Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 11

Stjarnan - 01.11.1927, Qupperneq 11
STJARNAN 171 ungfrú Samson, aö hinir óguðlegu eigi aS kveljast eilíflega,” sagði hr. Foster, “eða er það ekki í biblíunni?” “Jú, en eilíflega getur átt við bæði stutt og langt tímabil. Þegar orðið eilíft er notað um dauðlega menn, þá meinar það æfilangt. Vér getum litið á nokkr- ar ritningargreinar, sem varpa ljósi á þetta. Það er sagt, að sveinninn Samúel hafði verið gefinn Guði, að hann skyldi verða fyrir augliti hans “ávalt,” faðrar þýðingar: “eilíflega”.J. 1. Sam. 22,28. Þarna táknar orðið eilíft, æfilangt. Á öðrum stað er sagt að líkþrá skyldi loða við vis'sa fjölskyldu “ávalt” — eilíflega. 2. Konungab. 5, 27. Það er, eins lengi og fjölskyldan lifði. Spámaðurinn Jónas notar orðið “eilíflega”, er hann talar um veru sína í kviði hvalfisksins, og það furðar mig heldur ekki. “Kvalir hinna óguðlegu, sem þú, hr. Foster minnist á, og talað er um í Opinb. 14,11, vara aðeins þar til þeir eru al- gerlega að engu orðnir. Þeir kveljast að- eins eins lengi og tilveran varir. Þeir eru aðeins dauðlegar verur, og sem dauðlegar verur farast þeir. Er ekki þetta skýrt og auðskilið ?” “Jú, vissulega virSist það vera auðskil- ið,” svaraði hr. Foster, og öllum hinum viðstöddu fanst hið sama. Hr. Spencer var þó sérstaklega mjög fagnandi yfir þessum augljósa sannleika, og hans góða kona hneigði höfuðið brosandi til sam- þykkis. Til þess að staðfesta enn betur þenn- an sannleika, má geta þess, að hinir óguð- legu eiga að farast í eldi, og sá eldur er kallaður “eilífur eldur,” Matt. 25,41. En það er hann kallaður aðeins vegna þess að afleiðingar hans eru eilífar. “í Júda bréfi, 7. versi er sagt að borg- irnar Sódóma og Gómorra “liggi fyrir sem dæmi,” sem sýnishorn hinnar síðustu miklu eyðileggingar. Borgum þessum eyddi “eilífur eldur”, en takið nú eftir: Eldurinn “brendi borgirnar Sódómu og Gómorru til ösku,” sjá 2. Pét. 2,6. Og Harmaljóðin 4, 6 segja að borgum þess- um hafi verið “umturnað svo að segja á augnabliki,” eilífur eldur, það er að segja eldur með eilífar afleiðingar, eyðilagði borgir þessar eilíflega, en hann gerði það á svipstundu. Þannig munu hinir óguð- legu einnig verða eyðilagðir skyndilega á miskunnsaman hátt.” “Ó, eg vildi að Ingersoll hefði getað hlustað á þetta!” sagði hr. Foster, auð- sjáanlega mjög hrifinn. “Eg get ekki skilið, að hann hefði verið vantrúarmað- ur, ef hann hefði fengið réttan skilning á þessu. Kenningin um eilíft logandi hel- víti snéri honum frá biblíunni, og þó er hún alls ekki í biblíunni. Þetta veitir mér nýjan skilning á öllu mannlífinu.” “Já, hr. Foster, það var einmitt þekk- ingin á þessu atriði, sem gaf mér löngun til þess að verða kristin stúlka. Aldrei áður —” “Og eg get bætt þessu við söguna, sagði hr. Samson, að þessi skynsamlega meðferð á Guðs orði hefir gjörbreytt mér. Tóbakinu hefi eg kastað frá mér, biblían er orðin mér ný bók, og vér erum farin að iðka bænalíf á heimilinu.” “Vinir,” tók hr. Spencer til máls, “þetta kvöld verður fyrir mig upphaf nýrrar og merkilegrar reynslu. Eg er fús til þess að samstarfa þér, hr. Samson við að umskapa nágrennið. Eg get ekki lýst tilfinningum mínum réttilega, en vissu- lega sé eg nú og trúi á gæzku Guðs.” Frú Spencer og dóttir hennar grétu af fögnuði. Faðir og eiginmaður hafði tekið sinnaskiftum. Þetta var sannarlega blessunarríkt kvöld á heimili Spencers. Eitthvað háleitt og fagurt snerti tilfinningar allra, sem þar voru staddir. Tár frú Spencers og dóttur hennar urðu til þess að fleirum vöknaði um auga, og inenn, sem um margra ára skeið, ekki höfðu orðið varir neinna sérstakra áhrifa, fundu að þeir voru óafvitandi orðnir snortnir af ein- hverju háleitu. Nokkur augnablik var alger þögn. Eng-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.