Stjarnan - 01.02.1933, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.02.1933, Blaðsíða 6
22 STJARNAN vantrúarmanna, aÖ minsta kosti 169 árum fyrir Krist. “Fyrst þegar Jesús kom opinberlega fram, þá heimfærði hann spádóm upp á sjálfan sig: “1 dag hefir ræst þessi ritn- ingargrein, sem þér hafið heyrt.” Lúk. 4:21. í kenningum sínum vitna'Öi hann aftur of aftur til spádómanna: “Þá sagði hann við þá: Ó, þér heimskir og tregir í hjarta til aS trúa öllu því sem spámennirnir hafa talaÖ.” Lúk. 24:25. Til a'Ö sýna lærisveinum sínum hvernig þeir ættu a8 nota Ritningarnar, þá “byrja'Öi hann á Móse og á öllum spámönnunum, og útlagöi fyrir þeim í öllum ritningun- um, þaÖ er hljóÖaði um hann.” 27. vers. “Þrátt fyrir það hve ákveðiÖ vantrú- armenn mótmæla spádómunum, þá kann- ast þeir þó við að Gamla Testamentið gef- ur aftur og aftur í skyn, að undraverður maður muni fram koma hjá Gyðinga- þjóðinni. Þeir vita einnig. að Gyðingar svo öldum skifti höfðu vænt og beðið eftir Messíasi. Þjóöirnar umhverfis, ó- vinir Gyðinganna, vissu um þessa eftir- væntingu þeirra og gjörðu gys að þeim fyrir hana. “Hér eru nokkrir textar, sem Gyðing- ar lögðu til grundvaliar fyrir þessari von sinni. Loforð Guðs um sæði konunnar. 1. Mós. 3:15, einnig það, að af Abrahams afkvæmi skyldu allar þjóðir jarðarinnar blessun hljóta. 1. Mós. 22:18. Að spá- maður líkur Móses mundi frani koma. 5. Mós. 18:18. Og Pétur postuli bendir á að þetta sé uppfylt á Kristi. “í Jeremía 23:5- og 6. versi lofar Drott- inn að uppvekja af Davíð réttan kvist, “og þetta mun verða nafn hans . . . Drott- inn er vort réttlæti.” Hjá Jesajas lesum vér: Eins og hirðir mun hann halda hjörö sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sinu, en leiða mæð- urnar.” Jes. 40:11. Merkilegastur af öllu er þó hinn undraverði 53. kapítuli Jesa- jasar. “Það er eftirtektaverður spádómur einnig, er talár um heiðingjana, sem Gyð- ingar hötuðu og fyrirlitu, en þeir héldu fram einnig þeim spádómi og bygðu á honum. “Fyrir því gjörði eg þig að ljósi fyrir þjóðirnar, svo að þú sért mitt hjálp- ræði til endimarka jarðarinnar.” Jes. 49:6. Ennaftur: “Heiðingjarnir stefna á liós þitt, og konungar á ljómann, sem upp rennur yfir þér.” Jes. 60:3. “Spádómarnir um þenna væntanlega Messías höfðu inni að halda margar undraveröar setningar sem virtust alveg ósamrýmanlegar. “Jes. 9:6 segir að sonurinn sem oss fæðist sé faÖir eilífÖarinnar, að ungbarn- ið sé Guðshetja, undraráÖgjafi. “í 53. kap. Jesajasar er oss sagt að hann var lostinn til dauðs, ungur maður barnlaus, en þó skyldi hann lifa langa æfi og líta afsprengi. Hann var með ill- ræðismönnum talinn. en jarðaÖur í leg- stað ríkra manna. Hann var fyrirlitinn og einkis metinn, en mundi þó réttlæta marga. Það var farið með hann eins og illgjörðamann, en þó átti hann að biðja fyrir illgjörðamönnum. Eru ekki þetta óskiljanlegir og ósamrýmanlegir spádóm- ar? “Svo óskiljanlegt var að allir þessir spádómar gætu komið fram á einum manni, að margir helstu menn Gyðinga héldu að hér væri um tvo menn að ræða. En nú, eftir að Jesús er kominn, sjáum vér að hann hefir uppfylt alla þessa spá- dóma, svo maður veitir því varla eftir- tekt, hve ósamrýmanlegir þeir áður sýnd- ust vera. Nú eru þeir allir skýrir og skilj- anlegir. “Það er viðurkent að mörgum öldum fyrir Krist höfðu Gyðingar rit, sem sögðu fyrir að maður af þeirri þjóð, þótt lítil og undirokuð væri, mundi verða öllu mannkyninu til blessunar. Eins og vér skulum sýna fram á síðar, eru jafnvel mestu vantrúarmenn sammála um það að Jesús Kristur hafi, frarnar öllum öðrum mönnum, verið mannkyninu til blessunar. “Þér getið litið á það eins og yður sýn- ist, en sannleikurinn er sá, að fátækur

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.