Fréttablaðið - 24.01.2019, Qupperneq 22
gífurlegar vinsældir. Tilgangurinn
er að virkja ímyndunaraflið og
sköpunargleði þegar kemur að
fatasamsetningum og læra hvernig
hægt er að nýta flíkurnar sínar
oftar og við fleiri tilefni. Áskor-
unin virkar þannig að þú velur 10
flíkur sem þú notar í 10 daga á 10
mismunandi vegu. Náttföt, nærföt,
íþróttaföt, skartgripir, belti, töskur
og slíkir aukahlutir eru ekki taldir
með. Hægt er að sníða þetta að
eigin þörfum en ég tók t.d. ekki yfir-
hafnir með í áskorunina enda er ég
hvort sem er alltaf í sömu úlpunni
á veturna.“ Hún segir mikilvægt að
reyna að nýta fötin sín sem best.
„Meðal annars með því að gera við
þau þegar þarf, annaðhvort sjálf
eða fara með þau á saumastofu. Svo
er gott að skoða alltaf þvottaleið-
beiningarnar sem fylgja flíkunum
og þvo í samræmi við þær, auk þess
að reyna að þvo flíkurnar ekki að
ástæðulausu.“
Hún bendir á að fataiðnaðurinn
sé einn af mestu mengunarvöldum
heims. „Ekki er einungis verið að
henda gífurlegu magni af flíkum
sem enda gjarnan í urðun heldur
eru notuð skaðleg efni í vinnsluna.
Starfsaðstæður einstaklinga í fata-
verksmiðjunum, sem eru að vinna
með öll þessi eiturefni, eru gjarnan
mjög bágar og launagreiðslur mjög
lágar. Þessar aðstæður myndast
því að stórar verslunarkeðjur
vilja framleiða flíkurnar hratt og
með sem minnstum tilkostnaði.
Fatasóun er mikið vandamál
en það er skýrt samband á milli
þessara ódýru fataverslana og
fatasóunar.“ Hún bendir á að með
því að vera stöðugt að framleiða
nýjar fatalínur séu stóru keðjurnar
óbeint að hvetja til aukinnar neyslu
þar sem eitthvað er dottið úr tísku
og annað komið í staðinn. „Flík-
urnar eru gjarnan í lélegum gæðum
þar sem þær þurfa að standa undir
kostnaði og markaðurinn vill að
neytandinn endurnýi flíkur sínar
sem oftast. Enn er verið að smána
og gera grín að stórstjörnum ef þær
sjást tvisvar í sömu flíkinni, hvað
þá á stórum viðburði, í stað þess að
hrósa þeim fyrir að nýta flíkurnar.
Það tók mig góðan tíma að átta mig
á því að ég þarf ekki nýja flík í hvert
partí og að það sé gott og fallegt að
nýta flíkurnar sínar vel. Þarna þarf
að verða viðhorfsbreyting.“
Hún segir að umhverfisvænasta
leiðin til að kaupa föt sé að kaupa
þau notuð. „Þannig er dregið úr
líkum á því að flíkin lendi í urðun,
kolefnisspor flíkurinnar minnkar
og oft er verið að styrkja gott mál-
efni í leiðinni þó það sé líka í fínu
lagi að kaupa notuð föt á sölu-
síðum, t.d. á Facebook. Ég skoða
alltaf úr hvernig efni flíkin er gerð
og reyni að forðast plastefni. Þau
anda gjarnan verr og það losnar úr
þeim örplast í þvotti. Ekki einungis
finn ég mun þegar ég nota flíkur úr
náttúrulegum trefjum, heldur er
einnig auðveldara að endurvinna
þau. Annars er mikilvægt að kaupa
vandaðar flíkur sem munu endast
og máta þær við fataskápinn í
huganum, reyna að búa til nokkrar
samsetningar við það sem fyrir er
áður en flíkin er keypt. Ég rannsaka
svo alltaf fyrirtækin sem búa flíkina
til og skoða hversu umhverfisvæn
þau eru. Að lokum langar mig að
hvetja alla til að horfa á heimilda-
myndina The True Cost sem er
meðal annars á Netflix. “
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.
is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
FLOTT FÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR
Við erum á Facebook
Str. 36-56
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
Flott útsala
20%
aukaafsláttur
af allri útsöluvöru
Vorum að fylla á
2.000 og 3.000 kr. hengin
Ég ákvað að prófa aðra nálgun á tískuiðnaðinn með því að fara í sex mánaða fataverslana-
föstu,“ segir Amanda. „Mér fannst
ég vera á þannig stað í lífinu að
tímabært væri að prófa eitthvað
róttækt.“ Hún segist hafa verið
hinn fullkomni neytandi. „Ég var
vön að kaupa mikið af flíkum hjá
svokölluðum „fast fashion“ versl-
unum sem eru verslanir sem selja
flíkurnar sínar oftast tiltölulega
ódýrt og framleiða nýja línu mjög
reglulega. Ég fór að huga að neyslu-
mynstri mínu fyrir ári, auk þess
sem ég fór að velja framleiðendur
sem voru með vottarnir fyrir því
að starfsfólk fengi viðunandi laun
og starfsaðstæður. Það minnkaði
klárlega neyslu mína enda erfiðara
að nálgast slíkar flíkur auk þess
sem þær eru oftast nær dýrari, en
samt þótti mér ég aldrei eiga nóg.
Ég var alltaf á höttunum eftir næstu
„draumaflík“ eða með lista yfir
hvað gæti „vantað“ næst. Ég finn
ekki fyrir löngun til þess að eiga
nýjustu raftækin eða flottustu og
dýrustu húsgögnin, en föt eru veik-
leiki minn.“
Amanda gerði tvær undan-
tekningar frá föstunni. „Þar sem
ég er bloggari vil ég geta kynnt
lesendur okkar fyrir vörumerkjum
sem framleidd eru á sanngjarnari
hátt en gengur og gerist, og skyldi
fyrirtæki vilja hefja samstarf við
mig þar sem boðnar eru vörur fyrir
umfjöllun þá vil ég geta samþykkt
slíkt svo framarlega sem það er
í takt við mín gildi. Hin undan-
tekningin er að ef mig nauðsynlega
vantar ákveðna flík sem ég get ekki
fengið lánaða hjá öðrum, þá má ég
kaupa hana notaða.“
10x10 áskorunin er hluti af
fataföstu Amöndu. „Sú sem fann
upp á áskoruninni heitir Lee og er
með bloggið Style Bee. Hún byrjaði
þessa áskorun árið 2015 þegar hún
var í miðri fataverslanaföstu en
síðan þá hefur áskorunin hlotið
Amanda da Silva
Cortes kaupir
engin föt næstu
mánuðina
heldur notar
það sem er í
fataskápnum.
Hún er nú í
áskorun sem
heitir 10x10
sem felst í því að
nota tíu flíkur á
tíu mismunandi
vegu í tíu daga.
MYND/STEFÁN
Hér má sjá flíkurnar tíu sem mynda
10x10 fataáskorun Amöndu. Þetta
eru hlýjar flíkur í litum sem fara vel
saman. MYND/BIRGIR PÁLL BJARNASON
Og hér er bleiki kjóllinn orðinn að
pilsi við gráa peysu.
MYND/BIRGIR PÁLL BJARNASON
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Hægt er að
fylgjast með
Amöndu og
áskoruninni
á Instagram
undir nafninu
amandasophy.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
F
-3
A
7
0
2
2
1
F
-3
9
3
4
2
2
1
F
-3
7
F
8
2
2
1
F
-3
6
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K