Stjarnan - 01.11.1927, Page 3

Stjarnan - 01.11.1927, Page 3
STJARNAN 163 Tímabœr lexía frá reynslu Jónasar spámanns. MeÖal stórbofga fornaldarinnar var Níníve, höfuöborg Assýríu. Hún bygÖist skömmu eftir aÖ Babelturninn var eyði- lagur. Hún blómgaÖist öld eftir öld þangað til að hún var orðin “geysimikil borg — þrjár dagleiðir á lengd.” Níníve var orðin miðstöð glæpa, allra handanna synda og óguðlegleika. Hún er víða nefnd í spádómum ritningarinn- ar. Spádómur Nahúms fjallar aðallega um hana. Þessi spádómur gefur oss ná- kvæma lýsingu af lífinu x þeirri borg. Hún er nefnd: “Hin blóðseka borg,” “full af lygum og ofríki,” “bæli ljónanna” o. s. frv. Til þessarar óguðlegu og óttalegu borg- ar sendi Guð Jónas. Það viðfangsefni, sem Drottinn gaf Jónasi, var nóg til að skjóta hinum hugrakkasta manni skelk í bringu. Jónas, sem var friðsamur fjárhirðir, að öllu leyti óvanur stórborgalífinu með öllum gildrum þess, löstum og hættulegum stöðum, var ekki nógu djarfur til að leggja út í þá ferð. Hann sá sjálfan sig umkringdan af ilsku og glæpum þeirrar miklu borgar. Honum var ómögulegt að trúa því, að hann í breyskleika sínum og feimni gæti gjört nokkuð til að stemma stigu fyrir þeirri misgerninga-flóðöldu, sem var rétt komin að því að kalla þrumu Guðs reiði yfir borgina. Hann gat ó- mögulega trúað því, að nokkur boðskap- ur, sem hann mundi flytja, myndi hafa áhrif á hina óguðlegu íbúa. í hræðslu sinni flýði hann í öfuga átt—til Jaffa. Skaparinn getur stjórnað sköpunarverkinu. Sagan um reynslu hans er of kunn, til þess að þörf sé á að endurtaka hana hérna: Hvernig Guð varpaði miklum stormi á sjóinn; hræðsla og í'áðaleysi allra, sem á skipinu voru; hvernig Drott- inn sendi “stórfisk, til þess að svelgja Jónas,” sem eftir þrjá daga og þrjár nætur spúði honum upp á þurt land. Jónas hafði góða reynslu meðan hann var í kviði stórfisksins. Hann lofaði Guð, ef hann vildi láta hann út aftur, þá mundi hann vera fús til að fara til Níníve, ef Drottinn ennþá óskaði þess, jafnvel þó að það myndi kosta líf hans. Guð lét hann út og sagði við hann: “Legg af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og flyt henni þann boðskap, er eg býð þér.” Jónas 3:2. Mikilvœgi hlýðninnar. Jónas hafði nú lært lexíu sína. Hann hafði lært að sýna Guði hlýðni, afdráttar- laust. Hann flýtti sér til Níníve. Þegar hann nálgaðist þessa “geysimiklu borg” og vissi að hann nú stóð augliti til auglits við hið erfiðasta verk, sem hann nokkurn tíma hafði reynt að leysa af hendi, þá fóru vafalaust kné hans að titra og hann sjálfur að verða máttlítill. Einu sinni enn hefir hans verið freistað til að flýja, en hann mundi eftir fyrri reynslu sinni og faldi sig Guði á vald, til þess að geta fullnægt ráðstöfun hans. Þegar öllu var á botninn hvolft, gátu þessir Nínívitar ekki gjört meira en að drepa hann og Jónas ákvað, að ef hann þyrfti að deyja,

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.