Stjarnan - 01.02.1933, Page 11

Stjarnan - 01.02.1933, Page 11
STJARNAN 27 Ungir og gamlir voru árla á fótum næsta morgun, og eg var brátt feröbú- inn. Eg þorði ekki að leggja á mig a8 ganga í þungum fötum, þó eg vissi að mér vrði kalt án þeirra. Eg bjó mig út með sterkan göngustaf sem sonur húsbóndans hafði útvegað mér, eg var heþpinn að hafa hann þegar fram í sótti. í ferðatösku minni hafði eg dá- lítið af Evropiskri fæðu til að bæta upp kínversku réttina, sem eg nú hlaut að kaupa á leiðinni. Rétt þegar eg var að fara gaf húsmóð- irin mér kínverskt Nýja Testamenti, eg var ófús að bæta þvi við farangur minn, en hún vildi engar mótbárur hevra, svo eg tók það aðeins til að þóknast henni, en það leið ekki á löngu að bók þessi yrði mér til þeirrar hjálpar. sem hvorki hún eða eg höfðum fyrir séð. Nú beindi eg ferð minni að borginni Mukden. Það var næsti áfangastaSurinn eftir Harbin, sem vinur minn hafði lagt fyrir mig að ná, þegar hann markaði leið mína frá Kákasus til Ameríku, það var lika heppilegasta leiðin. Vinir mínir höfðu mjög daufa von um að eg mundi nokkurn tíma sjá Mukden. þvi leið min lá fleiri skifti yfir járnbraut, sem var undir urnsjá Rússa, þótt hún væri í Kinaveldi, og héldu þeir þar sterk- an vörð. Eg skildi eftir bréf, sem átti að senda foreldrum mínum ef ekkert fréttist af mér innan þriggja vikna, því þá mætti búast við að eg hefði annaðhvort verið bandtekinn eða drepinn. HiS síðara var ekki eins hræðilegt umhugsunarefni. en eg óttaðist í rauninni hvorugt. Eg bjóst við að komast alla leið til Ameríku. Eftir ferðalagið með Manchuriska reið- manninum var mér orðið kunnugt hvaða götu var best að fara til að komast út úr borginni og tókst mér það hindrunar- laust. Vindurinn var voðalega kaldur. Hélukögur frá andardrætti mínum mynd- aðist á húfunni, sem eg hafði dregið nið- ur yfir andlitið, bæði til að verjast kuld- anum, og til þess að mér yrði veitt minni eftirtekt. Þegar síðustu rússnesku húsin voru að hverfa úr sýn sneri eg mér við og þakkaði Guði fyrir að vera kotninn burtu úr borg þessari, þar sem eg hafði komið svo nærri því að falla í hendur lögreglunnar. Eg hraðaði nú ferð minni en sá brátt flokk manna koma á móti mér, og hélt þá vera rússneska hermenn, og til þess aö verða ekki á vegi þeirra, sneri eg út á slétturn- ar og gáfu þeir því engan gautn. Þeir hafa líklega haldið að eg væri Manchur- iskur, eða ef til vill voru þeir sjálfir illa baldnir og óhamingjusamir, eins og títt var með rússneska hermenn, sem voru litið betur haldnir en fangar, og höfðu svo ekkert á móti því, að leyfa manni í svipuðum kringumstæðum, að bæta kjör sín ef hann gæti það. Fólkið veitti mér nákvæma eftirtekt í fyrsta þorpinu, sem eg kom til. Það hefir að líkindum hugsað að eg væri flóttamað- ur. því nokkrum dögum áður höfðu fá- einir hermenn reynt að strjúka, en þeir náðust aftur áður en þeir komust langt í burtu. Það var svo rnikið kafald að eg átti bágt með að sjá brautina, en nálægð járnbrautarinnar var trygging fyrir því að eg væri ekki langt frá veginum. Eg hefði gjarnan óskað að járnbrautin væri lengra í burtu, svo minni hætta væri á að eg mætti hermönnum þeim, sem þar voru á verði. Eg snéri mér lítið eitt til hliðar til'að skýla andlitinu fyrir hinum nístandi kalda

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.