Stjarnan - 01.01.1928, Side 15

Stjarnan - 01.01.1928, Side 15
STJARNAN iS kemur út mánatSarlega. titgeíendur: The Western Canadian Union Conference S.D.A. Stjarnan kost- ar $1.50 um árið I Canada, Bandarikj- unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram;. Ritstjóri og ráðsmaður : DAVID GUÐBRANDSSON. Skriístofa: 306 Sherbrooke St.. Winnineg, Man. Phone: 31 708 mun halda sæti sínu viS hlið Föðursins og í starfi hans. Þeim, sem mikið er 'fyrir- gefið elskar mikið. En þú verður þá í myrkri fyrir utan. Því að sá, sem ekki elskar, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur. 1. Jóh. 4,8. , E. G. White. jj FRÉTTIR. ji Jólamatur -Georges Bretakonungs var frá öllum löndum hans mikla ríkis. BúÖ- ingurinn var íbúinn til af þeim afurðum landanna, sem hér eru taldar : Fimm pund af kúrenum og rúsínum frá Ástralíu, fimm pund af rúsínum frá SuÖur-Afríku, hálft annað pund af eplum frá Canada, fimm pund af ensk- um brauðmolum, fimm pund af kjöt- seyði frá Nýja-Sjálandi, tvö pund af sykruðum aldinbörk frá Suður-Afríku, tvö og hálft pund af ensku mjöli, tvö og hálft pund af sykri frá Vesturheims eyjunum, 20 egg frá írlandi, tvær únzur af kanel frá Ceylon, hálft annað pund af negulnöglum frá Zanzíbar, hálf önnur únza af múskathnotum frá Singapore, teskeið af kryddjurtum frá Indlandi, peli af rommi frá Jamaica og tveir pott- ar af enskum bjór. Allir verkamenn á ítalíu—um átta miljónir að tölu—verða að vátryggja sig á móti tæringu. Þeir, sem veikjast fá hjúkrun ókeypis og fjölskyldur þeirra fá styrk. Á ferð sinni um Bandaríkin flaug Charles A. Lindbergh 22,350 mílur, heimsótti 83 borgir og sat sjötíu veizl- ur Hafði hann tvö hundruð dollara á dag meðan ferðin stóð yfir. Gekk alt þetta ferðalag slysalaust og eftir áætlun. Þegar þetta er ritað er hann að fljúga um Mexico og Mið-Ameríku ríkin. í Brasilíu er lítill bær, sem heitir Villa Americana. Eftir þrælastríðið fór ame- rískur læknir, James M. Gaston að nafni, ásamt sextíu fjölskyldum frá Columbia í South Carolina ríkinu til Brazilíu, því að öll heimili þeirra voru brend til kaldra kola í stríðinu og gjörðu þessir menn það heit að reisa heimili sín í öðru landi. Borgin Villa America er minnismerki þessara manna. Ef einhverjir skyldu hafa hreina og óskemda árganga af Stjöjrnunni frá 1920, 1922, 1923 og vilja selja þá, eru þeir vinsamlegast beðnir um að skrifa ritstjóranum viðví'kjandi verðinu, sem þeir vilja fá fyrir þá. Eleiri háskólar vilja fá alla árganga Stjörnunnar frá byrjun. í bænum Marblehead í Massachusetts ríkinu, þar sem sagt er að Leifur Eiríks- son hafi lent í Vínlandsferð sinni, er nú búið að reisa einkennilegt vígi eða höll með miðaldasniði. Stendur hún uppi á háum hól, svo að hægt er að sjá hana frá höfninni. Þessi bygging er nefnd “Castle Brattahlíð”. Á hún að vera nokkurs konar eftilíking af “Brattahlíð” á Græn- landi, þar sem Leifur hepni átti heima, Hjónin, sem reist hafa þessa einkennilegu byggingu og búa í henni, eru Hr. og Erú Waldo P. Ballard.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.