Stjarnan - 01.02.1933, Qupperneq 13

Stjarnan - 01.02.1933, Qupperneq 13
STJARNAN 29 heldur en tíu fa'Sma fjarlægð nema hús- eigandinn bjóÖi manni þaÖ, svo félagi minn kallaÖi til þeirra, sem inni voru og baÖ þá um húsaskjól, en þeir kváÖust ekk- ert pláss hafa. Við fórum út fyrir girÖinguna aftur og litlu seinna sáum við vagn meÖ múlum fyrir, við fylgdum honum eftir og kom- umst þannig aÖ veitingahúsi. En þegar þangaÖ kom kvaÖst veitingamaður ekkert pláss hafa, við fengum hann þó til að hýsa okkur. Veitingahús þetta eins og önnur hús þar í landi, var búið til úr bambusreyr og leir hnoðað inn á milli. Gluggarúðurnar voru úr bréfi. Eftir aÖ eg var búinn að vera þar inni í fáeinar mínútur, gat eg varla dregið andann fyrir reyk úr eld- stæðinu og úr pípum þeirra, sem inni voru. Reykjarpípur þessar voru alt að tvö fet á lengd, en sumar styttri. Okkur var gefið pláss uppi á pallinum sem notaður var fyrir borð, sæti og rúm handa öllum, sem þar voru saman komn- ir. Eftir stutta stund kom matreiðslu- maðurinn með nokkurs konar súpu í smá skálum. Hvorki matreiðslumaðurinn, á- höldin eða fæðan sýndist vera sérlega hreinlegt, en eg hafði ekki bragðað heit- an mat allan daginn svo eg hafði allgóða matarlyst. Eg settist niður með kross- lagða fætur eins og þar er siður og reyndi i fyrsta skifti á æfinni að borða með. tveimur smáspýtum eins og Kínverjar gjöra, í stað þess að nota skeið. Þeir sem viðstaddir voru höfðu sjáanlega gaman af að horfa á mig á meðan eg var að borða. Eg var bæða þreyttur og syfjaður en hávaði gestanna hélt vöku fyrir mér, og strá-teppið, sem eg lá á var svo þunt að þaö var eins og eg lægi á grjóthörðu gólf- inu, auk þess var mér of kalt til að geta sofið. Eélagi minn sá að mér leið ekki vel svo hann bað veitingamanninn að lána mér ábreiðu, svo eg fékk part af flóka- teppi, en það nægði ekki til að skýla mér fyrir kuldanum, sem kom inn um rifurn- ar á veggnum, en þrátt fyrir alt þetta sofnaði eg þó að lokum. Það hlýtur að hafa veriö um kl. 3 þeg- ar eg vaknaði um morguninn, eg gat ekki sofið fyrir kulda. Við fórum á fæt- ur, borguðum veitingamanninum nokkur cent, sem hann setti upp fyrir kvöldmat- inn og gistinguna, og lögðum svo af stað, við vonuðumst eftir að komast til Shwang-chang-puo þá næsta kvöld. Veðrið var nú orðið talsvert betra en vindurinn var kaldur. Tungl var í fyll- ingu svo það var nægilega bjart, en snjór- inn huldi veginn svo gatan sást ekki. Vinurinn næddi gegn um hin þunnu föt mín, svo eg var orðinn hálf-stirðnaður af kulda- en svo fórum við að hlaupa til að halda á okkur hita. Mig sveið í augun eftir reykinn á veitingahúsinu, svo vatn- ið rann úr þeim niður kinnar mínar og fraus þar. Kringumstæður minar voru ekki sér- lega glæsilegar, en eg bað vorn líknsama himneska föður að gefa mér hugrekki og krafta til að halda áfram, og þakkaði hon- um innilega fyrir hinn góða samfylgdar- mann, sem hann hafði sent mér. Eg hefði verið illa farinn án hans. Trúmenska Trúmenska í þvi minsta gjörir mann- inn færan um að takast á hendur meiri ábyrgð. Guð gaf Daníel og vinum hans tækifæri til að umgangast stórmenni Babýlonar, til þess að heiðingjar þessir fengju að þekkja grundvöll hinna sönnu trúarbragða. Umkringdir af heiðni og afguðadýrkun áttu Daníel og félagar hans með lífi sínu að opinbera Guðs hugarfar. Hvernig varð Daníel hæfur til að gegna þeirri ábyrgðar og heiðurs stöðu, sem honum var falin? Með því að vera trúr í hinu minsta, það var leyndardómurinn við líf hans og starf. Hann hafði það hugfast að gjöra alt Guði til dýrðar.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.