Stjarnan - 01.11.1927, Blaðsíða 9

Stjarnan - 01.11.1927, Blaðsíða 9
STJARNAN 169 eru vatnslaust ský, sem rekst fyrir vind- um, fölnuð tré, ávaxtalaus, tvisvar dauð, rifin upp meÖ rótum, ofsalegar hafs- bylgjur, sem freyða eigin skömmum, reikandi stjörnur, sem sorti myrkursins er geymdur til eilífÖar. En um þessa menn spáði líka Enok, sjöundi maÖur frá Adam, er hann segir: Sjá, Drottinn er kominn með sínum heilögu tíuþúsundum, ti! að halda dóm yfir öllum, og til að sanna alla óguÖlega menn seka um öll þau óguÖlegu verk, sem þeir hafa ógu?5- lega drýgt, og um öll þau hörðu orð, sem hinir óguÖlegu syndara hafa talaÖ gegn honum. Þessir menn eru möglarar, um- kvörtunarsamir, og ganga eftir girndum sínum—munnur þeirra mælir ofmetnaðar- orð—þeir sýna mönnum lotningu fyrir hagnaÖarsakir.” Júda 10-16. ‘‘Þeir heita mönnum frelsi, þótt þeir séu sjálfir þræl- ar spillingarinnar.” 2. Pet. 2, 19. ÞaÖ sem sannar þó best yfirburbi biblí- unnar yfir alla aðra fræÖslu, eru áhrif hennar á lærisvein sinn. Því meir, sem maÖurinn innlifar sig anda hennar guð- dómlegu fræðslu, því meiri guðsmaÖur verður hann. Þeir, sem við þjónustu kristninnar hafa verið riðnir og orðið hinu góða málefni til vansa, eru æfinlega mennirnir, sem vanrækt hafa að feta í fótspor Meistarans frá Nazaret í því, að “lifa í bókum” biblíunnar. Það er kynlegt, að menn, sem státa af skynsemi, dómgreind og mentun, skuli ekki geta ráðið jafn auðvelda gátu eins og það, að húsið hlýtur alt að hrynja, ef annar helmingurinn er rifinn niður. Og svo er með Gamla- og Nýjatestament- ið, að sameinuð standa þau, en aðskilin falla þau. Prófessor Robert Dick Wilson, Ph. D., D.D. segir i riti sínu, “Is the Higher Criticism Scholarly”: “Saga ísraels heldur áfram í sögu kristninnar. Sá, sem andmælir annari andmælir þeim báð- um. Sameinaðar standa þær, en aðskild- ar falla þær.” Bls. 181. Prófessor W. H. Griffith Thomas, D.D. kennari i fræðum Gamlatestament- isins við Wycliffe College, Toronto, seg- ir í sinni ágætu bók, “The Work of the Ministery”: “Það eru margir á vorum dögum, sem ekki virða Gamlatestamentið mikils, en postulinn Páll hafði háar hug- myndir um það og sagði að þaö [Gamla- testamentið] gæti veitt speki til sáluhjálp- ar fyrir trúna á Krist Jesú.” bl. 92. Þegar fyrstu lærisveinar Krists fóru að vitna um hann, þá sögðu þeir: “Vér höfum fundið þan, sem Móse hefir rit- að^um í lögmálinu og spámennirnir.” Jóh. 1, 46. Og þegar postularnir fóru með gleðiboðskapinn út um alla heimsbygðina, þá 'boðuðu þeir þann Frelsara, sem kom, lifði, dó og uppreis “samkvæmt ritning- unum”. 1. Kor. 15,3,4. Sá sem réttilega vill upphefja Meist- arann frá Nazaret, verður að feta i fót- spor hans, og einnig i þessu, að “lifa í” hinum helgu bókum ritningarinnar Pctur Sigurðsson. Alvarlegt er aS deyja. Flugríkur bankamaður veiktist snögg- lega. Læknirinn, sem kallaður var, kom og skoðaði hann. Að því búnu sagði hann við sjúklinginn: “Þér þjáist af bólgu í heilanum og eftir þrjá klukku- tíma er það úti um yður.” Óttasleginn horfði bankamaðurinn framan í lækninn og spurði skjálfandi: “Er það nú alveg áreiðanlegt?” “Já, það hryggir mig að fullyrða, að það sé sannleikur.” “Læknir, ef þér getið haldið lífi í mér þangað til á morgun, mun eg borga yður tvær miljónir króna.” Læknirinn stóð þar mjög svo alvarleg- ur og leit á hinn veika mann og sagði: “Eg get skrifað lyfseðla og gefið meðöl, en eg get ekki selt tíma. Tíminn er 3 hendi Guðs.”

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.