Stjarnan - 01.11.1927, Síða 6
i66
STJARNAN
hólpnir—og vegurinn til baka er æfinlega
erfiður.
Jónas sigldi í burtu á skipi, en hann
varð að ganga til baka. fátækur, hungrað-
ur og töturlegur,—reynsla hans kostaði
hann alt, sem hann átti.
Vinir, látum oss snúa aftur; aftur í
hús Föðurins, til elsku Föðurins, til orðs
Föðurins, áður en vér förum svo langt,
að vér rötum ekki heim aftur—og vér
glötumst.
Eins og Guð sendi Jónas til Níníve
með boðskap, sem varaði menn við um-
turnun þessarar miklu og óguðlegu borg-
ar, þannig sendir hann á þessum tima
boðskap til heimsins, sem varar menn við
komu Frelsarans og hina endilegu um-
turnun allra veraldlegra hluta. Eigum
vér, eins og Níníve-menn að “trúa Guði”
og gjöra hinn nauðsynlega undirbúning
með því að leita Drotins af öllu hjarta,
snúa oss í burtu frá allri synd og verða
hólpnir? Eða eigum vér að skella skoll-
eyrum við viðvörun hans og liða undir
lok með börnum þessa heims i hringiðu
eyðileggingarinnar ? Þetta er hið mikla
spursmál, sem nri er á dagsskránni?
Hvert er svar þitt?
G. W. White.
Kristur og Gamlatestamentið.
Nútíminn er auðugur af mönnum, sem
velta fram úr sér fjúkyrðum um Guð
Gamlatestamentisins, og til þess að geta
sem bezt afvegaleitt menn og unnið sitt
vonda eyðileggingarverk, smeygja þeir
inn á milli guðlastsins sætyrðum um
meistarann frá Nazaret og kærleika hans.
Davíð skrifaði: “Þitt orð er lampi
fóta minna og ljós á vegi mínum.” Sal.
119,105. Og meistarinn frá Nazaret
sagði að Davíð hefði talað “a f h ei 1 ö g-
u m a n d a.” Mark. 12. 36. Sá sami
Jesús, sem þessir niðurrifsmenn þykjast
upphefja, kallar þau orð, sem þeir kalla
bábiljur, verk heilags anda.
Prófessor F. E. Torm, segir i ritgerð
sinni, “Det ny Testaments Samling að
Jesús hafi “lifað i Gamlatestamentinu,”
svo innlifaður hafi hann—Meistarinn frá
Nazaret, verið því. Orð prófessorsins eru
á þessa leið:
“Hver maður, sem nokkurn veginn
kannast við boðskap Frelsarans, hlýtur
að sjá, hversu hann lifði í Gamlatesta-
mentinu. Hann heyrði rödd föðursins
í hinum fornu, helgu ritum. Hann greip
til þeirra á stundu freistinganna og rak
freistarann á flótta með þessum full-
komna úrskurði: Skrifað stendur. Jafn-
vel á krossinum, verður honum eðlilegast
að gera það með orðum, teknum úr sálm-
um Gamlatestamentisins fSal. 22, 2; 31,
6). Hann hafði ef til vill oft áður fund-
ið mesta hvíld í lífsbaráttu sinni, í þess-
um orðum: “Faðir, í þínar hendur fel eg
anda minn.”
“Bibelhaandbog for det Ny Testa-
ment,” blaðsíðu 29.
Á blaðsíðu 28, segir sami höfundur
þetta um lærisveina Krists og kirkju
hans:
“Söfnuðurinn fékk í vöggugjöf bækur
Gamlatestamentisins. Þessar bækur
rannsökuðu hinir kristnu með mesta á-
huga bæði í heimahúsum og við sameigin-
legar guðsþjónustur sínar. Þeir fetuðu
þar aðeins í fótspor Drottins síns og
Meistara.”
Þeir, sem kasta frá sér Gamlatesta-
mentinu en vilja halda Kristi, sýna að
þeir þekkja ekki mikið til kenningar
Krists eins og hún kemur fyrir í guð-
spjöllum Nýjatestamentisins. Jesús not-
aði sjálfur svo mikið Gamlatestamentið,
að það má með sanni segja eins og pró-
fessor Torm gerir, að hann hafi lifað í