Stjarnan - 01.01.1935, Page 6

Stjarnan - 01.01.1935, Page 6
6 STJARNAN Koátnaður við stríð Kúlur kosta ekki rnikiÖ. En ef skotiÖ er 1,000,000 kúluna á hverri klukkustund og verÖ- iÖ er 30 dollarar fyrir þúsundið, þá verÖur það allmikil upphæð. Byssa er ódýr, kostar um 25 dollara, en þegar miljón mönnum er lögð til byssa þá kostar það 25 miljónir dollara. Véla- byssa kostar um 640 dollara. Prakkar höfðu hér um bil 40,000 af þeim. Kraftmeiri byss- ur, sem Bretar kalla “One-pounder” kosta 1,000 dollara hver, og hver sprengikúla kostar 15 dollara. Hinar nafnkunnu 'fröínsku byssur sem kallaðar eru “75” kosta 8,000 dollara hver, þær eru gjörðar af mikilli list, eins nákvæm- lega eins og stundaklukka, hver spí'engikúla í þær kostar nærri 25 dollara. Það er auðvelt að eyða 4 miljónum dollara í einu áhlaupi. Nýju stríðsvagnarnir í Ameríku, sem nefndir eru “Kristy Tanks” kosta 26,000 dollara hver, fyrir utan aflvélina og herbúnaðinn. Með öll- um útbúnaði kosta þeir 80,000 dollara. Alment nýtízku herskip kostar n miljónir, flutninga- skip fyrir flugvélar ig miljónir og stærstu her- skip 30 miljónir. Af þessu sjáum vér að stríð er dýrt, það kostar peninga. Vér borgum tollinn. En stríS aflar einnig fjár—fyrir suma offjár. Það er einkennilegasta atvinna sem til er. Vér vitum hverjir áttu í stríði í Shanghai í febrúar 1932. Vér minnumst hve hetju- lega Kínar gengu fram í 19. herdeildinni. Vér vitum alt um bardagann í Shanghai, nema það markverðasta—hver græddi á honum. Samkvæmt skýrslum alþjóða nefndar eyddu menn 4,276,800,000 dollurum í herkostnað í heiminum árið 1933, á einu ári. Þessar tölur eru of háar til til þess að geta gripið í fljótu bragði hvað þær þýða. Setjum svo að eg hefði jafnmikla peninga og eyddi af þeim 10 dollur- Við erum í félagi Hraustleg, lítil stúlka var að sækja vatn. Hún hafði svo oft gengið fram hjá húsdyr- um okkar þennan morgun, að við ávörpuðum hana af forvitni og sögðum: “Þú átt annríkt í dag, litla stúlka.” “Já, frú,” sagði hún og leit til mín. Andlit hennar var freknótt og rautt af hita. Hún var um á dag, þá yrði samt nokkuð afgangs af þeim eftir eina miljón ára. Ef keyptur væri fyrir þær borði, sem kostaði einn dollar mílan, þá næði hann 172,169 sinnum kringum hnött- inn. Þessar 4-5 biljónir dollara eru sú upphæð, sem allar þjóðir í heimi hafa eytt, bæði til að halda við her sínum, og til að auka her sinn og herbúnað. Það er samanlögð upphæð striðs- kostnaðar allra ríkja. Það sem hvert einstakt ríki leggur í kostnaðinn er lítilf jörlegt í sam- anburði við aðalsummuna. Þó getur það orðið allhátt, alt að 300,000,000 dollurum á ári. Gunther. 1 sambandi við undanfarna grein datt mér í hug fréttin, sem kom frá Póllandi fyrir nokkru síðan, að lög séu þar leidd í gildi, sem herskylda bæði menn og konur frá 17-60 ára aldurs. Og annað lagaákvæði, sem heimtar að allir afhendi ríkinu eigur sinar, bæöi smáar og stórar, ef til striðs kemur og stjórnin þarf á þeim að halda. Með öðrum orðum: menn eiga að afhenda ríkinu líf sitt, fé og frelsi hvenær sem stjórnin krefst þess. Það sem getur komið fyrir í Póllandi, getur komið fyrir í öðrum ríkjum og löndum, vér megurn vera viss um það. Þá munu Guðs börn gleðj- ast yfir því að hafa varið öllu fé sínu til að líkna nauðstöddum og leiðbeina viltum, til að efla Guðs ríki á jörðinni, meðan þeir enn höfðu tækifæri og frjálsræði til að gjöra það. Þá mun marga iðra þess sárt og um seinan að þeir í eigingjörnum tilgangi söfuuðu fjársjóð- um á jöröu, sem þeir aldrei munu geta notið. Söfnum oss fjársjóðum á himni, þar sem mölur og ryð geta ekki skemt, né þjófar grafist eftir og stoliö. S. Johnson. sveitt, en svo ánægjuleg. “Já, frú, mamma þarf ósköp mikið vatn fyrir þvottinn.” Þú ert góð stúlka að hjálpa mömmu.” “Auðvitað hjálpa eg henni,” sagöi barnið, “eg hjálpa henni alt af, hún hefir engan nema mig. Mamma og eg erum í félagi saman.” Litiu drengir og stúikur, eruð þið í félagi við mömmu? Hjálpið þið henni alt sem þið getið ? L. W.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.