Stjarnan - 01.03.1929, Page 11

Stjarnan - 01.03.1929, Page 11
STJARNAN 43 saman meS spanksa skipinu til Mahon. En laust fyrir komu okkar þangað skall a annað ofveður alt í einu og var það me8 naumindumaÖ viÖ gátum haft stjórn á skipinu. Spanska fylgdarskipið var ekki undir þess konar veður búið og rak það upp í klettana á Sardinien og brotn- aði í spón, og hér um bil öll skipshöfn- in fórst. Eftir þennan storm náðum við saman við breska flotann, sem samanstóð af þrjátíu línuskipum, sem hvert hafði frá áttatíu upp í tvö hundruð og þrjátíu fallbyssur, fyrir utan fregátur og kor- vettur. Var meiningin að við skyldum loka inni ennþá stærri frönskum her- skipaílota á höfninni í Teulon. Við vor- um oft í orustu við einstök skip og vor- um að elta þau. Samt sem áður voru ekki frönsku skipin nógu vel útbúin til að mæta breska flotanum og leggja til orustu við hann. Til þess að stytta okkur stundir og sl<emta okkur, þegar við höfðum næði til þess, var okkur útvegað bókasafn, sem samanstóð af tveimur útvöldum bókum fyrir hverja tíu menn. Höfðum við sjö- tíu þess konar bókasöfn á skipinu. Önn- ur bókin var styttri útgáfan af æfisögu Nelsons, lávarðs, sem var okkur gefin í þeim tilgangi að örva okkur til að sýna hreysti og karlmensku í orustum og hvernig hægt er að yfirbuga ósveigjan- legan óvin. Þessa bók mátti einn af þcssum tíu mönnum lesa sex síðustu daga vikunnar, þegar hann hafði næði til þess. Hin bókin var lítil bænabók af því tægi, sem notuð er í ensku kirkjunni, og í henni urðum við að lesa einn klukku- tíma á hverjum fyrsta degi vikunnar. Framh. “Svo er þá nú engin fyrirdæming fyr- ir þá, sem tilheyra Kristi Jesú.” Róm. 8 :i. Svo lengi sem maður er fyrir utan Krist Jesúm og ekki er endurfæddur, jafnvel þótt hann sé kirkjumaður hinn mesti, þá er hann undir fyrirdæmingu og er gkitaÖur, hvort sem hann veit það, trúir því eða ekki. Af eigin reynslu veit eg nú þetta; en einu sinni vissi eg það ekki. Maður getur vel gengið fyrir að vera kristinn, ganga í kirkju og að ytra hætti lifa góðu siðferöislegu lífi, vera með í “fínum” veizlum, taka þátt í spila- samkomum, dönsum og veraldlegum hljóðfæraslætti og verið með í sviksám- legu verzlunarbraJski, án þess að hafa nokkra tilfinningu fyrir því eða sam- vizkubit eða nokkra hugmynd að vera undir fyrirdæmingu, af því að maður er fvrir utan Krist. Ritningin segir að þess konar maður sé þegar dæmdur, af þvi að hann trúir ekki á nafn hins eingetna Sonar Guðs. Hin- ar heilögu kröfur Guðs og boðorð hans vtrða sett til hliðar, til þess að geta tek- ið þátt í veraldlegum heimskupörum, holdlegum skemtunum, öðlast heiður og fóstrað ágirnd í brjósti sínu, en haft lítið eða ekkert hugboÖ um að dagur heim- sóknarinnar sé fyrir höndum og að náð- artíminn sé svo að segja útrunninn. 1 ofannefndu versi er oss sagt hvernig vér getum komist hjá fyrirdæmingunni. Og þessarar lausnar verðurn vér að leita núna meðan vér lifum, því að eftir dauð- ann verður 'þaS að eilífu of seint. Yér verðum sem einstaklingar, hver fyrir sig, að snúa oss í burtu frá allri synd og ranglæti, í allri auðmýkt játa syndir vor- ar, leita náðar og fyrirgefningar fyrir

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.