Fréttablaðið - 24.01.2019, Qupperneq 42
HEIMILIÐ LJÓMAR AF EINSKÆRRI SNILLD!
SMARTPAKKI!
Smartpakki tilboðsverð
Fullt verð: 29.750 kr. stgr.
24.990 kr. stgr.
Margir eru um þessar mundir að skoða breytt mataræði og því heyrðum við í Júlíu varðandi
hagnýt ráð sem lesendur geta tileink-
að sér á nýju ári fyrir bætta heilsu.
Júlía borðar sjálf engan hvítan sykur
og segir það stóran þátt í því að hún
nái að viðhalda góðu formi, orku og
heilsu allan ársins kring. „Ég var hins
vegar alls ekki alltaf í hollustunni og
lengi vel lifði ég á skyndibita, ís og
„blandi í poka“. Helsti ótti minn var
alltaf að hollt mataræði yrði leiði-
gjarnt og bragðlítið og því hef ég það
ávallt að markmiði að uppskriftir
mínar séu ekki bara hollar heldur
bragðgóðar og girnilegar á að líta,“
segir hún.
„Þrátt fyrir fjölmargar ólíkar
kenningar um mataræði eru nánast
allir sammála um sykurinn. Hann er
hreinlega skelfilegur fyrir heilsuna og
algjörlega næringarlaus. Enda hafa
rannsóknir sem sýna fram á skað-
semi sykurs aldrei verið eins margar
og nú og sýna þær að óhófleg neysla
á sykri er einn helsti orsakavaldur
ofþyngdar, þreytu, vanlíðunar, melt-
ingarvandamála, sykursýki og ótal
fleiri kvilla og sjúkdóma. Það mætti
því nánast segja að hollt mataræði
geti ekki verið hollt fyrr en það er án
eða með afar takmörkuðu magni af
sykri. Sykur skiptist í glúkósa og frúk-
tósa. Umframmagn af frúktósa er það
sem við viljum forðast en það leiðir
til þess að líkaminn geymir sykur sem
fitu. Frúktósi finnst í miklu magni í
hvítum sykri, hrásykri og agave og
einnig ávöxtum en þó er hann mis-
mikill eftir tegund ávaxta.“
bjork@frettabladid.is
Allir ættu að sleppa sykri
Júlía borðar sjálf
engan hvítan sykur
og segir það stóran
þátt í því að hún
nái að viðhalda
góðu formi, orku
og heilsu allan
ársins kring.
GÓÐ RÁÐ TIL AÐ
MINNKA SYKURINN
Gættu svefnsins
Svefnleysi er gjarnan or
sakavaldur sykurlöngunar.
Svefnskortur dregur úr leptín
hormónum sem gera það að
verkum að matarlöngun eykst,
sem útskýrir af hverju mörg
okkar narta meira yfir daginn
þegar við höfum sofið illa. Mjög
mikilvægt er að ná góðum svefni
fyrir fitubrennslu, afköst, orku
og almenna vellíðan.
Endurstilltu bragðlaukana
með dökkgrænum laufum
Beiska bragðið frá dökkgrænu
grænmeti hjálpar til við að draga
úr þörf líkamans fyrir sykur.
Bættu því grænu grænmeti eins
og t.d. grænkáli og spínati út í
búst, salat eða annað. Þér gæti
þótt það vont á bragðið fyrst um
sinn en eftir smá tíma aðlagast
líkaminn sykurminna matar
æðinu og endurstillir sig.
Taktu inn steinefni
Steinefni; magnesíum og króm
þá sérstaklega, hjálpa líkam
anum að vinna á sykurþörfinni
sem mörg okkar glíma við. Oft
framkallar líkaminn þörf fyrir
sykur þegar hann er í raun að
kalla eftir steinefnum. Króm er
þá gott fyrir þá sem glíma við
blóðsykursójafnvægi og magn
esíum fyrir þá sem hafa mikla
súkkulaðilöngun, æfa mikið,
glíma við meltingarvandamál
eða mikla streitu.
Holl fita er lykilatriði
Holl fita er algjör lykill til að
halda blóðsykri jöfnum og seðja
líkamann. Oft þegar holl fita er
ekki til staðar leitar líkaminn
í sykur. Holl fita er einnig ein
staklega góð fyrir einbeitingu
og brennslu. Avókadó, möndlur,
möndlusmjör, og tahini eru
nokkrir af mínum uppáhalds
fitugjöfum.
Endurskoðum venjur okkar
Hversu mörg okkar grípa í
sykurinn yfir daginn af gömlum
vana? Við nörtum í kex með
kaffinu, borðum nammi yfir
sjónvarpinu eða verðlaunum
okkur eftir langan vinnudag með
smá súkkulaði. Gott er að kanna
hvenær við sækjum í sykur
hreinlega af vana og sjá þá hvort
hægt sé að koma með betri val
kost. Væri t.d. hægt að hafa holl
ara kvöldsnarl? Verðlauna okkur
með nuddi eða hollu súkkulaði
og kaffibolla í ró og næði?
Slepptu sykri með
ókeypis 14 daga áskorun
Á döfinni hjá Júlíu er ókeypis
14 daga sykurlaus áskorun sem
hefst mánudaginn 28. janúar.
Áskorunin er haldin sjötta árið í
röð og hefur aldrei verið vinsælli
enda næstum 30.000 manns
skráðir til leiks. Júlía gefur 5 upp
skriftir sem slá á sykurlöngunina
í hvorri viku auk innkaupalista,
ráða og stuðnings frá Facebook
grúppu áskorunarinnar. Skráning
fer fram á heimasíðunni http://
lifdutilfulls.is/14dagasykur
laus/.
Júlía Magnúsdóttir,
heilsumarkþjálfi og
lífsstílsráðgjafi, er
hlynnt einföldum
breytingum að betri
heilsu. „Enda virka
megrunarkúrar og
stíf mat arplön síður
til lengri tíma litið.“
ENDA HAFA
RANNSÓKNIR
SEM SÝNA FRAM
Á SKAÐSEMI
SYKURS ALDREI
VERIÐ EINS
MARGAR OG NÚ
OG SÝNA ÞÆR AÐ
ÓHÓFLEG
NEYSLA Á SYKRI
ER EINN HELSTI
ORSAKAVALDUR
OFÞYNGDAR,
ÞREYTU,
VANLÍÐUNAR,
MELTINGAR-
VANDAMÁLA,
SYKURSÝKI OG
ÓTAL FLEIRI
KVILLA OG
SJÚKDÓMA.
15 MÍNÚTNA VEGAN FETTUCCINE PASTA
Fettuccine pasta
t.d glútenlaust sojabauna
fettuccine pasta frá á la eco
Vegan „osta“ sósan
1 bolli kókosmjólk
½ bolli rifinn vegan parmesan eða
mozzarella
1 msk. næringarger
1 hvítlauksrif
Chili á hnífsoddi
1 tsk. Dijon
Klípa af salti
Nokkrir dropar af stevíu eða
kókospálmanektar
Grænmetið
1 msk. olífuolía
2 hvítlauksrif (ég notaði tvo perlu-
lauka)
½ blómkálshaus
½ kúrbútur
Handfylli ferskt rósmarín
Borið fram með: spínati, furuhnet-
um, steinselju og parmesan-osti.
1. Setjið öll hráefni sósunnar í
blandarann og vinnið þar til silki
mjúkt.
2. Sjóðið vatn í potti og leyfið suðu
að koma upp. Bætið pasta út í
vatnið, lækkið undir og sjóðið
skv. leiðbeiningum á pakka,
um 68 mín.
3. Hitið pönnu. Steikið hvítlauk,
blómkál, kúrbít og kryddjurtir á
pönnu og hrærið í 57 mínútur.
4. Hellið sósunni yfir pönnuna
ásamt pastanu og hrærið
örlítið. Leyfið að malla í nokkrar
mínútur.
5. Berið fram með því sem þið
kjósið og njótið!
2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
1
F
-4
9
4
0
2
2
1
F
-4
8
0
4
2
2
1
F
-4
6
C
8
2
2
1
F
-4
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K