leita gjarnan til
þeirra of seint.
Það getur tekið
verulega á að fá þær
fréttir að hafa „misst
af lestinni“.
„Einhverjar vita að
þær eru að falla á tíma
en margar einfaldlega
hafa ekki hugmynd um það.
Þarna skortir fræðslu. Þetta er
mikilvægt málefni og afar brýnt
að fólk sé meðvitað um þetta. Það
hefur alltaf verið talað svo mikið
um getnaðarvarnir og að vera ekki
of snemma í því að eignast börn.
Fyrst þurfi að klára námið, koma
undir sig fótunum, eignast íbúð og
þar fram eftir götunum. En meðal-
kona er kannski að klára námið sitt
eða vinna upp sinn starfsferil upp
úr 35 ára og eignast ekki íbúð fyrr
en 38 ára og ef við ætlum að bíða
eftir þessu þá er það orðið of seint.
Getnaðarvarnirnar eru vissulega
Meðalaldur frum-
byrja á Íslandi fer
sífellt hækkandi.
Í dag er aldurinn
rúm 27 ár sem
virðist ekki vera
svo slæmt en ef
litið er til heildar-
fjölda mæðra þá fer
þeim fjölgandi sem
eru 35 ára og eldri.
Ísland er ekki sér á báti
hvað lægri fæðingartíðni
varðar og hrjáir þetta nú
mörg iðnvædd ríki heims.
Frestun
barneigna
hefur ýmsar
afleiðingar
að ná þungun en þar sem þjóðin
er fámenn er oft rykkjótt framboð
af eggjagjöfum. „Við erum fá. Öll
umfjöllun veldur því að við fáum
inn eggjagjafa en svo dettur allt
niður inn á milli. Það er krónísk
þörf fyrir eggjagjafir,“ segir Ragn-
hildur.
Þær segja að umræðuefnið hafi
í gegnum tíðina verið ákveðið
feimnis mál en nú sé minnkandi
frjósemi orðin alþjóðlegt vanda-
mál og Íslendingar hafi sofið á verð-
inum. „Iðnvæddu ríkin eru fyrst
og fremst að horfast í augu við
þennan vanda, að fæðingartíðni sé
lág. En við Íslendingar eru svolítið
seinir að vakna og þurfum að fara
að líta þetta alvarlegum augum. Það
á ekki að vera feimnismál að ræða
frjósemi. Ef fólk þarf hjálp þá er í
lagi að tala um það.“
Í nýrri reglugerð sem tók gildi
á Alþingi um áramót er kveðið á
um að sjúkratryggingar muni nú
niðurgreiða 5% af fyrsta skipti í
tæknifrjóvgun, 30% af öðru skipti
en engin niðurgreiðsla er á meðferð
þrjú og fjögur, ólíkt því sem áður
var. Áður var fyrsta meðferðin ekk-
ert niðurgreidd en meðferð tvö, þrjú
og fjögur var niðurgreidd um helm-
ing. Nú mun hins vegar fólki með
illkynja sjúkdóma sem hafa áhrif á
frjósemi bjóðast 65% niðurgreiðsla
á meðferðum í þeim tilgangi að
frysta og geyma kynfrumur. Heil-
brigðisráðherra sagði í samtali við
Fréttablaðið í byrjun janúar að ein-
ungis væri um tilfærslu fjármagns
að ræða innan þessa málaflokks.
„Það er verið að færa fjármagn frá
hópnum sem er í verulegum erfið-
leikum og þarf að koma endurtekið
í meðferð yfir í nýjan hóp af fólki
sem að okkar mati ætti að vera utan
við þennan pott. Fólk sem þarf að
frysta kynfrumur vegna yfirvofandi
sjúkdóma og meðferða vegna þeirra
hefur hingað til ekki getað gengið
að greiðsluþátttöku og er fagnaðar-
efni að það sé komið á,“ segir Ragn-
hildur. „En þetta verður til þess að
fólk frestar meðferðum, þarf að
endurhugsa málið eða hreinlega
hætta við. Okkur finnst þetta ekki
góð þróun. Það sem þarf að gera
er að reikna út hve miklu hver nýr
einstaklingur skilar til samfélags-
ins í krónum og aurum. Hefur þetta
verið gert og leitt til þess að svona
meðferðir eru gjaldfrjálsar að
mörgu leyti í Danmörku, Svíþjóð
og víðar. Einnig er hlúð að barna-
fólki í formi skattaafsláttar, með
greiðslum eða öðru. Þarna er verið
að hugsa til lengri tíma.“
Við þurfum að auka
fræðslu og upp-
lýsingar um frjósemisaldur,
þunganir, kynlíf og hvernig
mannslíkaminn virkar.
Signý Hersisdóttir
fósturfræðingur
Einhverjar vita að
þær eru að falla á
tíma en margar einfaldlega
hafa ekki hugmynd um það.
Þarna skortir fræðslu.
Ragnhildur Magnús-
dóttir, fæðinga- og
kvensjúkdóma-
læknir
nauðsynlegar og
það að þungunum
hjá unglingsstúlkum
hefur fækkað, það er að bera
árangur en þetta þarf að haldast
í hendur – fræðsla um getnaðar-
varnir og frjósemisaldur.“
Signý tekur undir. „Það skortir
vissulega fræðslu og við viljum að
henni sé komið inn hjá framhalds-
skólum og í háskólum. Við þurfum
að auka fræðslu og upplýsingar um
frjósemisaldur, þunganir, kynlíf og
hvernig mannslíkaminn virkar,“
segir Signý. „En það er margt sem
spilar inn í minni frjósemi, t.d. offita
hjá konum. Íslendingar eiga ákveð-
ið met í því. Við erum Ameríka
norðursins. Frjósemi minnkar með
offitu og truflar hún tíðahringinn
og hefur bein áhrif á eggin okkar.
Tímasetningin hefur áhrif, það
þekkja ekki allar konur tíðahring-
inn sinn og hvenær er best að reyna
þungun. Lífsstíll, reykingar, áfengi
og eiturlyf hafa sitt að segja og t.d.
hefur kannabis mikil áhrif á sæði og
getur minnkað framleiðslu. Einnig
ýmsir sjúkdómar eins og legslímu-
flakk, blöðrur á eggjastokkum og
fleira. Stórir áhrifaþættir eru þyngd
og aldur. Svo er ákveðinn hópur af
fólki eða hátt í 20% sem eru með
óútskýrða ófrjósemi sem við fáum
eflaust fleiri skýringar á í fram-
tíðinni“.
Eggjagjafir eru oft eina leiðin til
Glansmyndir í fjölmiðlum
Víða í fjölmiðlum hefur verið fjallað um stór-
stjörnur sem eignast börn langt fram eftir aldri.
Þar á meðal eru leikkonur á borð við Halle Berry, Janet Jackson og fleiri.„Þarna er verið að hampa konum fyrir að eign-
ast börn seint en það kemur aldrei fram að notast
hafi verið við tæknifrjóvganir,“ segir Ragnhildur.„Konur komnar yfir fimmtugt hafa ekki annað val en að fá gjafaegg. Það er alveg á hreinu að þarna hefur ekki náttúrulegur getnaður átt sér stað. Þetta gefur mjög röng skilaboð.“
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
TILVERAN
2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
F
-3
0
9
0
2
2
1
F
-2
F
5
4
2
2
1
F
-2
E
1
8
2
2
1
F
-2
C
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K