Stjarnan - 01.01.1928, Page 7

Stjarnan - 01.01.1928, Page 7
STJARNAN 7 svellur mönnum móSur til þess að g.jöra þaÖ, sem ilt er.” Préd. 8:11. SíÖastliðiÖ ár voru fimm hundruS og tíu morð framin í Chicago, af því að þar sleppur meiri hlutinn af morðingjúnum við að stíga á gálgann eða að setjast í rafmagnstólinn. Sama árið voru drýgð 340 morð í New York, sem er helmingi stærri horg, en þar lífláta þeir fleiri morðingja en í Chicago. Á sama tíma voru framin aðeins seytján morð í Lundúnaborg, sem enn er stærsta borg heimsins. Þar náðu þeir sextán af þessum morðingjum og urðu þeir allir hengdir. Það sýnir betur en nokkuð annað hvað það borgar sig vel að fram- fylgja lögunum og fullnægja dóminum fljótlega. Pyrir nokkrum árum velti sér morð- ingja-alda yfir eina stórborgina í Norð- urálfunni. Óvanalega mörg morð voru framin á hryllilegasta hátt.. Borgar- stjórnin tók það til bragðs að auglýsa að hver einasti morðingi, sem náðist, mundi fá tuttugu svipuhögg áður en lykkjan legðist um háls honum. Morðin fækkuðu undir eins og dóu svo að segja út um tíma. En að dæma menn til dauða eftir lík- um er að öllu leyti rangt og á móti boð- um Guðs: “Nú drepur einhver rnann, og skal þá manndráparann af lífi taka eftir fram- burði votta; þó má ekki kveða upp dauðadóm yfir manni eftir framburði eins vitnis. Og skuluð þér ekki taka bætur fyrir líf manndrápara, sem er dauðasekur, heldur skal hann af lííi tekinn verða.” 4. Mós. 35:30,31. “Dómencfur og tilsjónarmenn skalt þú skipa i ölium borgum þínum—þeim er Drottinn, Guð þinn, gefur þér, eftir ætt- kvíslum þínum, og þeir skulu dæma lýð- inn réttlátum dómi. Þú skalt eigi halla réttinum, þú skalt eigi gjöra þér manna- mun og eigi þiggja mútu, því að mútan blindar augu hinna vitru og umhverfir máli hinna réttlátu. Réttlætinu einu skalt þú fram fylgja, til þess að þú meg- ir lifa og fá til eignar landið, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér.” 5. Mós. 16:18-20. “Eftir framburði tveggja eða þriggja vitna skal sá líflátinn verða, er fyrir dauðasök er hafður; eigi skal hann líf- látinn eftir framburði eins vitnis. Vitnin skulu fyrst reiða hönd gegn honum, til þess að deyÖa hann, og því næst allur lýðurinn. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér.” 5. Mós. 17:6, 7. ■Hefðu menningarþjóðirnar fylgt þess- um reglum aö öllu leyti, þá mundi á þessum tíma hafa verið mjög lítið um glæpi í þessum heimi. Náttúruöflin tala. Það er ekki einungis í mannfélaginu, a stjórnarfarslega og trúarbragðasvið- inu, að órói ríkir. Miklar byltingar eiga sér stað einnig í náttúrunnar ríki. Sá, sem fylgir með tímanum og veit hvað sem á sér stað í heiminum, getur ekki annað en veitt því eftirtekt, að þær eyði- leggingar, sem náttúruöflin valda, verða fleiri ár frá ári. Vísindin þekkja ekkert ár í sögu heimins, sem getur sýnt jafn mörg slys af völdum nátúruaflanna og áriÖ 1927. Þetta bendir á að kraftar himnanna eru nú að hrærast. Vér getum ekki gefið neina skýrslu yfir náttúruatburði, sem hafa átt sér stað á liðna árinu, vér munum aðeins benda á fáeina þeirra. Um miðjan febrúar mánuð síðastliðinn kom landskjálfti á Balkanskaganum og fórust í honum sex eða s'jö hundruð manns. Eleiri blóm- legir bæir liggja enn í rústum. Sjöunda marz kom jarðskjálftakippur í Japan, sem meðal annars mölbraut hina stærstu járnbrautarbrú í Austurálfunni og fórust á fáum sekúndum 3274 manns og helmingi fleiri særðust. í apríl mánuði fór hvirfilvindur yfir Indlandshafið og gjörði sér í lagi mikl- ar skemdir eyjunni Madagaskar, eyÖi- lagði hafnarborgina Tamatave og fjölda

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.