Stjarnan - 01.01.1928, Page 10
IO
STJARNAN
margir prestar fóru heitn til sín og leit-
u8u undir eins. hjálpar hjá yfirvöldun-
um og meÖ aðstoS þeirra fóru aS of-
sækja saklausa menn í tugatali og
hneppa þá í varðhald eins og Sál frá
Tarsús gjörSi forðum daga. Þegar vér
sjáum hvernig kirkjan yfirgefur hiÖ ó-
mengaÖa fagnaÖarerindi Krists, breytir
þvert á móti kenningu hans og fer að
öilu leyti eftir eigin geÖþótta þá skiljum
vér hetur hvers vegna Jesús uppörvar
fylgjendur sína á þessum síÖustu dögum
að vaka og biÖja.
Sunnudagalö gin.
Bæði í Canada og Bandaríkjunum eru
öflug félög, sem reyna ah vernda um
sunnudagshelgina. í Canada eru ströng
sunnudagalög, en samt sem áður örva
klerkar alla tíÖ1 fylkisstjórnir og Domin-
ion stjórnina að heröa á þessum sunnu-
dagalögum. Núna í desember mánuÖi
kom amerískur þingmaður, sem Lank-
ford heitir, meö tillögu í bandaríska þing-
inu tmr a8 innleiða fyrirmyndar sunnu-
dagalög í Wjashington D.C. Og ef sú
tillaga verÖur að lögum, munu þeir
næsta ár reyna aÖ setja samskonar lög
í gildi fyrir öll Bandaríkin og ætla þeir
að eyða miljónum dollara til þess a8
koma þessu í gegn. Prestarnir halda að
þeir meÖ því móti geti þvingað fólk til
að sækja kirkju og ofsótt þá, sem halda
annan dag heilagan.
Ljósasti bletturinn.
Eins og skært ljós í öllu þessu fumi
heimsins skín starf kristniboðanna með-
al þeirra, sem lengi hafa setið í myrkr-
inu. ;Margar þúsundir af olnbogabörn-
um heimsins rétta á þessum tíma hend-
urnar eftir hinum lifandi Guði og búa
sig undir að mæta sínum dýrmæta Frels-
ara, þegar hann kemur með mætti og
dýrð mikilli, til að sækja sitt bíðandi
fólk.
' Yfirlit yfir rás viðburðanna á liðna ár-
inu, mun sannfæra þig, kæri vinur, um
að þessi heimur hefir ekki það til í eigu
sinni að bjóða þér, sem er nokkurs virði,
í samanburði við það, sem Frelsarinn
hefir lofað fylgjendum sínum.
“Auga hefir ekki séð, ekki eyra heyrt
og í einskis huga komið, það sem Guð
hefir fyrirbúiö þeim, sem hann elska.”
I. Kor. 2:9. D. G.
Séra Hills biblíuskóli.
Formáli.
Höfundur þessarar bókar veit að æfi-
ferill hans er bráðum á enda, að hann
áður en langt um líður verður að leggja
frá sér ferðastafinn, þess vegna óskar
hann að skilja eitthvað eftir, er getur
ieitt sálir, sem eru dýru verði keyptar,
til að elska Frelsarann og fagna yfir
hjálpræði hans.
í ótta Drottins með hinn mikla og
alvarlega dag dómsins fyrir augum hef-
ir hann ritað þessa bók í von um að hún
verði lesin með hið sama hlýja hugarþel
og hinar sömu tilfinningar og höfundur-
inn hefir.
Enga afsökun, ekkert bragð, enga til-
búna sögu eða draum hefir höfundurinn
tileinkað nokkrum meðlimi Biblíuskól-
aris, án þess að hann hafi persónulega
þekkingu á að það kom frá þessum eða
hinum, eða hann hefir fengið það frá
áreiðanlegum mönnum.