Stjarnan - 01.01.1928, Side 8

Stjarnan - 01.01.1928, Side 8
8 STJARNAN mörg skip, alt að tólf þúsund tonna skipum, fórust. 1 hverjum einasta mánuÖi hins liðna árs hafa Bandaríkin fengið heimsókn af eyðileggingum náttúru aflanna og hafa rnenn í þvi landi aldrei séS aSrar eins skemdir af völdum náttúrunnar. Hin miíklu og eySileggjandi vatnsflóö í Mississippidalnum og Ný-Englandsríkj- unum skara fram úr öllurn atburSum af því tægi. Fyrnefnda flóSiS gjörSi land- flæmi álíka stórt og konungsríkiS Belgía aS eySimörk, manntjóniS var einnig mikiS og mörg þúsund skepnur fórust. Fellibylji r hafa einnig veriS tíSari og svæsnari hiS liöna ár en ella. MuniS eftir storminum, sem fór yfir St. Louis. Mörg hundruS manns hafa farist i þess- um skelfingum og skaSinn nemur fjög- ur hundruð miljónum dollara. í jrilí mánuSi fóru stormar og vatna- vextir yfir Þýskaland og fórust í þeim 200 manns og skaSinn nam áttatíu mil- jónum maúka. Á sama tíma kom land- skjálfti á Krímskaganum, Grikklandi, Litlu-Asíu, Palestínu og Transjordania. Um þúsund manns fórust í þeim kipp- um og eignatjóniS var mikiS. Svona mætti telja upp ef rúmiS leyfSi. En hvaS þýSir alt þetta? Ekki þaS aS þeir menn, sem hafa farist í þessum slysum hafi veriS verri en aSrir menn (s')í Lúk. 13:1-5,), heldur hitt aS vér höfum náS þeim tíma í sögu heimsins, þá misgjörS íbúanna hvílir .svo þungt á honum, aS hann fær ekki risiS upp framar. Hann er viS lýSi enn af því aS GuS hefir í honum hreinskilnar sálir, sem munu koma út úr honum, út úr hinum fráhverfu kirkjum, út úr synd- inni og spillingunni, og fara yfir ríki GuSs elskulega Sonar. Væri þaS ekki fyrir þessar sálir og hina miklu föSur- elsku GuSs til þeirra, mundi þessi heim- ur farast á augabragSi; því aS GuS hef- ir ekkert annaS í þessum heimi, sem er þess virSi aS varSveita, en þær sálir, sem jesús hefir endurleyst frá valdi hins illa meÖ sínu eigin blóSi. Þessar sálir eru salt jarðarinnar. 1 heiminum í dag eru öfl ríkjandi, sem mönnunum er ofvaxið að eiga viS, og hann fær aldrei risiS á legg aftur og orðiS þaS, sem hann einu sinni var; því aS vér lesum: “Geigur, gröf og gildra koma yfir þig, jarðarbúi. Sá, sem flýr undan hinum geigvæna gný, fellur í gröfina, og sá, sem kemst upp úr gröfinni, festist í gildrunni, þvi aS flóSgáttirnar á hæðum Ijúkast upp og grundvöllur jarðarinnar skelfur; jörðin brestur og gnestur, jörð- in rofnar og klofnar, jörSin riSar og iSar; jörðin skjögrar eins' og drukkinn maður, henni svipar til og frá eins og vökuskýli; misgjörS hennar liggur þungt á henni, hún hnígur og fær eigi risiS upp framar.” Es. 24:17-20. f sama íkaflanum lesum vér einnig hvers vegna alt þetta kemur yfir jörS- ina: “JörSin vanhelgaSst undir fótum þeirra, er á henni búa, því að þeir hafa brotiS lögin, brjálaS boSorSunum og rofið sáttmálann eilífa. Þess vegna eyÖir bölvun jöröinni og íbúar hennar gjalda.” Es. 24:5,6. Bæði heimurinn og kirkjan taka höndum saman og gjöra uppreisn á móti lögmáli GuSs á þessum tíma. Innleidd eru lög, sem eru gagnstæS lögmáli Guös, eins og vér munum sjá í næsta þætti þessarar greinar. “Tími er kominn fyrir Drottinn, aS taka í taumana, þeir hafa rofiS þitt lög- mál.” Salm. 119:126. Jesús sagði: “Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörSinni angist meðal þjóðanna í ráðaleysi viS dunur hafs og brimgný; og menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heims bygðina, því að kraftar himnanna munu bifast. Og þá munu menn sjá Manns-Soninn koma í skýi meö mætti og mikilli dýrS. En þegar þetta tekur aS koma fram. þá réttiS úr yÖur og lyftið upp höfðum yð-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.