Stjarnan - 01.01.1935, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.01.1935, Qupperneq 7
STJARNAN 7 Rödd föðursins Dagurinn var þegar liðinn, sólin var aÖ ganga undir. Allir lögöu heimleSðis til aÖ njóta kvöldkyrðarinnar. Alt í einu var hróp- að: “Barn niðri í brunninum; barn niðri í brunninum-” “Hvaða barn er það? Hvernig atvikaðist það? Hver tók hlerann af brunninum? Hver gat verið svo kærulaus? Þannig spurðu menn í sífellu um leið og þeir flýttu sér yfir að brunninum. Svo braust ungur maður fram úr mannþrönginni og sagði: “Slysið hefir orðið, það bætir ekkert úr að spyrja hver því hafi valdið, það sem ríður á er að frelsa barn- ið.” Hann hefir rétt fyrir sér, svöruðu menn sem einum rómi. Skjóla var látin síða niður í brunninn, og angistarfullir horfðu menn nið- ur í dýpið. “Vertu óhræddur, drengur minn,” hrópaði einn. “Stígðu upp í skjóluna,” hróp- aði annar, en drengurinn svaraði engu og lét ekkert til sín heyra. “Það hefir verið ákaflega þurkasamt, svo það er litið eða ekkert vatn í brunninum,” sagði einn í hópnum. “Já, Guði sé lof,” and- varpaði móðir drengsins, “og síðast í gær var eg að mögla yfir því hve lítið vatn v.ið hefð- um.” Næst heimtuðu menn ljósbera, en áður en komið var með hann kom faðir drengsins, hann hafði verið fjarlægur þegar slysið vildi til, og þegar hann kom heim sá hann engan mann á strætunum, allir höfðu farið yfir að brunn- inum. Þegar honum var sagt hvað skeð var fölnaði hann upp, en náði sér þó skjótt aítur og sagði: “Víkið frá, lofið mér að reyna.” Hann dró nú upp skjóluna, rannsakaði kaðal- inn nákvæmlega og festi svo á hann nokkra poka í stað skjólunnar, svo lét hann þetta síga með hægð niSur til botns í brunninum. “Verið nú alveg hljóðir,” sagði hann, leit. í kring um sig, lagðist niður á brunnbarminn og hrópaði: “Hans, náðu í kaðalinn og haltu þér fast í hann.” Menn tóku strax eftir því að hreyfing kom á kaðalinn. “Dragið þið nú sterklega, en með hægð,” sagði hann við þá, sem kaðlinum héldu. “Haltu þér fast, sonur,” hrópaði hann aftur. Brunnurinn var mjög djúpur. Nokkr- ar alvarlegar minútur liðu, svo heyrðist gleði- óp: “Frelsaður, frelsaður.” Rödd föðursins, sem barnið þekti svo vel kallaði til hans. Hann bar traust til föður síns, hlýddi honum og var frelsaður. Vor himneski faðir hefir af náð sinni og kærleika sent sinn eingetinn son inn í þenna spilta heim, til að frelsa mennina, sem eru í sífeldri hættu fyrir að falla niður í afgrunn syndarinnar. Hefir þú ennþá ekki heyrt hans kærleiksríku raust? Hann hrópar til þín: “Trúðu á Drottinn Jesúm, þá verður þú hóp- inn.” L. M. Máttlausir vængir Maður nokkur, sem kom heim úr langri sjóferð, sagði frá því að þeir hefðu haft lif- andi erni um borð í skipinu, en einn þeirra hefði druknað. Örn að drukna, það virtist mér næsta ótrúlegt, því ernir geta flogið yfir stór höf. Voru vængir hans bundnir? Nei, en allir þessir ernir höfðu fæðst og alist upp ófrjálsir, svo þeir hofðu aldrei lært aö fljúga neitt til muna. Einum þeirra var slept lausum á þil- farinu. Fyrst gekk hann um gólfið og hopp- aði svo upp á borðstokkinn, lyfti síðan vængj- unum og sveif með hægð niður á yfirborð vatnsins. Hann gat ekki lyft sér upp aítur heldur lá á bylgjunum. Þá virtist fyrst sem hann skikli að hætta væri á ferðum, hann barði ákaflega með vængjunum, en hvernig sem hann veifaði þeim, gat hann ekki lyft sér. Það var hryggileg sjón aö sjá hve þessir stóru vængir voru kraftlausir. Bylgjurnar báru hann ofurliði. Þannig er því oft varið í lífi manna. Guð hefir gefið oss vængi kröíftugri heldur en arnarins; það eru vængir bænar og trúar. Á þeim getum vér sveiflað oss inn í þann heim þar sem synd og dauði nær ekki framar til vor. En alt of margir nota aldreí þessa vængi. Svo nálgast dauðastundin, þá verða þeir fyrst varir við hættuna, og gjöra þá tilraun til að nálgast Guð, en vængir þeirra eru máttlausir. Þeir þekkja ekki Guðs fyrirheit, kunna ekki að biðja, og treysta ekki Guði. Svo gefast þeir upp, örvænta og farast. B. S.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.