Stjarnan - 01.02.1933, Síða 14

Stjarnan - 01.02.1933, Síða 14
3° STJARNAN Láttu áát þína í ljósi “Þegar eg giftist sagði frænka mín vi8 mig: “Anna, ef þú vilt vera hamingju- söm ]?á gjörðu mannirin þinn hamingju- saman, þjóna'Öu honum meÖ alúÖ og tal- aðu hlýlega til hans.” “Eg held eg hafi hugsað um hann og hlynt vel að honum, en eg gleymdi oft að tala vingjarnleg orð til hans.” “Hvernig getur það verið ?” “Stundum þegar hann kom þreyttur heirn frá vinnu og var í þungu skapi og eg var niðurbeygð líka, þá kom fyrir aö við borÖuðum máltíð án þess að tala orð hvort við annað. Við fundum bæði til þess hve þetta var þreytandi, en það var eins og tungur vorar væru bundnar.” “Og hvað gekk að?” “Eg verð að kannast við að það var dramb. Hvorugt vildi tala fyrst. Ef til vill hefir það meðfram verið feimni. Það var eins og það væri svo erfitt að koma þessum orðum fram af vörum sér: “Eg elska þig.” Kuldi komst þannig inn á milli okkar, eg held ást vor hvors til ann- ars hafi verið nærri kulnuð út. Svo einu sinni við kvöldborðið spurði litla stúlkan okkar alt í einu: “Pabbi. hversvegna segir mamma aldrei neitt þegar þú kemur heim? Hversvegna er hún ekki glaðleg?” Þegar hún fékk ekkert svar sagði hún viS mig: “Mamma, farðu nú að hlæja, það er svo miklu meira gaman.” Eg gat ekki stilt mig um að brosa, fað- ir hennar brosti líka, en tár komu einnig í ljós. Þegar eg var búin að hátta litlu stúlkuna okkar bað eg til Guðs að hann vildi sameina hjörtu okkar svo við gætum orðið hamingjusöm aftur. Þegar eg settist við borðið með handa- vinnu mína, sagði maðurinn minn, sem sat beint á móti mér: “Anna, þú ert alt af svo vinnusöm.” Eg leit upp án þéss að svara og keptist því betur við vinnuna. “Anna,” sagði hann aftur, “allir fé- lagar mínir tala urn hve hrein og þokka- leg fötin min séu, þeir segja að eg hljóti að eiga myndarlega konu.” “Segja þeir það?” spurði eg og leit upp aftur. “Já,” svaraði hann, “og það er satt, þú ert ágætis kona.” Svo kom hann til mín, tók mig í faðm sér og kysti mig. Eg ætlaði að slíta mig í burtu og sagði: “Þér þykir ekkert vænt um mig lengur, því þú talar aldrei hlýlegt orð til mín.” “E!n talar þú hlýlega til mín?” spurði hann. “Réttu mér hendina, við skulum fyrirgefa hvort öðru. tlver veit hve lengi við fáum að vera saman. Við skulum elska hvort annað og láta í ljósi ást okk- ar meðan við höfum tækifæri.” Eg rétti honum hendina, þaS var ham- ingjusöm stund fyrir okkur. Það var byrjun á nýju lífi. Við vorum ekki leng- ur feimin við að segja að við elskuðum hvort annað. Við vorum ósegjanlega hamingjusöm. Þessi hamingja varaði aðeins í sex mán- uði, þá dó maðurinn minn. Ó- hve eg hryggist yfir því að eg svo lengi vanrækti að sýna honurn kærleika. Þess vegna segi eg til allra eiginkvenna: “Sýndu í orði og verki að þú elskir manninn þinn. Láttu í ljósi ást þína til hans.” Það kom nýlega í ljós af skýrslum í Frakklandi að þar eru 480,000 búðir sem selja áfengi, eða ein áfengis sölubúð fyrir hverja 83 af íbúum landsins. Kostnaður við að ala upp barn, frá fæðingu til fullorðinsára er um $5,000, segir uppeldisfræðingur Bandaríkjanna, W. J. Cooper. þó aðeins með því móti að unglingurinn gangi ekki á háskóla. Ef hann þar á móti útskrifast úr 16. bekk þá verður kostnaðurinn frá 20 til 25 þús- undir dollara.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.