Stjarnan - 01.11.1927, Page 10

Stjarnan - 01.11.1927, Page 10
170 STJARNAN “En má eg spyra, ungfrú Samson,” greip hr. Foster fram í, “ætlar þú að segja oss, a'Ö biblían tali ekki um helvítis- eld ?” “Nei, vissulega ekki, hr. Foster. Eg segi, aÖ nú sem stendur sé ekkert Iogandi helvíti til ,og þess vegna geti heldur eng- inn kvalist þar.” “Hivað er þá þetta helvíti, sem biblían talar um?” spurði hann. “Fyrst og fremst vil eg svara spurn- ingu þinni þess, aS biblían kennir hvergi þessar hræðilegu eilífu kvalir. Slíkt mundi kenna ranglátan Guð. Guð er kær- leikur, og öll refsing og hegningarákvæði hans verða í samræmi við eðli hans.” Hr. Spencer las nú eftir beiðni Ellu, Róm. 6, 23: “laun syndarinnar er dauði,” og hr. Samson las Sálm. 37, 20: “Því að óguðlegir farast.” Hinn þriðji las Mal. 4,1: “Því sjá, dagurinn kemur, brenn- andi sem ofn, og allir hrokafullir og allir þeir, er guðleysi fremja, munu vera sem hálmleggir, og dagurinn, sem kemur, mun kveikja í þeim, segir drottinn her- sveitanna, svo að hvorki verður eftir af þeim rót né kvistur.” “Og í viðbót við þetta,” sagði Ella, “lesum vér í 3. versi: “Og þér munuð sundurtroða hina óguðlegu, því að þeir munu verða aska undir iljum yðar, á þeim degi, er eg hefst handa, segir Drott- inn hersveitanna.” “Sjá einnig Obadía 16. vers. Hinar óguðlegu þjóðir skulu “verða eins og þær hefðu aldrei til verið,” og sama hugs- unin kemur fram í sálm. 37,10. “Innan stundar eru engir óguðlegir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir.” “Hinir óguðlegu munu farast x eyði- leggingar eldi hins mikla og sxðasta dags. Þeir munu þá verða að ösku, verða eins og þeir hefðu aldrei til verið. Hegning þessi er dauði, og það er skýlaust sagt x Matteusar guðspjalli, 25. kap. 46. versi, að þessi dauði sé “eilífur.” “En einhversstaðar hefi eg lesið það,

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.