Stjarnan - 01.03.1929, Side 12
44
STJARNAN
blóð Lambsins. Og þá mun Drottinn
segja við þig: Synd þín er þér fyrir-
gefin og þú ert frjáls og hólpinn. Þá
byrja blessaðar stundir, friður og fögn-
uður fyllir hjartað, Andi Guðs tekur
sér bustað í sál mannsins, alt, sem vér
erum og höfum er honum undirorpiS.
vér byrjum nýtt líf, fáum nýjar hugsan-
“En síðasta daginn. hátíðardaginn
mikla, stóð Jesús þar og kallaði og
sagði: Ef nokkurn þyrstir, þó komi
hann til mín og drekki. Sá, sem
trúir á mig, frá hans innra muni,
eins og ritningin hefir sagt, renna
lækir lifandi vatns. En þetta sagði
hann um andann, er þeir mundu fá,
er gjörðust trúaðir á hann.” Jóh.
7)37 (Amerisk endurb. þýðingj.
Hér ómar þér í eyrum, kæri vinur,
heimboð það, sem mezta andlega auðlegð-
og blessun veitir. Jesús býður þér heim,
heim til föðurhúsanna, heim til fullkom-
ins friðar, heim til sællar hvíldar, heirn
til andlegrar auðlegðar og gleði. ÞaS er
ekkert fals í þessu heimboði mannkyns-
frelsarans. Ef þú snýrð þér til hans, þá
muntu sjá opinn kærleiksfaðm, einmitt
það, sem þú, af vonlbrigðum þreyttur
vegfarandi, þarfnast með og þráir.
Hefir þú, kæri vinur, komið til Jesú?
Hefir þú lært af honum kristilega hóg-
værð og lítillæti, lært af honum, að láta
það vera “unun þína aS óttast'drottinn;
lært af honum, að láta það vera “yndi
þitt að gera Guðs vilja”; lært af honum,
að “dæma með réttlæti og réttvísi.”
ii og ásetningar—Kristur er kominn inn
i líf manns. En vér megum ekki gleyma
því, sem vér eigum að gjöra, nefnilega
að breyta eins og hann breytti. Látum
oss alla hafa þessa inndælu reynslu að
verða frjálsir í Kristi. Það er “engin
fyrirdæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi
Jesú.”
P. L. Hoen.
Hefir þú lært af honum, að lifa, biðja
og starfa? Hefir þú lært af honum, að
ganga “um kring og gera gott?” Hefir
þú lært af honum, að líkna nauðstöddum,
leiðbeina viltum, vorkenna breyskum og
vanda um viS andvaralausa ? Hefir þú
lært af honum, að mæta háði og fyrir-
litningu manna, hrakningi og kvölum á
degi neyðarinnar, “eins og lamb” og
ljúka ekki upp munni þínum? Hefir þú
lært af honum, að þjóna, fórna, elska
og umbera? Hafir þú enn ekki sint
fóðurlegu heimboði Frelsarans, þá kallar
hann enn i dag, og heilagur andi knýr
á dyr hjarta þins og segir: “I dag,” ef
þú heyrir raust hans, þá forherð ekki
hjarta þitt; en hafir þú komið til Jesú,
þá ertu orðinn hluthafi í auðlegð náðar
hans, og hefir af nógu að miðla öðrum.
Blessun himinsins mun þá streyma út frá
þér til þeirra, sem þú umgengst og sanna
öllum, að þú sért konungsins barn, erf-
ingi eilífa lífsins, og bróðir kærleiksríka
og góða Frelsarans.
Af sjálfum þér getur þú alls ekki
neitt. Þú ert andlega “fátækur, blindur
og nakinn,” en Jesús kallar og segir:
kom þú til mín, og eg mun “gcfa.”