Stjarnan - 01.03.1929, Side 13

Stjarnan - 01.03.1929, Side 13
STJARNAN 45 Jesús er ríkur, þvi það “þóknaðist Guði, að láta alla fyllinguna búa í honum.” Hann er ríkur og sterkur. Hann getur gcfið og hann býðst til að gefa. Af þér er þvi ekki rnikils krafist, þú átt að- eins aö koma til hans, rétta fram hönd þína eins og gott !barn og þiggja, ekki lítilsvirða gjöf, heldur alla “Guðs fyll- ingu.” Þú átt að koma, taka við og rétta svo öörum. Þú stendur á milli mikla og góða gjafarans og einhver minni bróð- ur þins, sem enn hefir ekki komið til Jesú. Getur þú. kæra Guðs barn, svikist um að rétta honurn brauð lífsins og þann svaladrykk, sem slekkur þorsta sérhverr- ar mæddrar sálar? í nafni himinsins, kom þú til Jesú “í dag,” ef þú heyrir "hans raust,” þigðu þaÖ, sem hann 'býð- ur þér og gefðu svo þeim næsta. Það verður þá hlutskifti þitt, að vera “ljós heimsins,” inndælt og öllum vegfarend- um kært; að vera “salt jarðarinnar,” blessunarríkt og sykrandi alla beiskju syndar og spillingar. Þú ert þá verm- andi of lífgandi sólskin í öllum félags- skap. endurskin réttlætissólar Guðs. Þú ert "ilmur af lífi til lífs.” Þú ert “bréf Krists, þekt og lesið af öllum mönnum,” boðsbréf Guðs, sem segir, aS “svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn,” og að sonurinn hafi gefið þér, og ]>að sem hann hafi gefið þér, ]>að gefir þú fús- lega öðrum. Það er þá hlutskifti þitt að vera líknarhendi Guðs í þurfandi mann- heimi, huggari sorgmæddra, hjálpari bág- staddra, sannur mannvinur, eftirsóttur og elskaSur af mörgum. Kæri vin, láttu þér ekki til hugar koma, að ganga um hér í mannheimi vor- um með játningu þá á vörum þér, að þú sért sonur hins mikla konungs, en rifinn og táinn og nakinn sem andlegur betlari, snauður af sannkristilegum dygðum. Það mun þá enginn trúa því, að þú sért konungsins barn og samarfi Krists. Drottinn kallar á þig að koma. Hann býður þér að standa rpp og “skína.” Það er ekki nema um tvent að velja fyr- ir þig: að koma til J’esú, þiggja af honutn STJARNAN kemur út mánatSarlega. írtgefendur: The Western Canadian Union Conference S.D.A. Stjarnan kost- ar $1.50 um áritS í Canada, BandarlkJ- unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram). Rltstjóri og rátSsmatSur : DAVÍD GUÐBRANDSSON. Skrifetofa: 306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man. íPhonie: 31 708 og þannig gerast “ljós heimsins” ög "skína,” eöa hitt, að þér verði hafnað eins og óverðmætu keri. Drottinn kallaði Gyðinga þjóðina, setti hana sem háreist- ann ljósturn á miðjú jarðarinnar, að hún skyldi “skína,” en hún sveik köllun sína, formyrkvaðist í sínu innra, tók ekki á móti birtu Guðs, gat því ekki skinið; varð að reikandi stjörnu, í sorta myrk- urs á timans himni, að áteytigarsteini og blindskeri í þjóöahafinu. Henni var hafnað. Guðsríkið var frá henni tekið og gefið öðrum, sem bar “ávöxt þess.” í sögu Gyðingaþjóðarinnar má lesa sögu hverrar þjóðar og hvers einstaklings, sem hafnar heimboðinu mikla, og hana má lesa jafnvel fyrirfram. Það er ekki um neinn milliveg að ræöa. Þú verður annaðhvort að lúta lögmáli lífsins, að þiggja og gefa, eða verða seldur á vald eyðingar og dauða, hafna og tapa. Ivom til vatnsins þyrstur þú, þér að drekka Kristur býður! Kom til Jesú, kom í trú! Kærleiksfaðmur drottins blíður opnast þér. Ó, kom, hann kallar! Kom, og þigg hans gjafir allar! Kom til Jesú, þreyttur þú! Þinni sálu hvíld hann gefur. Kom til Jesú, kom í trú! Kært hann barn sitt örumum vefur. ■ Kom og “lær” þinn kross að bera! Kom, og hógvær “lær” að vera! Pétur Sigurffsson.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.